8.10.2007 | 23:16
Sigur í bikar
Þá erum við komnir áfram í bikarnum og því 16 - liða úrslit næst. Sigur vannst nokkuð örugglega gegn Val 2 sem samanstóð af ungum og upprennandi Valsmönnum + Jóa Lange í markinu.
Ég ætla ekki að segja að Jói Lange sé ungur né upprennandi en hann varði nokkrar tuðrur og voru það helst Andri Stefan og Arnar Jón sem fóru illa að ráði sínu gegn Jóa. Markahæstu menn okkar voru Pétur"Hulk" og Tóti "Strá". Pétur setti 8/8 og Tóti 6/7 en þess má geta að Tóti spilaði aðeins seinnihálfleikinn en Pétur allan leikinn. Aðrir skoruðu líka en það var bara einn leikmaður sem ekki skoraði og það var Halldór Ingólfsson (hann er að spara mörkin fyrir úrslitaleikinn).
P.s. ekki held ég að Aron þjálfi verði ánægður með myndina sem er af honum á mbl.is, eitthvað útþaninn þarna á myndinni og með kennarakrika.
Næsti leikur er gegn Stjörnunni að Ásvöllum. Allir að mæta í rauðu.
![]() |
Þróttur í Vogum lagði nafna sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt 9.10.2007 kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.10.2007 | 23:57
Valur 2 vs Haukar í SS-bikar
Í kvöld förum við haukamenn að Hlíðarenda og spilum við Val 2 í SS-bikarkeppni HSÍ. Leikurinn hefst kl. 20. Eftir því sem ég best veit eru þetta strákar úr 2.flokki og þeir leikmenn sem ekki hafa verið í náðinni hjá meistarflokknum. Annars förum við blint í sjóinn og það verður bara koma í ljós hverjir koma til með að manna þetta lið hjá Val. Án efa eru þetta efnilegir drengir þar á ferð. Hjá okkur eru allir heilir og Maggi komin aftur eftir viku veikindi, en hann missti af síðasta leik. Kári verður ekki klár í slaginn fyrr en eftir 2 vikur.
Næsti leikur hjá okkur verður svo gegn Stjörnunni að Ásvöllum og verður það hörkuleikur. Ég held að sá leikur verði einn af leikjum ársins þar sem boðið verður frítt inn á. Það kemur í ljós seinna í vikunni.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2007 | 13:03
Hvar hefur Kári Kristján haldið sig?
Viðtal við Kára Kristján tekið af www.haukar.is
Eins og glöggir handboltaunendur hafa tekið eftir í fyrstu leikjum tímabilsins hefur Kári Kristján Kristjánsson ekkert verið að spila.
Kári hefur reyndar verið duglegur að mæta á Haukaleikina en ekki til að spila heldur til að horfa á liðsfélagana spila. Haukar.is ákvað því að fara grafa aðeins ofan í málið og náði tali á Kára.
Fyrsta spurningin sem við spurðum Kára var einfaldlega sú, hvað er að hrjá þig ?
- Ég er með brot á "fimmta metatarsal" sem er beinið sem til dæmir Wayne Rooney braut um árið (Rooney er fótboltamaður sem spilar fótbolta með Manchester United og enska landsliðinu). Það brotnaði eftir uppstökk og lendingu á Ragnarsmótinu á Selfossi, ekkert óeðlilegt sem ég gerði, þannig þetta kom mér svolítið á óvart, því að ég er jú gerður úr stáli og því kom það mér á óvart að ég hafi brotnað, en ótrúlegustu hlutir geta auðvitað alltaf gerst.
- Þetta er beinið sem liggur að liðamótunum þar sem táin byrjar.
En hvernig gengur batinn, hvað er langt í að sjá Kára spila handbolta ?
- Ég er að vonast til að komast í myndatöku á mánudag eða þriðjudag sem á að segja mér hvernig gróaandinn sé búin að vera. Þannig að eins og staðan er í dag vona ég að ég geti byrjað með mikilli ákefð eftir 2 vikur. Ég er svo að vonast til að ná Afturelding leiknum sem er 19.ókt annars ætti ég að verða skotheldur 30.ókt gegn HK.
En hvernig finnst Kára byrjunin á tímabilinu hafa verið hjá Haukum án hans ?
- Mér hefur fundist þetta gengið eins og vel smurður togari. Glæsilegt hvað við höfum náð að spila fína vörn og erum að stilla strengina í sókninni. Einnig er gaman að sjá þessa breidd sem við höfum sem enginn bjóst við.
En það hlýtur að vera erfitt að þurfa horfa á leikina úr stúkunni og fá ekkert að spila ?
- Jú, það er alltaf jafn erfitt að horfa á.
Við þökkum Kára Kristjáni kærlega fyrir þetta og vonandi að þetta hafi náð að fræða handboltaunendur sem ekki höfðu hugmynd hvað var að angra Kára til að iðka handknattleik
- Arnar Daði Arnarsson skrifar
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2007 | 07:42
Hver er þessi Jón Bassi?
Var að skoða textavarpið á síðu 305 þar sem fjallað var um leik okkar á móti Akureyri. Þar kemur fram að Jón Bassi hafi sett alls 17 mörk fyrir Hauka. Hver skrifar þessar fréttir á textavarpið, þetta hlýtur að vera eitthvað grín hjá starfsmanni!!
"Þá skoruðu Haukar fimm mörk í röð án þess að lið Akureyrar næði að svara fyrir sig og unnu að lokum fimm marka sigur. Jón Bassi skoraði flesta mörk Hauka, eða 17 alls. Goran Gusic var atkvæðamestur Akureyringa með sex mörk."
Tekið beint af textavarp.is
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.10.2007 | 23:23
Haukar 27 - Akureyri 22 í N1-deildinni
Þá er toppsætið okkar eftir góðan sigur gegn Akureyri fyrir norðan. Leikurinn byrjaði vel fyrir okkur og komust við í 2-0. En við héldum ekki nógu vel á okkar málum og þeir komust inn í leikinn eftir að við klúðruðum að komast í 4-0 en í staðinn komust norðanmenn yfir 4-2. Leikur okkar var ekki nógu góður og var það Gísli Guðmunds sem hélt okkur á floti á kafla með góðri markvörslu. Í hálfleik var staðan 10-11 fyrir okkur. Í seinnihálfleik byrjuðum við illa. Aron Rafn markmaður kom inná og stóð sig ágætlega. Jafnt var á öllum tölum þangað til Akureyri komst í 18-16 en þá komu við til baka og komust yfir 22-23. Á þessum tímapunkti settum við í fluggírinn og unnum nokkuð örugglega 22-27 en þess má geta að síðustu 4 mörkin komu á síðustu 1 1/2 mínútunni. Andri Stefan var með góðan leik ásamt Halldóri, Gísla var mjög öflugur í fyrrihálfleik og Aron Rafn kom stekur inn þegar á þurfti.
Markaskor í leiknum var á þessa leið:
Andri Stefan 6/8, Halldór 6/7 þar af 4 víti, Freyr 3/5, Jón Karl 3/6, Beggi 2/4, Arnar Jón 2/5, Gunnar Berg 2/5, Pétur 2/4 og Þröstur 1/2.
Gísli varði 8 og Aron Rafn 4.
Næsti leikur er í bikar á mánudag gegn Val 2 að Hlíðarenda. Svo er það Stjarnan sunnudaginn eftir en sá leikur verður í beinni á RUV.
FB
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2007 | 21:18
Samúel Ívar sökkti Drammen
Já hann Samúel Ívar Árnason er að spila í Noregi þetta tímabil eftir að hafa spilað með Haukunum síðustu 2 árin. Í kvöld spiluðu hann og félagar hans gegn Drammen sem hafa verið taplausir síðan í mars 2006 og þeir voru búnir að vinna 30 leiki í röð...., þangað til í kvöld. Sammi og félagar í Elverum gerðu sér lítið fyrir og unnu þá örugglega með 6 marka mun. Samúel átti stórleik og fór hamförum, stal einhverjum 7 boltum og setti 5 mörk. Lokastaðan í leiknum var 29-23 fyrir Elverum. Við strákarnir í Haukunum óskum Samma og félögum sérstaklega til hamingju með þennan glæsta sigur.
Sjálfur sagðist hann hafa tekið "Freysa" á þetta í leiknum. Sem er alltaf vænlegt til árangurs.
KV. FB
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2007 | 20:53
Síðasti dagur til að borga
Jæja drengir nú er komið að skuldadögum. Síðasti sjéns til að borga er 23:59:59. Hörður Davíð kemur svo með útprentun á því hverjir eru búnir að borga og hverjir klikkuðu og þar með þurfa að borga 500 kr í sekt fyrir það.
Andri Stefan 400 Arnar Pétursson 1400 Arnar Jón Agnarss. 2300 Aron sláni mark 1000 Magnús Sigmunds 0 Gunnar Berg Viktors 1100 Freyr Brynjarsson 1700 Gísli Guðmundsson 700 Gísli Jón Þórisson 2400 Halldór Ingólfsson 4100 Jón Karl Björnsson 700 Tóti sláni skytta 1200 Kristján örvh.horn 2800 Kári Kristjánsson 1400 Pétur Pálsson 2800 Sigurbergur Sveins 2300 Þröstur Þráinsson 900 Finnbogi 1000
kt: 291164 - 5799 Rnr: 1101 - 05 - 420393
Þið fáið frest til miðnætis 2.okt til að borga.
3.október leggst 500 kr í vanskilakostnað og svo annar 500 kr 10.október.
Munið að þeir sem vilja efast um sektir sínar og láta fara aftur yfir sektirnar þá kostar það 500 kr.
Kv. FB
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.10.2007 | 22:52
Dregið í bikar: Valur - Haukar
Nú í kvöld var dregið í SS-bikar karla og kvenna. Við haukamenn fengum Val 2. Ég er ekki alveg að átta mig á því hverjir það eru sem spila fyrir Val 2 en Valur er með 3 lið í keppninni. Meistaraflokkurinn situr hjá sem Íslandsmeistara og Stjarnan sem bikarmeistarar. Annað hvort er þetta Hraðlestinn fræga eða leikmenn úr 2.flokk. Á eftir að athuga þetta mál betur og kem þá með nánari lýsingu á þeirra liði. Það verður gaman að spila að Hlíðarenda aftur. Leikurinn fer fram næstkomandi sunnudag eða mánudag.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2007 | 00:01
Beggi reddaði 1 stigi
Í kvöld fór fram háspennuleikur í Safamýrinni gegn Fram. Jafnt var nánast á öllum tölum. Í hálfleik náðum við að hafa eins marks forustu 14-13 fyrir okkur Haukamenn. Í seinni hálfleik byrjuðum við einum færri og svo studdu síðar var Andri rekin útaf og við tveimur færri. En við náðum að skora 2 mörk tveimur færri sem þeir reyndar náðu líka að gera. Jafnt var á öllum tölum þangað til um 7 mín voru eftir en þá náðu Framarar 3 marka forustu. En við haukamenn gáfumst ekki upp og náðum að saxa á þetta. Þegar um 45 sek voru eftir fékk Dóri dauðafæri en markmaður þeirra varði og fram komst í sókn. Maggi varði skot frá Andra Berg þegar um 10 sek voru til leiksloka og Andri Berg fékk 2 mín fyrir að sparka í boltann, við brunuðum upp og Beggi fékk boltann í skyttunni og vippaði sér upp og hamraði hann í fjær hornið niðri og um leið rann tíminn út. Jafntefli staðreynd í hörkuleik.
Gaman var að sjá að áhorfendur létu sig ekki vanta og voru duglega margir haukastuðningsmenn mættir að styðja okkur og viljum við þakka þeim sérstaklega fyrir mætinguna. Næsti leikur er gegn Akureyri eftir viku fyrir norðan.
Markaskor liðsins var á þessa leið:Beggi 5/7, Halldór 5/7, Jón Karl 4/7, Freyr 3/4, Gísli Jón 3/4, Gunnar Berg 3/7, Arnar Péturs 2/3, Andri Stefan 2/5, Arnar Jón 1/2, Þröstur 1/2
Maggi varðir samkvæmt Herði 13 en 15 samkvæmt sport.is (gefum honum 15 varðir) Gísli Guðmunds var með 1 varinn.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2007 | 15:22
Fram - Haukar :Frítt inn í kvöld
Það er staðfest að FL Group ætlar að bjóða frítt inn á leikinn í kvöld sem fram fer í Safamýrinni. Nú er um að gera láta sjá sig.
Framarar eru með frábæra umfjöllun um þennan leik á heimasíðu sinni. Þið getið nálgast það hér
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar