Færsluflokkur: Íþróttir

Úrslitaleikur á laugardaginn

Í kvöld vannst sigur gegn Selfossi í Ragnarsmótinu 32-24. Þessi leikur byrjaði ekki vel hjá okkur og vorum við hálf sofandi í upphafi og í stöðunni 3-1 tók þjálfarinn leikhlé og ausaði aðeins yfir mannskapinn. Ekki tók betra við strax eftir en Selfoss komst í 8-4 en þá tóku við okkur tak og jöfnuðum leikinn en staðan í hálfleik voru Selfoss yfir 12-11. Í seinni hálfleik var jafnt á flestum tölum en við alltaf 1 til 2 mörkum yfir. Selfoss jafnaði svo leikinn 21-21 en þá skildu leiðir og við skoruðum 11 mörk á móti 3.

Markadreifingin var þessi: Kári 9 mörk, Freyr 5, Halldór - Jón Karl og Beggi 3 mörk, Andri og Tóti voru með 2 en aðrir minna.

Úrslitaleikurinn verður svo spilaður á laugardaginn kl.16 líklega gegn Stjörnunni.

FB


Haukar 29 - Fram 26

Sigur vannst í kvöld gegn Fram í hinu árlega Ragnarsmóti sem haldið er á Selfossi. Leikurinn var jafn til að byrja með en svo náðu Framarar forustu 4-7 og þá var tekið leikhlé. Haukamenn komu sterkir eftir leikhléið og komust yfir 11-9. Í hálfleik var svo staðan 15-14 fyrir okkur. Í seinni hálfleik byrjuðum við vel og héldum forustu það sem eftir lifði leiks. Á tímabili var orðin 5 marka munur. Góður sigur í heildina en ennþá hægt að laga nokkra hluti t.d. dauðafærin og velja betur færi.

Maggi kom sterkur inn í markið í seinnihálfleik og varði 13 bolta þegar yfir lauk. Markahæstu menn Hauka voru Arnar Jón, Freyr, Gunnar Berg og Halldór allir með 4 mörk.  Næsti leikur er annað kvöld gegn Selfossi og ef hann vinnst þá spilum við til úrslita á laugardaginn.

P.s. Júlli þessi sigur var tileinkaður þér.Cool

FB.


Júlíus Jónasson handboltakempa 43 ára í dag

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag.Wizard

julli

Já, snyrtipinninn og naglinn Júlíus Jónasson á afmæli í dag. Viljum við Haukamenn óska honum innilega til hamingju með daginn. Í tilefni dagsins ætlum við Haukamenn að vinna Fram í kvöld.

Með afmæliskveðju Haukamenn.


 

 

FB 


Ragnarsmótið á Selfossi

Á morgun byrjar Ragnarsmótið sem er árlegt mót og er það haldið á Selfossi. Við eigum leik við Fram kl. 18:30. Á fimmtudag spilum við svo við Selfoss og byrjar hann einnig kl. 18:30. Þessir leikir eru mikilvægir fyrir undirbúningin.

Á mánudaginn í næstu viku förum við svo til Danmerkur í æfingaferð og verðum í viku. Þar komum við til með að spila við nokkur sterk lið. Þannig að við ættum að koma til baka vel undirbúnir fyrir komandi tímabil.


Sigur á Aftureldingu.

Sigur vannst gegn Aftureldingu í morgun en spilað var í Mosó. Við byrjuðum illa og það þurfti leikhlé og tiltal frá þjálfara til að menn færu að taka á því. Í hálfleik var staðan 13-13 og endaði leikurinn með sigri okkar 29-25. Eins og í undanförnum leikjum þá eru við ekki nógu samfærandi sóknarlega og vörnin gæti og hefur verið betri á æfingum. Nú eru margir nýjir leikmenn og það er vonandi að við komum til með að pússa okkur saman sem eina liðsheild fyrir fyrsta leik sem er gegn Val um miðjan september. Andri Stefan var skárstur af okkar mönnum og þá sérstaklega síðustu 15 mín.

Næst á dagskrá er Ragnarsmótið sem fram fer á Selfossi og erum við í riðli með Fram og Selfossi. Fyrsti leikur í mótinu verður á miðvikudag gegn Fram. Í hinum riðlinum eru Stjarnan, U17 og eitt lið í viðbót sem ég man ekki akkúrat núna. Efstu liðin í riðlunum spila til úrslita.

Kv. FB


Valsmenn sigruðu örugglega

Í kvöld spiluðum við Haukamenn við Valsara að Ásvöllum. Leikurinn byrjaði ágætlega hjá okkur en fljótlega tóku Valsmenn yfirhöndina og voru yfir í hálfleik 9-17!!! Á tímabili í seinni hálfleik voru Valsmenn 11 mörkum yfir. Leikurinn endaði svo 24-28 fyrir Val en við tókum okkur tak síðustu 10 mín. Valsmenn voru langt frá því að vera með sitt besta lið. Markús ekki með vegna vinnu, Ernir var meiddur og Ægir línumaður lenti í bílslysi rétt áður en leikurinn átti að byrja og mætti ekkert. Hjá okkur voru Halldór og Freyr ekki með vegna meiðsla. Gaman var að sjá að gamla kempan Finnur Jóhannsson sem átti sín bestu ár með Val á síðustu öld er að æfa og spilar sem skytta hjá Völsurunum.

akureyriir2finnur2

Næsti æfingaleikur hjá okkur Haukunum verður í fyrramálið í Mosó gegn Aftureldingu.


Hvar er Pétur Páls?

Marvel-character-composit

Haukar - Stjarnan:úrslit - Haukar - Valur á föstudag

magnusÍ kvöld spiluðum við okkar annan æfingaleik og að þessu sinni var það Stjarnan sem eru mjög vel mannaðir og verða teljast mjög sigurstranglegir í deildinni í vetur ásamt Val og auðvitað okkur í Haukum. Leikurinn endaði með sigri Stjörnunar 27-28. Við vorum að spila illa og nýttum okkur ekki nægilega þau tækifæri í leiknum til að jafna og komast yfir, t.d. fóru 5 víti forgörðum. Besti leikmaður Haukamanna voru markverðirnir og svo kom Tóti mjög sterkur inn í lok leiks. Ég fékk hné í læri í fyrrihálfleik frá ofvöxnu trölli frá Georgíu, hann er hátt í tveir metrar, örvhentur 19 ára gutti.

Beggi var meiddur á eyra og gat ekki tekið þátt í leiknumSigurbergur Sveinsson

Næsti æfingaleikur verður á föstudaginn gegn Val og svo förum við í Mosó á laugardaginn til að spila við Aftureldingu.

Kveð í bili Freyr B.


Haukar - Stjarnan annað kvöld kl.18:30 að Ásvöllum

Annað kvöld keppum við haukamenn við Stjörnuna í "alvöru" æfingaleik. Spilað verður á aðalvellinum og vonast eftir að fólk komi til að sjá hvernig leikmenn koma út eftir miklar æfingar. Leikurinn hefst kl. 18:30 og verður um hörkuleik hér að ræða. Stjörnumenn með mjög sterkt lið og án efa eitt af liðunum sem gerir tilkall til Íslandsmeistaratitils.

Nú er um að gera að mæta og styðja Haukana til sigurs.


Eldri vs Yngri og Enski boltinn

Það er hefð fyrir fótbolta í upphitun hjá okkur handboltamönnum. Við spiluðum 2 sinnum í viku fótbolta í upphitun og 2 sinnum var hitað upp í körfu. Í fótboltanum er ávallt stillt um eldri gegn yngri og það er gert hjá flestum liðum í handboltanum, það var þannig í Val þegar ég spilaði þar og er þannig í Haukum í dag. Í fyrra voru spilaðir 42 fótboltaleikir og það kemur ekkert á óvart að eldri gjörsamlega slátruðu ungum í þessari baráttu. Fór það þannig að Eldri unnu 31 leik en ungir aðeins 11 leiki yfir síðasta tímabil.

Á þessu tímabili hafa farið fram tveir knattspyrnuleikir og að sjálfsögðu hafa eldri unnið þá báða, meiri að segja vannst síðasti leikur þar sem eldri voru einum færri. Þannig að staðan er í dag 2-0 eldri í vil.

 Þá aðeins að enska boltanum sem hófst núna um helgina. Mínir menn í Liverpool unnu glæsilegan sigur á Aston Villa með drauma marki frá The Big G.  Man und náðu aðeins jafntefli við Reading sem mér persónulega finnst góða úrslitDevil. Annar er mikil barátta milli manna í liðinu þar sem karpað er um og sínu liði hælt í bak og fyrir. Um helmingur af liðinu eru liverpool menn og hinir eru man und og arsenal menn. Svo eru jú einhverjir sem halda með einhverjum öðrum liðum, fer nánar út í það síðar þegar ég kem með nákvæma tölu á stuðningsmönnum hvers liðs.  Eitt það besta við þjálfaraskiptin hjá Haukunum er sá að út fór man und aðdáandi og inn koma Liverpool aðdáandi. Grin

Kv. FB


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband