Færsluflokkur: Íþróttir

Bikardráttur

Í dag var dregið í bikarkeppni HSÍ og Eimskip og þar drógumst við haukamenn gegn ÍR2 og fer sá leikur fram á heimavelli þeirra ÍR-inga. Þetta eru væntanlega bumburnar í ÍR og verður bara gaman að takast á við þá. Leikurinn fer fram á sunnudag eða mánudag. 

Af öðrum leikjum þá verður án efa hörkuleikur hjá Stjörnunni og HK en þar mætast tvo sterk lið. Spái að HK vinni þann leik. Einnig er Fram - Afturelding athyglisverður en held samt að Fram fari með sigur á hólmi þar. Svo má ekki gleyma stórleik umferðarinnar en Bumburnar í Haukum fá Íslandsmeistarana í heimsókn. Ég held að það verði hörkuleikur fyrstu 11-15 mín og svo dregst aðeins í sundur með liðunum. Held samt að ef Óskar Ármanns verði með þá mega Valsmenn passa sig. 


mbl.is Bikarmeistarar Stjörnunnar fá HK í heimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beggi á landsliðsæfingu í kvöld + statistik í eldri - yngri

Sigurbergur SveinssonÍ kvöld mætti Beggi á æfingu en fór fljótlega því Alfreð landsliðþjálfari hringdi í Aron og vildi fá Begga á æfingu með landsliðinu. Alfreð vildi eitthvað skoða stráksa. Gott mál það og vert að óska Begga "Lagerstjóra" til hamingju með þetta. Þetta er bara fyrsta skrefið í landsliðsferlinum hjá þessari ungu skyttu.

 

 

 

P.s. Ungir unnu sinn fyrsta sigur á í fótboltanum í dag hér á landi, og er einnig vert að óska þeim til hamingju með það. Þeir höfðu unnu einn leik í æfingaferðinni í Danmörku.

Staðan í vetur er því 12 - 2 fyrir eldri. Einu sinni hefur farið jafntefli og er markatalan 73-53 fyrir eldri.


Andri Stefan í landsliðið.

Andri StefanJá hann Andri vinur almúgans var í dag valinn í A-landslið karla, já karlaliðið. Drengurinn er búin að vera vaxandi í undanförnum leikjum og var okkar besti maður gegn Stjörnunni. Við strákarnir óskum honum innilega með þetta en vonum um leið að þetta stigi honum ekki til höfuðs og að hann hætti að tala við okkur strákana.

Nokkrar óþarfa upplýsingar um Andra Stefan:

Andri býr ásamt kærustu sinni í firðinu.

Andri er ekki mjög loðinn á bringunni

Andri spilar alltaf í rauðum sokkum

Andri vinnur í verðbréfagreiningu hjá kaupthing (ZZZZZZZZ)

Andri er einlægur aðdáandi OC þáttana og kann þá utanað.

 


Öruggur sigur gegn Aftureldingu

arnarjonSigur vannst í kvöld gegn Aftureldingu. Við vorum seinir í gang og köstuðum boltanum frá okkur allt of oft. en svo tóku við á þeim í vörninni og vorum yfir 15-12 í hálfleik. Í seinni hálfleik var þetta í raun aldrei í hættu, þeir fengu tækifæri til að minnka þetta niður í 3 mörk  klúðruðu því skemmtilega. Loka staða 30-23 fyrir okkur og efsta sætið okkar í bili. Leikurinn einkenndist af hörku og oft grófum leik aðalega frá leikmönnum Aftureldingar ásamt því að dómarar leiksins voru ekki að höndla þetta verkefni. Legg til að þeir fari á námskeið um hvaða blokkeringar hjá línumönnum eru leyfilegar og hverjar ekki. Línumaðurinn hjá Aftureldingu var ótrúlega oft með fáranlegar blokkeringar og var aðeins dæmt einu sinni á hann. Veiðimaðurinn Arnar Jón var okkar atkvæðamesti í kvöld.

Markahæstu menn í kvöld voru: Arnar Jón 7/11, Andri Stefan 5/9,Freyr 4/7, Jón Karl 4/7, .

 


mbl.is Haukar efstir eftir sigur í Mosfellsbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afturelding - Haukar í kvöld kl.20

Í kvöld verður farið í Mosó og mætum við haukamenn liðsmönnum aftureldingar. Afturelding hefur byrjað mótið ágætlega en þeir eru unnu Valsmenn á útivelli og stóðu vel í Fram núna um daginn. Við vitum mæta vel að ef við ætlum okkur eitthvað í vetur þá verðum við að klára lið eins og aftureldingu. Þeir eru með fínan mannskap og þurfum við toppleik ef ekki á að fara illa. Held meiri að segja að við höfum ekki unnið Aftureldingu í Mosó í einhver ár. Töpuðum fyrir þeim 2004-2005 og svo aftur 2005-2006. Þeir voru ekki í úrvalsdeildinni í fyrra. Þegar við töpuðum fyrir þeim 2005-2006 þá var sá leikur sýndur í sjónvarpinu og í raun töpuðum við Íslandsmeistaratitlinum fyrir Fram með því að tapa þessum leik. Það sýnir sig bara allir leikir skipta máli og við komu örugglega til með að mæta tilbúnir til leiks. 

Fyrsta tapið staðreynd

Já fyrsta tapið er staðreynd eftir afleitan leik gegn Stjörnunni í dag. Við byrjuðum vel og komust í góða forustu 4-1 en þá tóku Stjörnumenn leikhlé. Eftir það fóru þeir í gang og við klúðruðum dauðafærum. Áður en við vissum af þá var staðan orðin 6-7 og svo 8-11 og í hálfleik var staðan 15-19 fyrir þá. Í seinni hálfleik byrjuðum við afleitlega og þeir skoruðu 3 fyrstu mörkin og við komnir 7 mörkum á eftir. Mest náðu þeir 9 marka mun en loka staðan var 30-37. Vörn og markvarsla var mjög slök og algjörlega óásættanlegt að fá á sig 37 mörk. Í hinum leikjunum skoruðu mótherjar okkar undir 25 mörkum. Næsti leikur er gegn Aftureldingu og það er möst winn leikur. Leikurinn verður í Mosó á föstudaginn næsta.

Markahæstu menn hjá okkur voru: Andri Stefan 9/15, Jón Karl 7/11, Gísli Jón 4/6, Freyr 3/4, Arnar P 2/2, Beggi 2/5, Arnar Jón 1/4, Halldór 1/4, Þröstur 1/4.

Gísli varði 6 og Maggi 5.


Haukar - Stjarnan í dag kl.16 í N1-deild karla

 

null    VS     Stjarnan

Þá er komið að enn einum stórleiknum og að þessu sinni mæta stjörnumenn að Ásvelli. Þetta verður án efa hörkuleikur. Bæði lið eru í efri hluta deildarinnar, stjarnan með eitt tap gegn Fram og við með eitt jafntefli gegn Fram. Hjá okkur er Kári enn frá vegna meiðsla og hjá Stjörnunni er Patti frá vegna meiðsla. Leikurinn hefst kl. 16 og verður sýndur á RÚV. Eitthvað húlumhæ verður í hálfleik þar sem bæjastjórarnir í Hafnafirði og Garðabæ keppa í vítakeppni ásamt því að nýja haukalagið verður frumflutt. Með sigri í þessum leik komust við í efsta sætið aftur en þar viljum við einmitt vera. Nú er bara að mæta í rauðu og öskra Áfram Haukar.


Sambíóin halda með Haukum

atropíaÍ kvöld fórum við haukamenn í bíó á myndina Astrópía í boði Sambíómanna. Farið var í bíóið að Álfabakka kl. 18 og mættu þó nokkrir en alls ekki allir. Konum var boðið með og var þessi mynd hin mesta skemmtun, þó svo að mér persónulega finnist alltaf skrítið að fara á íslenskar myndir. Við haukamenn þökkum Sambíóunu kærlega fyrir boðið, vonandi verður okkur aftur boðið seinna.

 

Kv. FB


Sigur í bikar

Pétur PálssonÞá erum við komnir áfram í bikarnum og því 16 - liða úrslit næst. Sigur vannst nokkuð örugglega gegn Val 2 sem samanstóð af ungum og upprennandi Valsmönnum + Jóa Lange í markinu.joilange Ég ætla ekki að segja að Jói Lange sé ungur né upprennandi en hann varði nokkrar tuðrur og voru það helst Andri Stefan og Arnar Jón sem fóru illa að ráði sínu gegn Jóa. Markahæstu menn okkar voru Pétur"Hulk" og Tóti "Strá". Pétur setti 8/8 og Tóti 6/7 en þess má geta að Tóti spilaði aðeins seinnihálfleikinn en Pétur allan leikinn. Aðrir skoruðu líka en það var bara einn leikmaður sem ekki skoraði og það var Halldór Ingólfsson (hann er að spara mörkin fyrir úrslitaleikinn).

P.s. ekki held ég að Aron þjálfi verði ánægður með myndina sem er af honum á mbl.is, eitthvað útþaninn þarna á myndinni og með kennarakrika.Sick

 Næsti leikur er gegn Stjörnunni að Ásvöllum. Allir að mæta í rauðu.


mbl.is Þróttur í Vogum lagði nafna sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valur 2 vs Haukar í SS-bikar

Í kvöld förum við haukamenn að Hlíðarenda og spilum við Val 2 í SS-bikarkeppni HSÍ. Leikurinn hefst kl. 20. Eftir því sem ég best veit eru þetta strákar úr 2.flokki og þeir leikmenn sem ekki hafa verið í náðinni hjá meistarflokknum. Annars förum við blint í sjóinn og það verður bara koma í ljós hverjir koma til með að manna þetta lið hjá Val. Án efa eru þetta efnilegir drengir þar á ferð. Hjá okkur eru allir heilir og Maggi komin aftur eftir viku veikindi, en hann missti af síðasta leik. Kári verður ekki klár í slaginn fyrr en eftir 2 vikur.

Næsti leikur hjá okkur verður svo gegn Stjörnunni að Ásvöllum og verður það hörkuleikur. Ég held að sá leikur verði einn af leikjum ársins þar sem boðið verður frítt inn á. Það kemur í ljós seinna í vikunni.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband