Færsluflokkur: Íþróttir

Hvar hefur Kári Kristján haldið sig?

Viðtal við Kára Kristján tekið af www.haukar.is 

Kári Kristján KristjánssonEins og glöggir handboltaunendur hafa tekið eftir í fyrstu leikjum tímabilsins hefur Kári Kristján Kristjánsson ekkert verið að spila.
Kári hefur reyndar verið duglegur að mæta á Haukaleikina en ekki til að spila heldur til að horfa á liðsfélagana spila. Haukar.is ákvað því að fara grafa aðeins ofan í málið og náði tali á Kára.

Fyrsta spurningin sem við spurðum Kára var einfaldlega sú, hvað er að hrjá þig ?
 
- Ég er með brot á "fimmta metatarsal" sem er beinið sem til dæmir Wayne Rooney braut um árið (Rooney er fótboltamaður sem spilar fótbolta með Manchester United og enska landsliðinu). Það brotnaði eftir uppstökk og lendingu á Ragnarsmótinu á Selfossi, ekkert óeðlilegt sem ég gerði, þannig þetta kom mér svolítið á óvart, því að ég er jú gerður úr stáli og því kom það mér á óvart að ég hafi brotnað, en ótrúlegustu hlutir geta auðvitað alltaf gerst.

 

Kári nefndi það að hann væri með bort á “fimmta metatarsal”, hvar er það bein ?
 - Þetta er beinið sem liggur að liðamótunum þar sem táin byrjar.

 


En hvernig gengur batinn, hvað er langt í að sjá Kára spila handbolta ?

 - Ég er að vonast til að komast í myndatöku á mánudag eða þriðjudag sem á að segja mér hvernig gróaandinn sé búin að vera. Þannig að eins og staðan er í dag vona ég að ég geti byrjað með mikilli ákefð eftir 2 vikur. Ég er svo að vonast til að ná Afturelding leiknum sem er 19.ókt annars ætti ég að verða skotheldur 30.ókt gegn HK.

 


En hvernig finnst Kára byrjunin á tímabilinu hafa verið hjá Haukum án hans ?
 - Mér hefur fundist þetta gengið eins og vel smurður togari. Glæsilegt hvað við höfum náð að spila fína vörn og erum að stilla strengina í sókninni. Einnig er gaman að sjá þessa breidd sem við höfum sem enginn bjóst við.

 


En það hlýtur að vera erfitt að þurfa horfa á leikina úr stúkunni og fá ekkert að spila ?
 -
Jú, það er alltaf jafn erfitt að horfa á.

Við þökkum Kára Kristjáni kærlega fyrir þetta og vonandi að þetta hafi náð að fræða handboltaunendur sem ekki höfðu hugmynd hvað var að angra Kára til að iðka handknattleik

- Arnar Daði Arnarsson skrifar

Hver er þessi Jón Bassi?

Var að skoða textavarpið á síðu 305 þar sem fjallað var um leik okkar á móti Akureyri. Þar kemur fram að Jón Bassi hafi sett alls 17 mörk fyrir Hauka. Hver skrifar þessar fréttir á textavarpið, þetta hlýtur að vera eitthvað grín hjá starfsmanni!!

"Þá skoruðu Haukar fimm mörk í röð án þess að lið Akureyrar næði að svara fyrir sig og unnu að lokum fimm marka sigur. Jón Bassi skoraði flesta mörk Hauka, eða 17 alls. Goran Gusic var atkvæðamestur Akureyringa með sex mörk." 

Tekið beint af textavarp.is

    


Haukar 27 - Akureyri 22 í N1-deildinni

Þá er toppsætið okkar eftir góðan sigur gegn Akureyri fyrir norðan. Leikurinn byrjaði vel fyrir okkur nullog komust við í 2-0. En við héldum ekki nógu vel á okkar málum og þeir komust inn í leikinn eftir að við klúðruðum að komast í 4-0 en í staðinn komust norðanmenn yfir 4-2. Leikur okkar var ekki nógu góður og var það Gísli Guðmunds sem hélt okkur á floti á kafla með góðri markvörslu. Í hálfleik var staðan 10-11 fyrir okkur. Í seinnihálfleik byrjuðum við illa. Aron Rafn markmaður kom inná og stóð sig ágætlega. Jafnt var á öllum tölum þangað til Akureyri komst í 18-16 en þá komu við til baka og komust yfir 22-23. Á þessum tímapunkti settum við í fluggírinn og unnum nokkuð örugglega 22-27 en þess má geta að síðustu 4 mörkin komu á síðustu 1 1/2 mínútunni. Andri Stefan var með góðan leik ásamt Halldóri, Gísla var mjög öflugur í fyrrihálfleik og Aron Rafn kom stekur inn þegar á þurfti.

Markaskor í leiknum var á þessa leið:

Andri Stefan 6/8, Halldór 6/7 þar af 4 víti, Freyr 3/5, Jón Karl 3/6, Beggi 2/4, Arnar Jón 2/5, Gunnar Berg 2/5, Pétur 2/4 og Þröstur 1/2.

Gísli varði 8 og Aron Rafn 4.

Næsti leikur er í bikar á mánudag gegn Val 2 að Hlíðarenda. Svo er það Stjarnan sunnudaginn eftir en sá leikur verður í beinni á RUV.

FB


Samúel Ívar sökkti Drammen

sammiJá hann Samúel Ívar Árnason er að spila í Noregi þetta tímabil eftir að hafa spilað með Haukunum síðustu 2 árin. Í kvöld spiluðu hann og félagar hans gegn Drammen sem hafa verið taplausir síðan í mars 2006 og þeir voru búnir að vinna 30 leiki í röð...., þangað til í kvöld. Sammi og félagar í Elverum gerðu sér lítið fyrir og unnu þá örugglega með 6 marka mun. Samúel átti stórleik og fór hamförum, stal einhverjum 7 boltum og setti 5 mörk. Lokastaðan í leiknum var 29-23 fyrir Elverum. Við strákarnir í Haukunum óskum Samma og félögum sérstaklega til hamingju með þennan glæsta sigur.

Sjálfur sagðist hann hafa tekið "Freysa" á þetta í leiknum. Sem er alltaf vænlegt til árangurs. Cool

 

KV. FB


Síðasti dagur til að borga

Jæja drengir nú er komið að skuldadögum. Síðasti sjéns til að borga er 23:59:59. Hörður Davíð kemur svo með útprentun á því hverjir eru búnir að borga og hverjir klikkuðu og þar með þurfa að borga 500 kr í sekt fyrir það.

Andri Stefan 400
Arnar Pétursson 1400
Arnar Jón Agnarss. 2300
Aron sláni mark 1000
Magnús Sigmunds                   0
Gunnar Berg Viktors 1100
Freyr Brynjarsson 1700
Gísli Guðmundsson 700
Gísli Jón Þórisson 2400
Halldór Ingólfsson 4100
Jón Karl Björnsson 700
Tóti sláni skytta 1200
Kristján örvh.horn 2800
Kári Kristjánsson 1400
Pétur Pálsson 2800
Sigurbergur Sveins 2300
Þröstur Þráinsson 900
Finnbogi 1000

kt: 291164 - 5799     Rnr: 1101 - 05 - 420393

Þið fáið frest til miðnætis 2.okt til að borga.  

3.október leggst 500 kr í vanskilakostnað og svo annar 500 kr 10.október.

Munið að þeir sem vilja efast um sektir sínar og láta fara aftur yfir sektirnar þá kostar það 500 kr.

Kv. FB


Dregið í bikar: Valur - Haukar

   

Valurinn  VS   null

Nú í kvöld var dregið í SS-bikar karla og kvenna. Við haukamenn fengum Val 2. Ég er ekki alveg að átta mig á því hverjir það eru sem spila fyrir Val 2 en Valur er með 3 lið í keppninni. Meistaraflokkurinn situr hjá sem Íslandsmeistara og Stjarnan sem bikarmeistarar. Annað hvort er þetta Hraðlestinn fræga eða leikmenn úr 2.flokk. Á eftir að athuga þetta mál betur og kem þá með nánari lýsingu á þeirra liði. Það verður gaman að spila að Hlíðarenda aftur. Leikurinn fer fram næstkomandi sunnudag eða mánudag.


Beggi reddaði 1 stigi

Í kvöld fór fram háspennuleikur í Safamýrinni gegn Fram. Jafnt var nánast á öllum tölum. Í hálfleik náðum við að hafa eins marks forustu 14-13 fyrir okkur Haukamenn. Í seinni hálfleik byrjuðum við einum færri og svo studdu síðar var Andri rekin útaf og við tveimur færri. En við náðum að skora 2 Sigurbergur Sveinssonmörk tveimur færri sem þeir reyndar náðu líka að gera. Jafnt var á öllum tölum þangað til um 7 mín voru eftir en þá náðu Framarar 3 marka forustu. En við haukamenn gáfumst ekki upp og náðum að saxa á þetta. Þegar um 45 sek voru eftir fékk Dóri dauðafæri en markmaður þeirra varði og fram komst í sókn. Maggi varði skot frá Andra Berg þegar um 10 sek voru til leiksloka og Andri Berg fékk 2 mín fyrir að sparka í boltann, við brunuðum upp og Beggi fékk boltann í skyttunni og vippaði sér upp og hamraði hann í fjær hornið niðri og um leið rann tíminn út. Jafntefli staðreynd í hörkuleik.

Gaman var að sjá að áhorfendur létu sig ekki vanta og voru duglega margir haukastuðningsmenn mættir að styðja okkur og viljum við þakka þeim sérstaklega fyrir mætinguna. Næsti leikur er gegn Akureyri eftir viku fyrir norðan.

Markaskor liðsins var á þessa leið:Beggi 5/7, Halldór 5/7, Jón Karl 4/7, Freyr 3/4, Gísli Jón 3/4, Gunnar Berg 3/7, Arnar Péturs 2/3, Andri Stefan 2/5, Arnar Jón 1/2, Þröstur 1/2

Maggi varðir samkvæmt Herði 13 en 15 samkvæmt sport.is (gefum honum 15 varðir) Gísli Guðmunds var með 1 varinn.


Fram - Haukar :Frítt inn í kvöld

Það er staðfest að FL Group ætlar að bjóða frítt inn á leikinn í kvöld sem fram fer í Safamýrinni. Nú er um að gera láta sjá sig. 

Framarar eru með frábæra umfjöllun  um þennan leik á heimasíðu sinni. Þið getið nálgast það hér 

 


Nú fer að líða stórviðburðinum að Ásvöllum

Eftir 2 daga mætir stórhljómsveit Stefáns Hilmarssonar sem saman stendur af Jagúarbræðrunum. Svo koma eins og fyrr segir Björn Jörundur, Eyfi og Birgitta Haukdal. Stefnt er að því að fylla Ásvelli á laugardaginn. Nú er ekki seinna vænna að fá sér miða. Hægt er að panta miða á freyrbrynjarsson@internet.is

jaguar


Fram - Haukar í kvöld kl.20

Í kvöld förum við haukamenn í Safamýrina að taka á frömmurum. Bæði lið eru með 4 stig og eru þar af leiðandi ósigruð. Haukamenn koma til með að selja sig dýrt í kvöld og ekkert annað en sigur kemur til greina. Allir eru heilir hjá okkur nema Kári sem er enn að jafna sig á fótbroti. Hann verður vonandi tilbúin í næsta mánuði.

Nú er bara fyrir haukafólk að mæta og styðja haukamenn til sigurs í þessum svokallaða 4 stiga leik.

Endilega komið með spádóma í tölum undir athugasemdir. Sá sem giskar á rétt úrslit fær frítt á næsta heimaleik Hauka.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband