Færsluflokkur: Íþróttir
12.8.2007 | 11:43
Bananar og kókómjólk!
Nú þegar æfingar byrjuðu hjá okkur og nýr þjálfari tekinn við, koma oft nýjir siðir og í þetta skipti hefur Aron verið á prósentu hjá bananaræktundum og hjá mjólkursamsölunni. Hann talar mikið um að menn eigi að borða vel af bönunum og drekka kókómjólk úti í eitt. Eftir hverja æfingu eru bananar til taks og maður því með kolvetnin klár eftir æfingar.
Ekki misskilja þetta er að mínu mati mjög gott framtak því mér finnst bananar mjög góðir og það er hárrétt hjá honum að líkaminn er fljótari að ná sér aftur eftir æfingar ef kolvetni eru etinn fljótlega eftir æfingar. Það eina sem ég hef áhyggjur af er að það hlýtur að koma að því að maður fái ógeð af bönunum og í rauninni ekki spurning um hvort heldur hvenær það gerist.
FB
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2007 | 11:11
Fyrsta umferðin í Íslandsmótinu
Í annari deild leika: FH, Fylkir, Grótta, Haukar U, Höttur, ÍR, Selfoss og Víkingur.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2007 | 11:04
Æfingaleikir og æfingamót
Nú fara af stað æfingaleikir fyrir komandi tímabil og var sá fyrsti í gærkveldi gegn HK. Þar fórum við Haukamenn með sigur á hólmi 23-22. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir haukamenn en við unnum á og í hálfleik var staðan 11-11. Ýmislegt á eftir að laga og það eru þó nokkur kerfi sem við eigum eftir að ganga í gegnum og fullkomna.
Næsti æfingaleikur verður miðvikudaginn 15.ágúst. Leikið verður gegn Stjörnunni og hefst leikurinn 18:30 að Ásvöllum
24-26. ágúst förum við svo á Ragnarsmótið á Selfossi.
27.ágúst - 3.sept - Æfinga- og keppnisferð til Danmerkur
12 - 16.sept - Íslandsmótið hefst.
FB.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2007 | 09:50
Haukamenn komnir af stað
Þá eru menn komnir á fullt í æfingum og hafa þær verið stífar síðan 24.júlí með lyftingum, intevali og boltaæfingum. Að meðaltali er æft 8 sinnum í viku. Aron hefur komið sterkur inn og verða menn klárir í slaginn þegar fyrsti leikur hefst sem er gegn Val að Hlíðarenda. (svakalega hlakka ég til)
Kv. Freyr B
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 163589
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Erlent
- Brátt verður ekki aftur snúið
- Páfinn varar ungmenni við gervigreind
- Bjóða Írönum diplómatíska lausn
- Sjö slösuðust er sporvagn hafnaði á matarvagni
- Ræðir ekki við Bandaríkin ef árásir halda áfram
- Sprengja sprakk við norska sendiherrabústaðinn
- Trump tekur ákvörðun á næstu tveimur vikum
- Geimflaug SpaceX sprakk í Texas