Færsluflokkur: Íþróttir

Er þetta frétt!!

Það er alveg ljóst að við sem eru eðlilegir höfum vitað þetta lengi. Það þarf ekki annað en að skoða örvhentu mennina í liðinu.

Arnar Jón Agnarsson

Einar Örn Jónsson

Elías Már Halldórsson

Koma svo strákar opnið ykkur. Vð hlustum á ykkur svona yfirleitt ;)


mbl.is Örvhentir bældari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafnafjarðarslagur á miðvikudaginn.

 

Nú fer að líða að fyrsta leiknum af mörgum í vetur þar sem hafnafjarðarliðin mætast í kappleik. Fyrsti leikurinn verður í Krikanum kl. 19:30 á miðvikudaginn.

Ef það er einhverntíman sem Haukamenn mæta á leik þá er það á miðvikudaginn. 


Komin tími á deildarsigur

SIgurbergur SveinssonÞað kom ekkert annað en sigur til greina í dag þegar Víkingar komu í heimsókn til okkar Haukamanna. Við leiddum allan leikinn og vorum yfir í hálfleik 18-14. Í seinnihálfleik spiluðum við flotta vörn og Gísli G var Gísli Guðmundssonflottur í markinu. Leikmenn komu klárir til leiks og menn sem komu inn af bekknum voru tilbúnir til að nýta sínn sjéns. Leikurinn endaði svo með því að við rótbustuðum Víkinga með 14 marka mun 37-23. Beggi var með 8 mörk, Stebbi "P" og Einar Örn með 6. Kári var öflugur í fyrrihálfleik og Gísli Guðmunds stóð vaktina allan leikinn í rammanum og varði einhverja 25 bolta.

Næsti leikur er gegn fh í Kaplakrika á miðvikudaginn 5.nóvember. Þetta verður án efa hörkuleikur en FH-ingar hafa verið á góðri siglingu undanfarið og verma nú efsta sætinu í deildinni ásamt Val og Akureyri. 

Andri Stefan Guðrunarsonp.s. Andri Stefan spilaði sinn 300 leik fyrir Haukana í kvöld. Til hamingju með það Andri.


mbl.is Haukar hristu af sér slenið og burstuðu Víking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haukar - Víkingur sunnudag kl.16

 

 

Á morgun sunnudag koma Víkingar í heimsókn til okkar á Ásvelli. Vikingarnir eru enn sem komið er stigalausir og við búnir að tapa síðustu 3 leikjum í deildinni. Víkingarnir voru mjög nálægt því að ná stigi af HK í síðustu umferð á meðan við spiluðum bara fyrrihálfleikinn gegn Fram en vorum ekki með í þeim seinni. Í liði Víkings eru þónokkrir Haukamenn. Í markinu er Björn Viðar Björnsson, Þröstur Þráinsson í hægra horninu, Vigfús á miðjunniog Sixterinn spilar í vörninni hjá þeim. Hjá okkur verður Arnar Pétursson ekki með vegna meiðsla í nára og Kári er tæpur í nára annars eru aðrir klárir í að spila.

Leikurinn hefst kl. 16.

 


Efnahagsástandið hefur áhrif á leikmannahópinn

tryggviiÞegar æfing hófst í kvöld vantaði tvo félaga og það var svo þjálfarinn sem tjáði haffiokkur að þeir Tryggvi Haraldsson og Hafsteinn Ingason myndu ekki klára tímabilið með okkur Haukunum. Þetta eru leiðinlegar fréttir fyrir okkur strákana því þeir Tryggvi og Hafsteinn voru góðir félagar og féllu vel inní hópinn.

Fyrir hönd strákana í hópnum vil ég bara þakka fyrir þann tíma sem þær systur áttu með okkur og það er vonandi að þeir finni fjölina sína hjá því félagi sem þeir ákveða að leika með. Bling hópurinn mun sárt sakna Trikkstersins enda mjög efnilegur keppandi þar á ferð. Það hlýtur svo að koma í ljós fyrr en síðar með hvaða liði þeir ætla að leika, enn leikmannaglugginn lokar núna 1.nóvember.

P.s. Strákar sektarsjóðurinn er brjálaður en bjórsjóðurinn er mjög sáttur þar sem annar ykkar skilur eftir sig 500 kr inneign. 

Kv. Freyr B


Haukar - Fram á fimmtudaginn

Næstkomandi fimmtudag mæta Framarar í heimsókn á okkar heimavöll Ásvelli. Það vill svo til að við erum taplausir á heimavelli bæði í deild og í meistaradeildinni. Framarar eru komnir áfram í evrópukeppninni og mæta í næstu umferð Gummersbach. En með þeim spilar Róbert Gunnarsson landsliðsmaður.

Næstu 3 leikir verða í N1-deildinni. Fyrst spilum við gegn Fram svo Víking á heimavelli en þann 5. nóv förum við í heimsókn í Krikann og spilum við litla félagið í hafnafirði. Þann 8.nóv kemur svo Flensborg í heimsókn að Ásvelli.


Sigurmyndbandið: Haukar - Veszprém

Hér kemur smá myndband um þennan frækna sigur okkar haukamanna í gær sunnudag gegn ungversku meisturunum Veszprém.

Þetta myndband er tileinkað stuðningsmönnum okkar Haukamanna.


Ævintýralegur sigur í dag gegn Veszprém

cl 0809 bannerJá sællll, eigum við að ræða þetta eitthvað. Það er alveg ljóst að það trúði enginn að við myndum vinna þennan leik í dag og ég verð að viðurkenna að maður fór ekkert alltof bjartsýnn í þennan leik. Það var ekki fyrr enn í lok fyrrihálfleiks að maður sá að núna væri lag og við gætum unnið eitt af 10 bestu liðum í evrópu.

Við spiluðum fanta vörn og þeir áttu fá svör við henni og sóknarlega létum við boltann ganga hratt og létum þá ekki brjóta á okkur. Birkir Ívar var svo í ruglinu fyrir aftan vörnina. Hann fékk svo skot beint í andlitið og náði sér ekki alveg á strik aftur en Gísli G kom inn á og varði nokkra mikilvæga bolta. 

Brynjar Dagur og FreyrMaður er eiginlega ekki ennþá búin að átta sig á hversubirkir ivar svakalegur sigur þetta er fyrir okkur og íslenskan handbolta. Við spilum ávallt til sigurs hér á Ásvöllum og næst er það Fram í deildinni. Við ætlum ekki að láta góðan árangur í meistaradeilidnni verða okkur að falli aftur.  Vorum ennþá á einhverju bleiku skýi eftir Flensborgarleikinn en við fögnum í kvöld og kannski á morgun svo er bara farið á fullt í að undirbúa sig fyrir Viggó og félaga næstkomandi fimmtudag. Þar eru þeir með einn besta örvhenta leikmann deildarinnar en hann setti 15 mörk í síðasta leik. Valsleikurinn verður ávallt með okkur út þetta tímabil og hann verður nýttur til að koma okkur aftur niðrá jörðinna.

Næsti leikur í meistaradeildinni er gegn Flensborg 8.nóvember. 

Markaskor; Freyr 8, Kári 5, Andri 4, Beggi 4, Einar Örn 2, Elías 2, Gunnar Berg 2.


mbl.is „Slepptum dýrinu lausu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veszprém á sunnudaginn

Næstkomandi sunnudag mætum við ungverska stórliðinu Veszprém en þeir eru núverandi meistarar í evrópukeppni bikarhafa. Fann hérna myndband með laginu þeirra, njótið


Upp á bak

toilet aboutJæja, hvað er hægt að segja eftir svona frammistöðu annað en að biðja þá áhorfendur sem mættu afsökunar. Við vorum aldrei með í þessum leik og Valsararnir gjörsamlega gengu frá okkur. Sóknarleikurinn hjá okkur var hrein hörmung en Valsararnir voru líka að spila hörku vörn. Það reyndi lítið á varnaleik okkar í fyrrihálfleik þar sem þeir skoruðu meiri en helming marka sinna úr hraðupphlaupum en við hentum boltanum trekk í trekk beint í hendurnar á þeim. Staðan var 21-8 í hálfleik. Í seinnihálfleik var smá bæting enda ekki annað hægt en þó vorum við mjög slakir þó svo að við hefðum unni seinnihálfleik með 1 marki.

 

Næsti leikur er í meistaradeildinni á sunnudaginn og svo eigum við leik við Fram næst í deildinni einnig á heimavelli.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband