Færsluflokkur: Íþróttir
14.10.2008 | 21:28
Valur-Haukar á morgun kl.19:30
Á morgun miðvikudag kl. 19:30 förum við haukamenn í heimsókn að Hlíðarenda og mætum þar bikarmeisturum Vals. Valsmenn eru í dag ósigraðir í deildinni og því kláralega komin tími á að þeir tapi 2 stigum. Síðasti leikur þessara liða var í september þegar við spiluðum gegn þeim í meistarar meistarana. Þar fórum við með sigur á hólmi.
Þeir eru með góða blöndu af ungum og leikreyndum leikmönnum. Hjá þeim vantar Heimir Örn sem er meiddur, veit ekki með Hjalta Pálma en hann var ekki með í síðasta leik á móti FH. Ernir er einnig meiddur en annars eru þeir með aðra tilbúna í slaginn. Hjá okkur verður Einar Örn ekki með, hann þarf að fara erlendis vegna vinnu sinnar. Annars eru allir klárir í slaginn og þetta verður án efa hörkuleikur milli liðanna sem Séra Friðrik stofnaði.
LIVE FOR NOTHING OG DIE FOR SOMETHING
Íþróttir | Breytt 15.10.2008 kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2008 | 15:59
Stóðum í stórliðinu Flensborg
Í gær mættum við hinu geisi sterka liði Flensborg í Campushallen í þýskalandi. Margir höfðu fyrirfram haldið að þeir myndu ganga yfir okkur og það er ekki óalgengt að þeir vinni sterk lið með 10+ mörkum á sýnum heimavelli. Það var mögnuð upplifun að spila leik gegn svon gríðalega sterku liði sem hafði um 6500 áhorfendur í sínu horni og við hefðum hæglega getað látið sýninguna
fyrir leikinn og stemmninguna í húsinu hafa áhrif á okkur, en við létum það ekki trufla okkur. Leikurinn byrjaði með marki frá þeim og við jöfnuðum strax aftur og þannig hélt það áfram. Við fengum mark á okkur í nánast hverri vörn en við svöruðum alltaf til baka og eftir 15 mín fór vörnin aðeins að vinna á og við gengum á lagið og náðum 3 marka forustu 9-12. Á þessum tímapunkti heyrðist ekki í áhorfendum nema þá Haukamönnum en það voru um 30 manns mættir til að styðja við bakið á okkur. Það var svo þarna sem við misstum leikmenn útaf og vorum meira og minna einum færri. Þeir náðu að jafna 13-13 og svo náðu þeir 5 marka forustu þegar við misstum enn ein manninn útaf og staðan í hálfleik var 19-14 þeim í vil.
Í seinni hálfleik héldum við áfram góðri baráttu og markvarslan kom aðeins inn, en hana vantaði alveg í fyrrihálfleik. Þeir náðu oftar en einu sinni 6 marka forustu en við náðum alltaf að minnka það niður og í stöðunni 30-27 skoraði Andri fullkomnlega löglegt mark en á einhvern óskiljanlegan hátt þá dæmdu lélegir dómarar leiksins SKREF og þeir í sókn og við missum mann útaf. Lokatölur urðu svo 35-29. Við getum svo sannalega gengið stolltir frá þessari frammistöðu og sýndum að það er allt hægt í þessum bolta og nú er bara spurning hvort okkar heimavöllur geti skilað okkur stigi gegn Vesprem eða Flensborg.
Það voru margir að spila vel í þessum leik. Kári setti 7 mörk úr 7 skotum og Beggi var góður í fyrrihálfleik og var með 5 mörk alls. Freyr og Gunni spiluðu vel og settu 4 mörk hvor. Andri Stefan steig upp í seinnihálfleiknum og hélt okkur á floti með 5 mörkum og 6 mörkum alls. Elías nýtti sín færi vel og setti 3 mörk. Arnar Pétursson var einnig
öflugur í vörninni.
Næsti leikur er gegn Val í deildinni næstkomandi miðvikudag og svo mæta Vesprem í heimsókn helgina eftir.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.10.2008 | 20:49
Flensborg í fyrramálið
Þá er komið að þýskalandsferðinni þar sem við tökum á Flensborgarmönnum í Campushalle. Lagt verður af stað kl.4:30 frá Ásvöllum og fyrirhugað er að við mætum á hótelið kl.17:30 að staðartíma. Leikurinn hefst svo fimmtudaginn 8.okt kl.17:15 að Íslenskum tíma og verður leikurinn sýndur beint á Eurosport 2.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2008 | 20:31
Frábær liðssigur í dag
Það var öllu tjaldað að Ásvöllum í dag þegar Zaporozhye kom í heimsókn í meistaradeildinni. Dúkur á gólfinu, bein útsending, slatti af áhorfendum og sigur á loka mín leiksins. Hvað er hægt að biðja um meira.Leikurinn byrjaði ekki byrlega hjá okkur en við vorum þó ekki langt frá þeim. Þeir voru yfirleit 1-2 mörkum yfir í fyrrihálfleik en svo náðu þeir 4 marka forustu rétt fyrir hálfleik og staðan í hálfleik var 13-17 þeim í vil. Við ætluðum ekki að láta þetta lið koma hingað og láta þá rassskella okkur á heimavelli okkur. Ekki byrjaði seinnihálfleikurinn eins og við óskuðum en þeir skoruðu 3 fyrstu mörkin og staðan orðin 13-20. Það var þarna sem menn vöknuðu af værum blundi og fóru að spila fanta vörn sem skilaði sér í ódýrum hraðupphlaupum og mörk úr öðru tempói. Áður en maður vissi af þá var staðan orðin 21-19 og svo 22-22. Þeir skoruðu svo næstu tvö mörk en í stöðunni 25-23 urðum við einum færri og í staðinn fyrir að missa móðinn þá héldum við áfram pressunni. Við tókum örvhentu skyttuna þeirra út einum færri og það slóg þá út af laginu og við skoruðum síðan síðustu 3 mörk leiksins
og unnum leik sem var í raun tapaður. Ótrúlegur sigur og 2 stig komin í hús.
Markaskorara: Freyr 4, Beggi 4, Elli 3, Kári 3, Gísli Jón 3
Birkir varði um 10 skot og komu þau flest öll í seinnihálfleik.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2008 | 22:52
Haukar - ZTR Zaporozhye: Sunnudag kl.16
Á morgun spilum við í Haukunum gegn mjög sterku liði frá Úkraníu. Setti smá myndband saman með lag bút meistaradeildarinnar. Margir kannast kannski við þetta lag úr myndunum Pirates of the carribean.
Leikurinn hefst kl.16 sunnudaginn 5.október að Ásvöllum
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2008 | 22:25
Tap í kvöld
Það fór ekki vel í kvöld hjá okkur haukamönnum þegar við heimsóttum HK menn í Kópavoginn. Við byrjuðum í 6-0 vörn og vorum bara að spila góða vörn með Birkir Ívar í essinu sínu fyrir aftan. Við komumst í 9-6 en þá byrjuðum við að gefa eftir og leyfðum þeim að komast aftur inn í leikinn í staðinn fyrir að halda áfram og skilja þá eftir. Þeir jöfnuðu leikinn 9-9 og staðan í hálfleik var svo 11-11. Við fórum illa með einhver 4-5 dauðafæri í fyrrihálfleik. Í seinnihálfleik var jafnt á öllum tölum en við vorum að spila mjög illa í sóknarleiknum og misstum boltann allt of oft ásamt því að klúðra einhverjum 4 dauðafærum í viðbót. Þó svo að við værum að spila illa þá vorum við inni leiknum nær allan tímann, það var ekki fyrr en við létum reka okkur útaf fyrir klaufa brot að þeir náðu tveggja marka forustu alveg undir lokinn og kláruðu leikinn. Við vorum að klárlega að spila okkar lélegasta leik í langan tíma í deildinni en við verðum klárlega tilbúnir næst þegar við mætum HK.
Bestu í okkar liði í dag var Birkir Ívar en hann varði um 22 bolta.
Beggi skoraði 8 mörk, Andri 4, Kári 2, Gunnar 2, Arnar Jón 2, Elías 2, Einar Örn 2, Freyr 1
Næsti leikur hjá okkur er í Meistaradeild Evrópu á sunnudaginn kl. 16.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2008 | 15:21
Steak and Play bíður þér á leik HK-Hauka annað kvöld.
Það er frítt inn á leik okkar gegn HK annað kvöld kl.19:30. Veitingastaðurinn Steak and Play bíður öllum sem vettlinga geta valdið á þennan stórleik í N1-deildinni.
Nú er engin afsökun fyrir að mæta ekki.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 15:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2008 | 09:06
Stórleikur í N1-deildinni annað kvöld
Annað kvöld förum við haukamenn í heimsókn í Digranesið að taka á HK-ingum. HK hafa á að skipa sterkum hóp sem án efa á eftir að vera í toppbaráttunni í vetur. Þeir hafa fengið til sín nokkra nýja leikmenn en um leið hafa þeir látið alla útlendingana fara. Nýju leikmennirnir eru Sverrir Jakobsson, Valdimar Þórsson, Einar Ingi, Jón Björgvin og Ásbjörn Stefánsson (Ásibubbi). HK hefur eins og við spilað 2 leiki og fyrsti leikurinn hjá þeim tapaðist gegn Fram en í síðustu umferð unnu þeir FH. Það stefnir allt í hörkuleik á morgun og því mikilvægt að haukafólk mæti til í Digranesið. Leikurinn hefst kl. 19:30.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2008 | 21:12
Norðanmenn sigraðir
Góður sigur vannst í dag gegn liði Akureyrar. Við byrjuðum af krafti og náðum 7 marka forustu um miðjan fyrrihálfleik 10-3. Við spiluðum mjög öfluga 5-1 vörn og þeir
áttu fá svör við henni. Þeir komust aðeins inn í leikinn þegar við vorum einum færri og minnkuðu muninn í 17-13 þegar stutt var eftir til hálfleiks. Við náðum að setja eitt fyrir hlé og staðan því 18-13 fyrir okkur í hálfleik. Í seinnihálfleik byrjuðu Akureyringar betur en fljótlega jafnaðist leikurinn út og við héldum 4 til 5 marka forustu þangað til að þegar um 5 min voru eftir, en þá settu við í næsta gír og náðum mest 10 marka forustu. Loka tölur urðu svo 37 - 28 Haukamönnum í vil.
Öruggur sigur í höfn og næsti leikur verður gegn HK í Digranesinu á miðvikudaginn.
Markahæstu menn: Sigurbergur 8, Einar 6, Freyr 4, Arnar Jón 4, Gísli Jón 4,Kári 3, Gunnar Berg 3, Andri 2, Hafsteinn 2, Tryggvi 1.
Gísli G stóð í rammanum í dag og varði 19 bolta.
p.s. Haukar vinna, Liverpool vinnur og keflavík varð ekki meistari - fullkominn dagur.
Íþróttir | Breytt 28.9.2008 kl. 00:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2008 | 20:51
Fjölskyldudagur að Ásvöllum á morgun
Enn og aftur er sannkallaður handboltadagur hjá okkur haukamönnum og konum. Konunar byrja veisluna þegar Gróttu stelpur mæta í heimsókn. Hefst sá leikur kl. 14. Við haukamenn fáu svo Akureyrí í heimsókn og hefst sá leikur kl.16. Kl. 18:15 spila svo U-liðið gegn Gróttu í 1.deild karla.
En aftur að okkar leik gegn Akureyri. Akureyri hefur á að skipa góðum leikmönnum og koma án efa tilbúnir til leiks eftir að hafa tapað gegn FH í síðasta leik. Árni Sigtryggs mætir okkur í fyrsta skipti síðan hann yfirgaf Haukana fyrir 2 árum. Þar spilar hann með stóra bróður og einnig fyrrverandi haukamanni Rúnari Sigtryggs. Þessi tveir ásamt honum Jónatani eru gríðalega öflugir leikmenn sem við þurfum að stoppa. Það eru allir klárir í slaginn hjá okkur og í raun erum við alltaf 15 leikmenn sem mætum til leiks og því alltaf 1 sem þarf að hvíla.
Nú er um að gera fyrir Haukafólk að mæta að Ásvelli á morgun til að styðja sitt lið. Boðið er upp á barnagæslu fyrir yngstu börnin í sér barnahorni. Það er engin afsökun til að sleppa því að mæta.
Áfram Haukar.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar