27.9.2007 | 09:45
Nú fer að líða stórviðburðinum að Ásvöllum
Eftir 2 daga mætir stórhljómsveit Stefáns Hilmarssonar sem saman stendur af Jagúarbræðrunum. Svo koma eins og fyrr segir Björn Jörundur, Eyfi og Birgitta Haukdal. Stefnt er að því að fylla Ásvelli á laugardaginn. Nú er ekki seinna vænna að fá sér miða. Hægt er að panta miða á freyrbrynjarsson@internet.is
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.9.2007 | 07:59
Fram - Haukar í kvöld kl.20
Í kvöld förum við haukamenn í Safamýrina að taka á frömmurum. Bæði lið eru með 4 stig og eru þar af leiðandi ósigruð. Haukamenn koma til með að selja sig dýrt í kvöld og ekkert annað en sigur kemur til greina. Allir eru heilir hjá okkur nema Kári sem er enn að jafna sig á fótbroti. Hann verður vonandi tilbúin í næsta mánuði.
Nú er bara fyrir haukafólk að mæta og styðja haukamenn til sigurs í þessum svokallaða 4 stiga leik.
Endilega komið með spádóma í tölum undir athugasemdir. Sá sem giskar á rétt úrslit fær frítt á næsta heimaleik Hauka.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2007 | 14:24
Svaka ball næsta laugardag með Stefáni Hilmarssyni og co.
Eins og ég var búin að ræða hér aðeins fyrir helgi þá er Stefán Hilmarsson ásamt Eyfa, Birni Jörundi og Birgittu Haukdal með svak ball að Ásvöllum næsta laugardag. Við Haukamenn erum að dreifa miðum í sölu og um að gera að vera öruggur með miða og hafa samband við okkur. Hægt er að senda línu á mig freyrbrynjarsson@internet.is eða hringt í mig í síma 6984349 og ég redda ykkur miða á þennan einstaka viðburð.
P.s. Lokahóf fótboltans er fyrr um kvöldið þannig að þeir bæta ferskir/ferskar á svæðið.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.9.2007 | 18:11
84% karlar 16% konur
Samkvæmt nýjustu skoðanakönnuninni þá eru mikið fleiri karlar sem skoða þessa síðu en konur. Það voru 37 sem kusu og þar af eru 31 karlmaður og aðeins 6 konur.
Í nýju skoðanakönnuninni þá er spurt "Með hvaða liði heldurðu í enska boltanum?"
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2007 | 09:35
ÍBV burstaðir að Ásvöllum
Í dag komu ÍBV í heimsókn að Ásvelli og þeir byrjuðu betur með 2 fyrstu mörkunum. Við skoruðum síðan 4 næstu mörk og vorum yfir eftir það. Mikil harka var í fyrri hálfleik og var þar Sigurður Bragason hjá ÍBV fremstur í flokki. Hann átti að vera farinn útaf með rautt spjald í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 15-12. Í seinni hálfleik fóru við á kostum og ÍBV sprungu á limminu og áttu ekki möguleika. Lokastaða var svo 37-21 og hefði getað orðið meiri.
Markahæstir hjá okkur voru: Freyr 9/12, Arnar Jón 6/8, Beggi 3/7, Þröstur 3/5, Gunnar Berg 3/5, Jón Karl 3/6, Gísli Jón 2/4, Arnar P 2/2, Andri Stefan 2/2, Pétur Páls 2/3, Halldór 1/1, Tóti1/1
Gísli Guðmundsson varði 16 bolta
Næsti leikur er gegn Fram á fimmtudaginn næsta á útivelli.
![]() |
Haukar burstuðu Eyjamenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.9.2007 | 10:55
Haukar-ÍBV + dagur yngri flokka
Í dag kl. 16 fer fram fyrsti heimaleikur okkar Haukamanna og verður það gegn ÍBV. ÍBV átti góðan leik í fyrstu umferð gegn Fram og voru óheppnir að tapa þeim leik. Við haukamenn verðum að ná toppleik gegn baráttumiklum eyjamönnum. En við haukamenn eigum nokkara eyjapeyja í okkar liði þannig að þetta verður án efa hörkuleikur. Í dag áður en leikur hefst verður dagurinn helgaður yngri flokkum félagsins og byrjar dagskráin kl. 15 að Ásvöllum. Öllum börnum undir 16 ára er boðið frítt inn á leikinn og því um að gera að mæta í rauðu.
Hér fyrir neðan erum myndir af eyja-peyjunum í Haukum
Þeir eru: Arnar Jón, Kári Kristján, Arnar Pétursson og Gunnar Berg
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2007 | 22:05
Viltu miða á Stebba Hilm, Eyfa, Björn Jörund og Birgittu Haukdal?
Laugardaginn 29.sept verða tónleikar í íþróttahúsi Hauka að Ásvöllum. Þar heldur uppi fjörinu Stórhljómsveit Stefáns Hilmars ásamt Eyfa, Birni Jörundi og Birgittu Haukdal.
Ef þú vilt fara þá erum við í meistaraflokki karla að selja miða á þennan stórviðburð. Ef þú vilt kaupa miða þá er bara hafa samband við mig á veffanginu freyrbrynjarsson@internet.is einnig er hægt að hringja í síma 6984349.
Húsið opnar kl. 23 og er opið til 4. Miðaverð er 1900 kr.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2007 | 21:32
Fjáraflanir, þolpróf og sektir
Undanfarna daga höfum við Haukamenn verið að leggja náttúrutorf sem er í raun bara mosi og krækiberjalyng. Á síðustu árum hafa haukarnir fjármagnað sínar ferðir þ.e.a.s. æfinga- og evrópuferðir. Hingað til hefur þetta verið venjulegt gras en núna er það duglegt svæði sem á að þekja með náttúrutorfi. Á laugardaginn síðasta byrjuðum við en þá var ömurlegt veður og þegar við sáum árangurinn í góðu veðri eins og í gær varð aðkoman hræðileg, allt svæðið sem tekið var á laugardag og sunnudag var vægast sagt slæmt. Við fórum í gær að tyrfa í staðinn fyrir æfingu en lyftum sjálfir fyrr um daginn. Þurfum að fara aftur á sunnudaginn til að klára.
Á mánudaginn var tekið 3 yoyo - testið í vetur. Yo yo test er hraðari útgáfa af Píp-testi. Hlaupa þarf 20 metra fram og til baka á duglegum hraða, það er alltaf 10 sek pása á milli spretta en því hærra sem maður nær því styttri tíma hefurðu til að klára sprettinn fram og til baka en pásan er alltaf 10 sek. Í fyrsta skiptið sem þetta próf var tekið í júlí náðist lélegur árangur en þá náðu örfáir yfir level 20. Freyr og Þröstur voru þeir einu sem náði yfir 20 þá. Í næsta skiptið sem þetta var tekið bættu sig flestir og hæstir voru Freyr með 21,5 og Þröstur 21,4. Núna í þriðja skiptið sem þetta var tekið bættu sig allir eitthvað. Og núna voru hæstu menn Andri með 22,5 - Beggi 22,1 - Þröstur 22,6 og Freyr 22,7. Þetta eru þeir sem eru í besta forminu í liðinu.
Sektarsjóðurinn er búin að taka saman sektir fyrir ágúst + ferðina til danmerkur eins og menn sáu upp í klefa og þurfa að borga inná reikning sem er hér:
kt: 291164 - 5799 Rnr: 1101 - 05 - 420393
Þið fáið frest til miðnætis 2.okt til að borga.
3.október leggst 500 kr í vanskilakostnað og svo annar 500 kr 10.október.
Munið að þeir sem vilja efast um sektir sínar og láta fara aftur yfir sektirnar þá kostar það 500 kr.
Kv. FB
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.9.2007 | 22:51
Varnasigur gegn Val
Já það hafðist, við sigruðum Valsmenn í nýju höllinni að Hlíðarenda 23-20. Haukamenn skoruðu fyrsta markið og það var ég sjálfur sem skoraði það (Freyr) enda var ég búin að segjast ætla skora fyrsta deildarmarkið í nýja íþróttahúsinu að Hlíðarenda. Valsmenn geta huggað sig við það að ég lít ennþá á mig sem Valsara þannig að það var Valsari sem setti fyrsta markið.
En að leiknum aftur þá var staðan 1-1 í þónokkurn tíma en svo skoruðu Valsmenn 2 og komust í 3-1 en þá fór vörnin í gang hjá okkur og við skoruðum 6 mörk í röð. Staðan í hálfleik var svo 13-10 okkur í vil. Í seinni hálfleik hélt vörnin áfram að halda sínu með þá Arnar P og Gunnar Berg fremsta í flokki. Valsmenn jöfnuðu tvisvar þ.e.a.s. 15-15 og 18-18 en að lokum hafðist sigur 23-20 eftir spennandi loka mínutur.
Markaskorarar hjá okkur eftirfarandi: Andri Stefan 5, Halldór 5, Freyr 4, Beggi 4, Arnar P 3, Gunnar Berg 1 og Þröstur 1.
Gísli varði 6 og Maggi 7.
Það voru 26 sem kusu í skoðanakönnun um hvernig leikurinn við Val myndi fara og það voru meirihlutinn sem hafði rétt fyrir sér. 65,4% sögðu að Haukar myndu vinna en 34,6 að Valsmenn myndu sigra.
Kveðja Freyr B
![]() |
Haukar lögðu meistaralið Vals á útivelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.9.2007 | 13:31
Haukamenn tilbúnir í slaginn gegn Valsmönnum
Það er alveg ljóst að haukamenn eru tilbúnir í slaginn gegn Valsmönnum sem verður annað kvöld kl. 20 að Hlíðarenda. Mig hlakkar alltaf sérstaklega að spila við Val eftir að ég fór yfir til Hauka 2004-2005. Það hefur ekki þurft að peppa mig eitthvað sérstaklega upp fyrir þessa leiki því ég á undantekning laust góða leiki gegn þeim. Þegar ég fékk að vita að við ættum fyrsta leik gegn þeim í deildinni og það í nýju íþróttahúsi að Hlíðarenda var ég mjög glaður. Ég stefni að því að skora fyrsta markið í leiknum og verður það því fyrsta markið sem skorað verður í nýja Hlíðarenda, þ.e.a.s. í deildinni.
Annars eru allir heilir hjá okkur nema Kári sem verður frá í sirka mánuð í viðbót.
Nú er bara að mæta og styðja sitt lið.
FB
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar