Færsluflokkur: Íþróttir
3.12.2008 | 13:32
4 úr Haukunum í liði umferðarinnar
Í dag var valið í lið umferðarinnar fyrir fyrstu 7 umferðirnar. Hjá okkur strákunum var Kári Kristján valinn.
Þetta þýðir að Kári skuldar öllum í liðinu einn kaldann!!! Vorum við ekki búnir að ákveða það? Mig minni það endilega.
Hjá stúlkunum voru það Hanna Guðrún í hægra hornið, Nína B á línuna og Ramune P í vinstri skyttu. Hanna var svo valinn besti leikmaðurinn og Díana besti þjálfarinn.
Við óskum þeim til hamingju með þessar viðurkenningu.
Þið stelpur megið svo rífast um af hverjum þessi mynd er.
![]() |
Hafnfirðingarnir Aron og Hanna Guðrún best |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2008 | 15:08
Sektir + staðan í ungir vs gamlir í fótbolta.
Núna ættu allir að vera búnir að fá sendan póst með upplýsingum um sektarstöðu hvers og eins í liðinu. Vinsamlegast borgið sem fyrst.
Síðan í ágúst höfum við í liðinu spilað þó nokkuð af fótboltaleikjum þar sem skipt er í lið eftir aldri. Ungir komu á óvart og voru aðeins 4 sigrum á eftir eldri í byrjun október, en staðan þá var 12-8 fyrir eldri. Það var þarna sem eldri tóku sig á og unnu hvern leikinn á fætur öðrum. Staðan í dag er 24-10, en eldri unnu 12 leiki í röð áður en yngri náðu sigri. Þeir yngri mega eiga það að þeir eru sterkari á útivelli en heimavelli. Þeir unnu núna síðustu tvo leikinna þegar við vorum í Ungverjalandi. Baráttan heldur áfram og spurningin er: Ná ungir að hrista sig saman? Persónulega hef ég enga trú á því.
Mynd: Þegar Birkir Ívar meiddi Kára Kristján um daginn.
FB
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2008 | 10:41
Haukar vs Nordhorn
Við drógumst gegn Nordhorn í evrópukeppni bikarhafa í 16 - liða úrslitum.
Við eigum fyrri leikinn á heimavelli en leikirnir eiga að fara fram 14.-15. febrúar og 21./22. febrúar.
Nordhorn er í sjötta sæti þýsku 1. deildarinnar en liðið hefur unnið 8 leiki í deildinni á tímabilinu, tapað 4 og gert 1 jafntefli.
Þjálfari liðsins er Svíinn Ola Lindgren og meðal leikmanna í liðinu er sænski landsliðsmarkvörðurinn Peter Gentzel og þýski landsliðsmaðurinn Holger Glandorf, ein besta örvhenta skyttan í heiminum í dag.
Drátturinn varð þessi:
Haukar - Nordhorn
Kadetten - Hammarby
Tatran Presov - Contanta
Dunaferr - Pick Szeged
Koling - Amicita Zürich
Bosna Sarajevo - Volgograd
Steaua Búkarest - Valladolid
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2008 | 15:34
Sigurbergur í landsliðið
Haukamaðurinn og liðsfélagi okkar hann Sigurbergur Sveinsson hefur verið valinn í A- landsliðshópinn sem mætir Þýskalandi 28-30. nóvember. Við strákarnir óskum honum innilega til hamingju.
Fyrir eru haukamennirnir Vignir Svavarsson og Þórir Ólafsson. Ásgeir Örn Hallgrímsson er meiddur og getur því ekki tekið þátt í verkefninu.
Við hinir í liðinu gáfum bara ekki kost á okkur að þessu sinni.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2008 | 17:11
Evrópukeppni bikarhafa
Nú er meistaradeildinni lokið hjá okkur og þá tekur við næsta keppni, þar sem við höfnuðum í 3.sæti fáum við sæti í Cup winners Cup. Þær þjóðir sem við getum mætt eru eftirfarandi:
Frakkland - Paris Handball
Þýskaland - HSG Nordhorn
Danmörk - KIF Kolding Elite A/S
Rússland - HC "Kaustik" Volgograd
Makkedónía - HC Vardar PRO - Skopje
Spánn - Pevafersa Valladolid
Ungverjaland - Dunaferr SE eða PLER KC
Rúmenía - HCM Constanta
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2008 | 19:15
3.sætið staðreynd
það var rugl stemmning í Veszprém höllinni í dag. 5100 manns troðfylltu þessa frábæra höll og létu svo sannalega heyra í sér allan tímann. Maður er enn með suð í eyrunum. Það var seinkun á leiknum þar sem þeir létu okkur bíða í röð á meðan Veszprém lagið var látið hljóma. Við þurftum örugglega að bíða í öðru horninu í einhverjar 5 mínútur. Þetta er eins og við myndum láta Haukalagið hljóma og Diddi væri inná að æsa áhorfendur upp, þvílíkt rugl. Eftir lagið kom meistaradeildarlagið og svo loksins fengu liðin að fara inná. Þetta er ekki búið, þegar búið var lesa leikmenn upp og allir búnir að heilsast þá fórum við í hringinn okkar og öskruðum okkur saman og við héldum að leikurinn væri bara að byrja innana 1 mínútu. En nei þá stóðu allir upp og leikmenn Veszprém stóðu í átt að aðalaáhorfendastúkunni og þá byrjaði þjóðsöngur Ungverjar. Maður vissi eiginlega ekki hvað gekk á og við vissum ekki hvort við ættum að standa kyrrir eða hvað.
Jæja loksins byrjar leikurinn og þeir byrjar aðeins betur en við héldum í þá. Við byrjuðum í 3-2-1 vörn en fórum svo niður í 6-0 vörn eftir 12 mín. Í stöðunni 8-7 fóru þeir svo í 16-11 og þar við stóð í hálfleik. Í seinni hálfleiknum héldum við í þá og spiluðum bara vel framanaf. En svo þegar um 5 mín voru eftir og þeir 4 mörkum yfir gerðum við nokkur afdrifarík misstök sem þeir nýttu sér og lokatölur urðu svo 34-25. En eðlilegt hefði verið að tapa þessum leik með minnst 6 mörkum. Þeir voru mjög ánægðir með sinn leik og voru að spila mjög vel með vinstri skyttuna Perez fremstan í flokki ásamt að markmaður þeirra varði marga góða bolta. Hjá okkur var Elías öflugur og setti 5 mörk úr 6 skotum.
Markaskor: Elli 5, Beggi 4, Kári 4, Andri 4,Einar 3, Freyr 2, Pétur 2, Gunnar 1
Lokastaðan í riðlinum er að Flensborg vann, en þeir unnu ZTR Zaporozhye í dag með einu í Úkraínu.
Flensborg 10 stig
Veszprém 8 stig
Haukar 4 stig
Zaporozhye 2 stig.
Við spilum í evrópukeppni bikarhafa og verður dregið næstkomandi þriðjudag. Spilað verður svo í febrúar.
Markahæstu menn Hauka í meistaradeildinni:
Freyr Brynjarsson 25 mörk
Kári Kristján Kristjánsson 25 mörk
Sigurbergur Sveinsson (25 mörk)
Andri Stefan Guðrúnarson 21 mörk
Elías Már Halldórsson 13 mörk
Gunnar Berg Viktorsson 13 mörk
Einar Örn Jónsson 10 mörk
Pétur Pálsson 7 mörk
Gísli Jón Þórisson 4 mörk
Stefán Sigurmannsson 3 mörk
Arnar Jón Agnarsson 1 mark
Arnar Pétursson 1 mark
![]() |
Aron: Slakur lokasprettur hjá okkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt 25.11.2008 kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.11.2008 | 21:04
Veszprém - Dagur 2
Í dag fengu menn að sofa út en morgunmatur var ekki fyrr enn 9:30. Eftir morgunmat var farið í skoðunarferð að vatni einu hér rétt hjá sem er einn vinsælasti ferðamannastaður hér í Ungverjaland. Kl. 17:30 var svo farið á æfingu í Veszprém Arena.
Þegar heim var komið farið í mat en menn voru mjög spenntir fyrir matnum, en búið var að gefa upp að það biði okkar piparsteik. En sú steik sem boðið var uppá var ekki piparsteik og sumir fengu vægast sagt seiga bita og það hefði verið betra að borða skósóla. En ísinn klikkaði ekki í eftirmatnum.
Núna eru menn að spila "Bling" en það er leikur þar sem tvö lið hlusta á tóndæmi og eiga að svara um flytjanda og lagaheiti. Keppt er uppí 20 stig og þarf að vinna 2 umferðir. Keppendur í kvöld eru Gísli G og Andri Stefan með liðsnafnið The Assassins og Arnar P og Einar með liðsnafnið Elítan. Úrslit urðu þannig að The Assassins unnu 20-14 og 21-19.
Einnig hafa nokkrir leikmenn reynt fyrir sér í leiknum maze en þar er reynt á þolinmæði og nákvæmni keppenda. Fáir hafa náð yfir 4 borð og skora ég á ykkur að prófa þennan leik og látið mig vita ef þið komist yfir 4 borð, því þá eru þið snillingar. Linkurinn er HÉR.
Maður kvöldsins: Aron Kristjánsson fyrir frábær viðbrögð gagnvart maze leiknum.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.11.2008 | 13:46
Bravó - Tilhlökkun
![]() |
Hafnarfjarðarslagur í 8-liða úrslitum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.11.2008 | 22:36
Veszprém - dagur 1
Þá erum við mættir til Veszprém eftir 12 tíma ferðalag. Það er óhætt að segja að þetta ferðalag var mun léttara eftir að sigur vannst á Akureyri í gærkvöldi. Við flugum fyrst til Amsterdam og biðum þar í um 2 tíma. Þaðan flugum við til Búdapest og þar beið okkar rúta sem flutti okkur til Veszprém. Sú rútuferð tók 2 tíma.
Hótelið heitir Betekints Hotels og er mjög flott 4 stjörnu hótel. Þegar við mættum á svæðið tjékkuðum við okkur inn og fórum svo beint á æfingu í Veszprém Arena. Það er hrikalega flottur salur og það er búist við fullu húsi sem er yfir 5000 manns. Morgundagurinn er planaður og er planað að fara í smá skoðunarferð að vatni hér rétt hjá en það er einn vinsælasti ferðamannastaður í Ungverjalandi. Förum svo á æfingu um kvöldið.
Kv. Freyr B
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2008 | 23:39
Upprúllun á Akureyri
Það var skemmtilegt ferðalag þegar við haukamenn fóru í heimsókn
norður. Við ætluðum okkur að sýna okkar styrk og það gerðum við svo sannalega með öruggum sigri á toppliði deildarinnar með 12 mörkum. Leikurinn var jafn framanaf en í stöðunni 9-7 settum við í næsta gír og komust í 15-10 áður en flautað var til hálfleiks. Í seinni hálfleik héldum við uppteknum hætti og gjörsamlega gengum frá heimamönnum sem sáu aldrei til sólar. Vörnin var frábær með þá Gunnar og Adda P fremsta í flokki. En klárlega sigur liðsheildarinnar. Nú erum við mættir!!!!
Einn áhorfandi sá sig knúna til að öskra á okkur þegar við vorum á leið inn í klefa eftir leik "Haukar, þið eruð ekki þreyttir núna". Átti hún eflaust við að við erum búnir að vera í ströngu prógrammi og freistuðum þess að fá þessum leik frestað vegna þess að við erum að fara í ferðalag til Ungverjarlands á eftir. Förum í flug kl. 7:30 í fyrramálið, flugum fyrst til Amsterdam og þaðan til Búdapest. Einnig voru stjórnarmenn hjá Akureyri brjálaðir yfir fréttagrein þar sem kemur fram að Aron þjálfari átti að hafa sagt "ólöglegir" en hann sagði "óliðlegir" en fréttamaðurinn fór frjálslega með orðið og til að mynda tekur handbolti.is viðtal við Rúnar og spyr hann einmitt út í þessa frétt.
En flottur leikur hjá okkur og næst er það Veszprém og "þegar" við vinnum þann leik erum við komnir áfram í 16 liða úrslit meistaradeildarinnar!!!! :)
Flottasta mark leiksins hefur verið kosið af dómnefnd og er það klárlega markið hans Adda P sem hann setti úr skyttunni. Hans fyrsta mark í vetur. Til hamingju Addi það bíður þín ein malt upp á flugvelli í fyrramálið.
Markaskor: Kári 7, Andri 7,Beggi 6, Einar 6, Freyr 3, Elli 2, Stebbi 2 og Arnar Pétursson 1.
Birkir varði 12 bolta og Gísli 7.
![]() |
Toppliðið steinlá fyrir meisturunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar