Færsluflokkur: Íþróttir
11.9.2007 | 15:24
Lukkudýr Haukamanna
Það er hann Jóhann Waage félagi minn sem er búin að hanna þetta líka flotta lukkudýr handa haukamönnum. Hann er búin að hanna fullt af öðrum lukkudýrum. Kíkið á hann hann heitir skallinn hér til hliðar á bloggvinir.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2007 | 23:57
Valsmenn í meistaradeildina
Verð nú að óska mínum gömlu félögum til hamingju með að vera komnir áfram í meistaradeildinni. Þeir sigruðu Viking Malt örugglega í þessum tveimur leikjum. Það kom mér þó nokkuð á óvart hversu auðveldlega þeir unnu þessa leiki. Hélt að þetta lið væri sterkara. Nú koma Valsmenn til með að leika á móti 3 mjög sterkum liðum. Ég tel að ef þeir ná einu stigi í þessum riðli þá er það góður árangur. Fram kúkaði á sig í fyrra sem var fínt. Valsmenn eiga eftir að finna fyrir því að vera í meistaradeildinni er hið mesta puð. Það var ekkert gert fyrir okkur í Haukunum þegar við spiluðum í þessari keppni og nú eiga Valsmenn eftir að finna fyrir því. Fyrir áramót verður strembið fyrir Val og eiga þeir eftir að tapa stigum í deildinni vegna mikils leikjaálags. Spurningin er svo hvernig þeir koma út úr þessu og hvort þeir verða með í baráttunni um Íslandsmeistaratitils í vor. Ég held að Valur verði í 4 sæti fyrir áramót en komi til með að blanda sér í baráttuna þegar líður að vori.
Annars verða þetta Haukar, Valur, Stjarnan, HK, Fram og Akureyri sem berjast um 4 efstu sætin í N1 deildinni.
FB
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.9.2007 | 16:58
Haukar-HK=29-29
Í morgun var æfingaleikur gegn HK og fór hann fram í Digranesi. Við vorum með forustuna mest allan leikinn og staðan í hálfleik var 14-15 fyrir okkur. Í seinni hálfleik hrökk Gísli Guðmund í gang í markinu og við náðum mest 4 marka forustu. En svo kom slæmur kafli hjá okkur sem leiddi til þess að HK komst yfir 2 mörkum og þegar 2 mín voru eftir var staðan 27-29 fyrir HK en þá lokuðum við vörninni og Pétur "Hulk" Pálsson skoraði tvo og fiskaði svo víti um leið og leiktíma lauk. Beggi tók vítið en vippaði nokkuð örugglega yfir ramman og því jafntefli staðreynd. Kári og Gunnar Berg eru enn meiddir og voru því ekki með í dag ásamt Halldóri Ingólfs sem er meiddur í kálfa.
Núna fer að koma að fyrsta leik sem verður gegn Valsmönnum og fer hann fram að Hlíðarenda næsta laugardag.
P.s. missið ekki af myndbandi frá ferðinni í Danmerku en það kemur fljólega hér á heimsíðunni og þar verður til að mynda mörg skemmtileg svipbrigði frá ungum leikmönnum sem voru innlimaðir inn í meistaraflokkinn þarna úti. :)
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.9.2007 | 16:14
Hörkuleikur gegn Hammerby
Í dag spiluðum við gegn sænsku meisturunum Hammerby. Leikurinn byrjaði vel að okkar hálfu og vorum við yfir 4-3, en þá settu þeir í gírinn og komust í 7-4. Í fyrri hálfleik var munurinn ávallt 2-3 mörk og það fór svo að í hálfleik var staðan 14-16 Hammerby í vil. Í seinni hálfleik byrjuðum við illa og þeir komust í 19-14. Við héldum bara áfram okkar leik og náðum að saxa niður forskot þeirra hægt og sígandi og þegar 1 mín var eftir var staðan 31-32 og við náðum að spila okkur í gegn og jafna þegar um 20 sek voru eftir. Þeir tóku leikhlé og náðu að skora sigurmarkið þegar 8 sek voru eftir. Beggi náði þröngu skoti utan að kanti en það fór framhjá og 1 marks tap var staðreynd.
Við spiluðum bara mjög vel á köflum í leiknum sem er jákvætt að því leiti að enn vantar okkur menn inn í liðið sem eru meiddir. S.b.r Kára, Gunnar Berg og Gísla markmann. Halldór spilaði ekki í dag var eitthvað tæpur í fæti. Hann sat því bara í stúkunni og leysti Sudoko gátur. :)
Markaskorara: Beggi 7/16, Freyr 6/9, Arnar Jón 6/10, Andri 5/8, Jón Karl 5/9 öll úr vítum, Gísli 1/2, Þröstur 1/1 og Pétur 1/1.
Magnús varði 10 bolta í rammanum og Finnbogi varði 4.
FB
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2007 | 17:44
Tap gegn Sandefjord
Í dag spiluðum við gegn Sandefjord og til að gera langa sögu stutta þá fór þetta á versta veg. Við komum engan vegin tilbúnir og lentum strax undir 6-2. Í hálfleik var staðan 12-17. Í seinni hálfleik hélt hörmungin áfram og varð bara verri, við skoruðum aðeins 7 mörk og lokastaðan var 19-29. 14 tæknifeilar og hörmulega sóknarnýting varð okkur að falli í dag. það segir líka soldið að þegar 20 markamenn í síðasta leik skora ekki mark þá vinnum við ekki leiki.
Markaskorarar: Halldór 5/7, Beggi 4/10, Gísli 3/9, Freyr 3/3, Þröstur 2/3, Jón Karl 1/5, Addi P 1/1.
Maggi varði 14 skot og Finnbogi varði 2 þar af eitt víti.
Gunnar Berg var ekki með í dag. Hann meiddist á hendi og verður eitthvað frá. Kári og Gísli Guðmunds eru einnig enn meiddir.
Næsti leikur er gegn Hammerby á morgun kl. 14 að staðartíma. Þjálfari þeirra er Íslandsvinurinn Staffan Olsen.
P.s. Þeir Ásgeir Hallgrímsson og Vignir Svavarsson kíktu á okkur í dag í smá heimsókn.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.8.2007 | 21:41
Tap í fyrsta leiknum gegn Bjerringbro - Silkiborg
Í kvöld spiluðum við gegn heimaliðinu hér í Silkiborg. Leikurinn var mjög hraður og staðan í hálfleik var 19-18 okkur í vil. Í seinni hálfleik var sama upp á teninginn þar sem hraðinn var mikill. En eins og í leiknum gegn Skjern misstum við taktinn um miðjan hálfleikinn og þeir komust yfir 25-22. Þessi munur var út leikinn og loka staðan í leiknum var 37-34 fyrir heimamönnum.
Andri Stefna og Arnar Jón voru okkar bestu menn sóknarlega. Andri skoraði 11 úr 18 skotum og Arnar Jón skoraði 9 úr 12 skotum. Gísli Jón kom svo næstur með 4 mörk úr 5 skotum.
Magnús Sigmundsson varði 9 bolta og Finnbogi átti fína innkomu í fyrrihálfleik og varði 4 skot.
Næsti leikur er á morgun gegn Sandefjord kl. 15 að staðartíma sem er 13 að íslenskum tíma.
FB
Íþróttir | Breytt 1.9.2007 kl. 10:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.8.2007 | 22:15
Tap gegn Skjern
Í kvöld var spilaður æfingaleikur við Skjern og fóru leikar þannig að Skjern vann leikinn 33-29. Leikurinn byrjaði vel af okkar hálfu og vorum við yfir allann fyrrihálfleik. Sókn og vörn voru upp á sitt besta og í hálfleik var staðann 16-13 fyrir okkur þó svo að dómarar leiksins hafi gert sitt besta til að hjálpa Skjern með því að reka okkur útaf fyrir litlar sakir. Til að mynda þá vorum við á einum punkti í leiknum 3 inná gegn 6 leikmönnum Skjern en Halldór nokkur Ingólfsson lét það ekki trufla sig og skoraði næstu tvö mörk og unnum við þennan kafla 2-0. Svo fékk Gunnar Berg rautt spjald á 15 mín fyrir að hafa farið í andlit eins leikmanns Skjern en í raun fór hann í bringuna á honum á sama tíma ráku þeir Arnar P útaf fyrir eitthvað annað brot. Þeir voru sem sagt í ruglinu. Seinni hálfleikur var góður af okkar hálfu þangað til um 13 mín voru eftir en þá fór staðan úr 19-21 í 24-22 og þeir héldu þessu forskoti alveg til loka og bættu tveimur við í lokinn og því loka staða 4 marka tap. Næst á dagskrá er 4 liða mót í Silkeborg og leggjum við af stað á morgun.
Markaskor í leiknum: Arnar Jón 6, Andri 5, Jón Karl 5 þar af 4 víti, Gunnar Berg 3, Beggi 3 öll úr vítum, Halldór 2, Arnar P 1, Freyr 1, Þröstur 1, Pétur 1, Gísli Jón 1,
Magnús varði 19 bolta
Vignir Svavars skoraði 10 fyrir Skjern.
P.s. Matti ég reyndi að hausa Sune en hann rétt varði það. Ég skal redda mynd af Hödda og Faxa og set hana á netið um leið og ég get.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.8.2007 | 13:27
Keppnis- og æfingaferð til Danmerkur
"Tekið af heimasíðu Hauka. www.haukar.is"
Strákarnir okkar halda nú eftir hádegið í vikulanga keppnis- og æfingaferð. Áfangastaðurinn er Danmörk þar sem meðal annars verður leikið á gífurlega sterku móti, hálfgerðu Norðurlandamóti.
Fyrstu þrjá daga ferðarinnar munu strákarnir dvelja í Stoholm, sem er staðsett rétt utan við Viborg á Jótlandi. Á miðvikudaginn munu þeir leika fyrsta leikinn en það verður gegn Skjern, gömlu lærisveinum Arons Kristjánsson, þjálfara okkar manna. Með Skjern leikur einn Haukamaður, en það er línumaðurinn snjalli Vignir Svavarsson.
Á fimmtudag verður svo haldið til austur til Silkeborgar. Þar munu strákarnir taka þátt á gífurlega sterku fjögurra liða móti, hálfgerðu Norðurlandamóti.
Mótherjar strákanna á mótinu verða fyrst lið Bjerringbro-Silkeborg, sem hefur styrkt leikmannahóp sinn mjög mikið fyrir átök vetrarins, meðal annars með því að kaupa hinn magnaða leikmann Lars Krogh Jeppesen frá Kiel í Þýskalandi.
Næst er röðin komin að lærisveinum hins þekkta Staffan Olson, betur þekktur sem "Faxi", í Hammerby. Hammerby eru núverandi sænskir meistarar.
Þriðja og síðasta liðið er svo hið sterka norska lið Sandefjord, sem við Haukamenn könnumst við frá Evrópukeppninni.
Strákarnir halda svo heim á leið á mánudaginn eftir viku. Þá verður stutt í Íslandsmótið og áætlað er að fyrsti leikur verði gegn Val föstudaginn 14. september í Vodafone höllinni, nýjum heimavelli Vals.
Steinar.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.8.2007 | 22:42
Kári Kristján og Gísli Guðmunds meiddir
Ekki fórum við slysalausir úr þessum úrslitaleik gegn U17 á laugardaginn. Kári meiddist á fæti og er brotinn. Brotið er nálægt rist og þarf hann að hvíla í mánuð og fer líklega ekki með til Danmerkur á morgun. Einnig hefur komið í ljós að Gísli Guðmunds markvörður er með trosnað liðband í fæti og þarf að hvíla í viku. Þessi meiðsli koma á versta tíma þar sem liðið er á leið í viku æfingaferð til Danmerkur þar sem spilað verður við sterk lið.
Kári Kristján Gísli Guðmunds
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2007 | 20:47
Sigur í Ragnarsmótinu
Í dag vannst sigur á U17 ára landsliði Ísland sem óvænt komust í úrslit eftir að hafa gert jafntefli við Stjörnuna 29-29 í gær. Fregnir herma að Stjarnan hafi verið með 2.flokkinn og því langt frá því að vera með sitt sterkasta lið. En aftur að leiknum þá byrjuðum við að krafti og áttum í raun aldrei í vandræðum með þessa unglinga. Í hálfleik var staðan 19-11 okkur í vil og lokastaða var svo 37-27. Markahæstu menn voru Freyr með 6, Jón karl með 6, Halldór 5, Andri 4, Pétur 4, Gísli Jón, Arnar Jón 3, Beggi 2, Kristján 1, Þröstur 1 og Gunnar Berg 1.
Arnar Pétursson spilaði ekki með í kvöld. Gísli Guðmunds var valinn besti markvörður mótsins.
Næst á dagskrá er viku æfingaferð til Silkiborgar í Danmörku. Hægt verður að fylgjast með ferðinni hér á síðunni.
P.s. Áfram Liverpool
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 163589
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar