Færsluflokkur: Íþróttir
17.11.2008 | 20:57
Haukar - Akureyri 19.nóv
Á miðvikudaginn förum við haukamenn í heimsókn norður og spilum við Akureyringa. Í fyrra mættust liðin 4sinnum og unnum við 2 og 2 fóru jafntefli.
Á þessu tímabili komu Akureyringar í heimsókn til okkar og þar unnum við nokkuð örugglega. Síðan þá hefur gengi liðanna verið á öndvegis meiði. Akureyringar hafa unnið hvern leikinn á fætur öðrum en við höfum ekki verið að spila vel í deildinni. Þetta verður án efa hörku leikur og við verðum að eiga algjöran toppleik til að vinna þá á heimavelli.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.11.2008 | 22:49
Spurningakeppnin
Í kvöld fór fram spurningakeppnin "Ertu heimskari en skólakrakki" á meðal okkar strákana hér í Úkraínu. Gísli Guðmundsson og Freyr Brynjarsson sömdu 30 spurningar og kepptu hinir strákarnir í tveggja manna liðum. Liðskipan var eftirfarandi:
1. Aron K, Páll Ó, Kolbrún Sjúkraþj. 2. Gísli J - Arnar J 3. Arnar P - Andri S
4. Gunnar B - Stefán 5. Einar Örn - Pétur P 6. Kári - Birkir
Spurningarnar voru að mestu upp úr efni frá 5,6 og 7 bekk í grunnskóla ásamt nokkrum spurningum úr ýmsum áttum.
Það er skemmst frá því að segja að þeir Einar Örn og Pétur Páls unnu með 59 stigum af 90 mögulegum. Í 2.sæti voru Arnar P og Andri Stefan með 57,5 stig. Í 3.sæti voru Birkir Ívar og Kári með 53 stig. Í 4 sæti urðu Gísli Jón og Arnar Jón. Í 5 sæti urðu Aron, Páll og Kolbrún. Og restina ráku Stefán og Gunnar með, já aðeins minna.
Dæmi um spurningar eru :
1. Hver er næst stærsta eyðimörk í heiminum?
2.Hver er höfðuborgin í Ástralíu?
3. Beygðu orðið Kýr í et og ft.?
4.Hvaða reikistjarna er næst sólu?
5.Hver er talinn vera merkasta uppgötvun mannsins?
P.s. þið sem þekkið Stebba "Plokk" spyrjið hann hvað hann gerði á laugardagskvöldinu.!!!!!!
Íþróttir | Breytt 17.11.2008 kl. 12:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.11.2008 | 17:42
Tap í Úkraínu
Það var ekki burðugur leikurinn í dag hjá okkur. Byrjuðum afleitlega og vorum undir 5-0 á tíma. Í stöðunni 12-5 náðum við að skora 3 í röð og staðan í hálfleik var 12-8. Í seinni hálfleik var jafnt til að byrja með en svo í stöðunni 14-11 fór allt í baklás hjá okkur. Við vorum að spila ágætlega í vörninni og markvarslan var fín en sóknaleikurinn og skotnýtingin var út úr kú. Liðs nýtingin var 33 % 45 sóknir og 15 mörk. Leikurinn endaði svo með 11 marka tapi 26-15. Þeir einu sem nýttu færin sín voru Einar með 4/4 þar af 3 úr vítum og Kári með 5/6 nýtingu, aðrir náðu ekki 40 % nýtingu.
Markaskor: Kári 5, Einar 4, Freyr 3, Pétur 1, Stefán 1, Andri 1.
Birkir spilaði allan leikinn og varði um 20 bolta.
Næsti leikur er gegn Akureyri á miðvikudaginn fyrir norðan.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2008 | 09:37
Komnir til Úkraínu
Þá erum við mættir til landsins sem hefur á að skipa annað mengaðasta svæði í heiminum í dag, Tjernobyl. Hér átti einnig sér stað appelsínagula byltingin um árið.
Við lögðum af stað frá Íslandi kl. 14 á fimmtudeginum og flugum til Köben. Þar var gist á hóteli sem var staðsett niðrí bæ (mjög nálægt Istegade). Um kvöldið fóru menn að fá sér að borða og þá kom berlega í ljós hversu dýrt það er að fara erlendis. Birkir og Einar fóru á Hard Rock og fengu sér hamborgara, kók og bjór. Það kostaði þá 4000 krónur á mann. Það voru ég og Kári sem gerðu bestu kaupin þegar við skelltum okkur á Maccarann en fyrir máltíð borguðum við um 1300 kr.
Morguninn eftir kl. 6:00 að íslenskum tíma lögðum við af stað upp á flugvöll og flugum til Kiev í Úkraínu. Þegar við svo lentum um kl. 11 þurftum við að bíða í smá tíma eftir rútunni. Þegar við svo komum út úr flugbyggingunni þá blasti við okkur rúta ekki ósvipuð þeirri sem er hér að ofan. En sem betur fer fórum við fram hjá henni og beið þá liðsrúta heimamanna sem verður að teljast þokkaleg miðað við rúturnar hér í landi. Það var sjónvarp en það var ekkert dvd heldur var VHS tæki sem virkaði ágætlega en það var engin með spólu með sér. Fundum eina spólu í rútunni en það var leikur Essen og Lemgo frá 2002.
Þessi blessaða rútuferð tók 7 og hálfan tíma með tveimur pissu stoppum og það er óhætt að segja að aldrei hefur undirritaður upplifað eins ógeðslega rútuferð. Vegirnir voru allir holóttir og hossuðum við alla ferðina. Þegar maður svo lagðist upp í rúm um kvöldið leið manni eins og eftir erfiða ferð með Herjólfi, sjóriðan var og er enn til staðar.
Hótelið leit rosalega vel út þegar við mættum á staðinn. Lobbíið var stórglæsilegt og við vorum eins og lítil börn í sælgætisverslun. En svo þegar við fórum út úr lyftunni á 5 og 6 hæð blasti við okkur árið 1976. Þ.e.a.s. gangarnir og herbergin voru síðust tekin í gegn það ár. Það er bara heppni ef þú hittir á heitt vatn í sturtunni og það fengu ég og Gísli G að reyna en köld sturta er svo sem ágæt.
Núna erum við búnir að fara á æfingu í morgun í höll sem er gömul íshokkí höll. Næst á dagskrá er svo leikurinn í dag en hann byrjar kl.15 að íslenskum tíma.
Við leggjum svo af stað í rútuferð dauðans kl.1 nótt að íslenskum tíma þaðan í flug til köben og svo flug heim til Íslands. Við verðum svo komnir heim kl. 22:30. Klárlega ógeðslegasta ferðalag sem hægt er að fara í.
Kv.Freyr B
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.11.2008 | 13:51
Ferðalagið til Úkraníu
Á morgun verður farið í duglegt ferðalag til Úrkaníu. Hluti af ferðinni er um 8 tíma rútuferð og það vill svo til að hann Einar Örn fékk senda mynda af lúxusrútinni sem við komum til með að ferðast með.
Ætli það sé sjónvarp í þessum eðalvagni?
Hér í viðaukaskjali er svo nánari ferðaupplýsingar.
Íþróttir | Breytt 13.11.2008 kl. 08:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2008 | 22:30
Sigur í bikar
Það vannst öruggur sigur á ÍR í kvöld, þó svo að það hafi ekki byrjað vel. ÍR-ingar komust í 4-0 áður en við náðum að komast í gang. Vörnin var að spila fanta vel þegar við svo byrjuðum leikinn. Við jöfnuðum leikinn 5-5 en 4 af þeim voru vítaköst sem Einar Örn skoraði örugglega úr. Vörnin var eins og áður segir mjög góð í leiknum en við spiluðum 6-0 vörn með Adda og Gunnar í miðju varnar. Gísli G stóð vaktina í markinu í 45 mín og varði mjög vel. Birkir Ívar kom inn á síðustu 15 og varði 5 bolta. Í sóknarleiknum voru það Einar Örn sem var með 12 mörk úr 13 skotum og Stefán Rafn sem skoraðir 6/6. Þeir tveir stóðu upp úr í annars góðum liðssigri.
Næst á dagskrá er utanlandsferð til Úkraníu á fimmtudaginn. Einungis 12 leikmenn fara út og eftir verða Stefán Rafn, Tjörvi og líklega Beggi en hann er eitthvað slæmur í hnéi og var ekki með í kvöld.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2008 | 22:38
2 leikir og 1 hálfleikur sem sigurvegarar
Það endaði ekki vel leikurinn gegn Flensborg en við vorum mjög góðir í fyrrihálfleik og leiddum leikinn 15-14. Við spiluðum mjög góðan varnarleik og sóknarleikurinn endaði yfirleitt með skoti sem fór í markið. Í seinnihálfleik gáfum við þeim boltann trekk í trekk með lélegum sendingum og vorum alltaf mikið að reyna troða boltanum inn á línuna. Þeir þéttu vörnina sína og spiluðu hana mjög vel. Í seinnihálfleik fengu þeir einhver 10 hraðupphlaup og það var eiitthvað sem við náðum að halda alveg niðri í fyrrihálfleik. En við getum verið stolltir af árangri okkar á heimavelli í meistaradeildinni 2 sigrar og svo unnum við fyrrihálfleikinn á móti Flensborg.
Markaskor: Beggi 8, Freyr 4, Andri 4, Gunnar 3, Stefán 2, Pétur 2, Gísli 1, Kári 1,
Næstu 12 dagana komum við til með að spila 4 útileiki og þar af eru 3 af þeim flugferði í burtu.
Við spilum fyrst í bikarnum við ÍR á þriðjudaginn í Austurberginu svo förum við til Úkraníu og spilum við Zaporoshye laugardaginn 15.nóv. Miðvikudaginn 19.nóv förum við og spilum við eitt af eftstu liðum deildarinnar Akureyri fyrir norðan. Strax morgunin eftir er lagt af stað til Ungverjalands þar sem við mætum Veszprém á laugardeginum 22.nóvember. Þetta verður strembið prógram og alveg óhætt að segja að leikurinn gegn Akureyri sé einn af okkar mikilvægustu leikjum það sem af er.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2008 | 20:28
Haukar sem Ísland á morgun kl.19:30
Á morgun kl. 19:30 keppum við Haukamenn fyrir Íslands hönd í meistaradeild evrópu. Þið sem mætið ávallt á leiki Íslands eruð hér með beðin um að koma og styðja okkur gegn einu sterkasta liði heims. Leikurinn gegn Veszprém sýndi að við getum vel strítt þessum stórliðum á okkar heimavelli. Við höfum staðið okkur gríðalega vel í meistaradeildinni á meðan deildinn hér heima hefur ekki gengið sem skildi. Við ætlum að selja okkur dýrt í þessum síðasta heima leik í riðlinum og því vantar okkur fólk til að fylla Ásvelli og sýna alvöru Íslenska stemmningu.
Við strákarnir værum alveg til í að heyra Áfram Ísland ef einhverjum er illa við að segja Áfram Haukar.
Hér er lítið pepp myndband sem við strákarnir horfðum á í dag.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2008 | 22:02
4 tapið í deild
Það fór illa í kvöld þegar við fórum í Krikann og sóttum FH heim. Við vorum betri í fyrrihálfleik og vorum yfir 17-14. Í seinnihálfleik komust þeir inn í leikinn og þar áttu dómarar leiksins góðan þátt í því. Því til staðhæfingar eru nokkur atriði sem standa uppúr.
Freyr er rekin útaf vegna þess að hann var ekki 10 cm lengra með stóru tánna þegar við áttum aukakast nokkru fyrir utan puntalínu og hélt ekki einu sinn á boltanum.
Hjörtur fer inn úr horninu og stígur vel á línuna beint fyrir framan nefið á dómaranum og þeir komast yfir.
Þegar 30 sek eru eftir fáum við hraðupphlaup og Andri er komin einn í gegn og annar dómari leiksins dæmir skref á Andra sem var rangur dómur. Innskoti bætt við síðar (En ég skil reyndar dómarann í þessu atviki, þetta leit ekki vel út í fyrstu sjón. En eins og flestir vita þá dæmir dómarinn leikinn og við verðum að fara eftir því.)
Breytt færsla:
(við erum búnir að koma okkar viðbröðum við ummælunum fram og ekki er þörf að hafa hana hér lengur enda telur fulltrúi dómara hana ekki við hæfi.)
Áhorfendur stóðu sig frábærlega og við skuldum þeim miklu meira en við höfum sýnt í deildinni hingað til.
Næsti leikur er gegn Flensborg á laugardaginn og hefst sá leikur kl.19:30. Eftir leikinn verður matarboð með leikmönnum liðanna og býðst öllum sem vilja að koma á þann viðburð. Við strákarnir erum með miða til sölu og fer ágóðinn í að safna fyrir þátttöku í meistaradeildinni en eins og flestir vita hefur kostnaðurinn hækkað mikið síðasta mánuð vegna efnahagsástandsins. Endilega ef þið viljið líta goðin í Flensborg (og Haukum) augu þá endilega talið við okkur. Miðinn kostar 4000 kr í matinn en á leikinn og matinn þá kostar 5000 kr.
Áfram Haukar.
Íþróttir | Breytt 7.11.2008 kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.11.2008 | 13:22
Haukarnir í nýrri mynd
Hann Andri Stefan tók sig til um daginn og setti leikmenn í nýtt útlit. (Hann vinnur hjá Kaupthing). Útkoman er glæsileg í alla staði.
Hægt er að fara inn á www.yearbookyourself.com og gera þetta við sjálfan þig.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar