28.12.2009 | 22:12
Deildarbikarmeistarar 2009 - Haukar
Þá er fyrsti titilinn á þessu keppnistímabili komin í hús eftir magnaðan úrslitaleik í Strandgötunni í kvöld gegn Akureyri. Við höfum töpuðum þessum titli tvö síðustu ár en við unnum þennan titil síðast tímabilið 2005-2006, þá gegn Fylki í 5 leikja úrslitakeppni.
En þessi leikur í kvöld byrjaði ekki vel og Akureyringar keyrðu á okkur og náðu strax 4-0 forustu og svo 5-1 þegar Aron tók leikhlé. Markvörður þeirra var að verja mjög vel á þessum kafla. Eftir leikhléið mættu menn til leiks og minnkuðu muninn í 5-4. Akureyringar náðu samt aftur forskoti og í leikhléi var staðan 13-11 í leikhléi. Mikið gekk á í þessum fyrrihálfleik og Björgvin Hólmgeirs fór meiddar af velli um hann miðjan eftir að hafa verið hrint í gólfið sem varð til þess að hann lenti illa á bakinu. Hann kom ekkert meira við sögu í þessum leik. Seinni hálfleikurinn var betri hjá okkur og Aron Rafn fór að verja í markinu. Eftir 45 mín leik var staðan jöfn 15-15 en Akureyringar náðu strax að skora 2 mörk á okkur og staðan því orðin 17-15 þeim í vil. Í stöðunni 19-18 Akureyri í vil skoruðum við 3 í röð og komumst yfir 21-19. Akureyri jafnaði leikinn 21-21 og eftir það var jafnt á öllum tölum. Þegar um 19 sek voru eftir tók Aron leikhlé í stöðunni 24-24. Síðasta sóknin var skrautleg en þegar um 6 sek voru eftir kom fát á okkar menn og Elías þurfti að skjóta á markið, boltinn var varinn í einkast, einkastið var tekið hratt og Tjörvi fékk boltann þegar 2 til 3 sek voru eftir alveg hægra megin á vellinum og þar grýtti hann góðu undirskoti sem lá í netinu um leið og flautan gall. Haukasigur var staðreynd og áhorfendur sem voru fleiri á bandi Haukana gjörsamlega misstu sig í fagnaðarlátum.
Frábær sigur á sterku liði Akureyrar í ljósi þess að í okkar lið vantaði Birki, Einar, Frey, Gunnar og Heimi Óla. En maður kemur í manns stað og leikmenn eins og Aron Rafn, Guðmundur og Tjörvi stigu upp á mikilvægum augnablikum ásamt Gísla Jóni varnalega sem gerði okkur kleift að vinna þennan leik í kvöld.
Næsti leikur er 4.febrúar í deildinni.
Frábæru ári lokið þar sem við Haukamenn töpuðum aðeins 2 leikjum allt árið. Árið 2010 verðu vonandi eins heillavænlegt og árið 2009 þar sem við urðum deildar og Íslandsmeistara, komnir í undanúrslit bikars og í 16-liða úrslit í Evrópukeppni félagsliða.
Markaskor: Guðmundur 9, Elías 4, Tjörvi 4, Beggi 3, Pétur 2, Stebbi 2, Jónatan 1.
Aron Rafn varði 19 tuðrur.
Tjörvi tryggði Haukum sigur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Botnlaus græðgi fjármálakerfisins á sér engin takmörk
- Hluti bílastæðis undir hraun: Ómögulegt að meta tjón
- Myndskeið: Stórbrotið útsýni af flugbrautinni
- Maskína: Framsókn í fallbaráttu
- Myndir: Hraunið komið inn á bílaplan Bláa lónsins
- Gosstöðvarnar ekki aðgengilegar fyrir ferðamenn
- Vatnsleki hjá Brauð & co
- Má segja að þetta gos hafi þjófstartað
- Hraunið við bílastæði Bláa lónsins
- Stal munum úr starfsmannaaðstöðu
- Virknin dregist saman um 600 metra
- Rafmagn komið á: Engin viðgerð fyrr en eftir gosið
- Erum í miðri hrinu: Styttist í Eldvörp
- Fylla í skörð í varnargarði
- Ábyrgt stjórnvald hljóti að áfrýja
Athugasemdir
Þetta var óverðskuldað, og skítalabbarnir í Haukum unnu á heimadómgæslu.
.Omar Sigurðsson (IP-tala skráð) 29.12.2009 kl. 00:54
Omar, þeir félagar Anton og Hlynur eru þekktir fyrir ýmislegt, en að vera Haukum hliðhollir er ekki á listanum. Það hafa þeir aldrei verið, það vitum við stuðningsmenn Hauka vel.
Geir Guðbrandsson, 29.12.2009 kl. 02:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.