Öruggur Haukasigur á FH

stebbiÍ dag áttust við rauða liðið og svarthvíta liðið í Hafnarfirði. Þeir svarthvítu byrjuðu betur og leiddu að mestu í fyrri hálfleik. Gunnar Berg kom sterkur inn og setti sitt eina mark í leiknum og jafnaði 13-13 rétt fyrir lok fyrrihálfleiks. ( Var ekki talað um að hann væri meiddur?). Í seinni hálfleik vorum við betri á öllum vígstöðum og unnum nokkuð örugglega 24-19. Stefán Rafn átti stórleik í skyttunni og setti 10 slummur og var duglegur að finna bróður sinn á línunni(Heimir Óli). Vörnin var eins og svo oft áður sterk og markmennirnir okkar voru góðir. Sigur á fh er alltaf markmið hjá okkur Haukamönnum og kom ekkert annað til greina en sigur í dag.

Hjá okkur vantaði Gísla Jón, Tjörva, Bjögga og svo var Sveinn einnig meiddur í öxl og gat ekki beitt sér. Gunnar Berg var kallaður inn og stóð fyrir sínu.

Maður leiksins var svo Stefán Rafn og áttu fh-ingar engin svör við stráknum.

Það var valið í lið mótsins og þar áttum við tvo leikmenn. Björgvin var miðjumaður mótsins og öllum á óvörum var Einar Örn valið í hægri skyttuna. Kom honum sjálfum reyndar mest á óvart. Góðar líkur er á að ef þið heimsækið hann þá verður skjöldurinn á útihurðinni hjá Einari. :) En án alls gríns þá var hann besta hægri skyttan í þessu móti. 

Stefán Rafn var svo valinn besti maður mótsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband