Færsluflokkur: Íþróttir
13.11.2007 | 21:16
Stórleikur í N1-deildinni
Annað kvöld kl.19 kemur Valur í heimsókn að Ásvelli. Þetta er lokaleikur 8.umferðar og mikilvægur fyrir bæði lið. Við komust í efsta sætið með sigri en þeir geta nálgast toppliðin með sigri. Það kemur ekkert annað til greina en sigur og get ég sagt fyrir mitt leyti að ég verð klár í slaginn. Við verðum með okkar sterkasta lið og ég veit ekki betur en að Valur sé einnig með alla sína menn klára. Vona að sem flestir mæti og styðji sitt lið. Áfram Haukar.
FB
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2007 | 21:45
Meiðsli leikmanna
Nokkuð hefur verið um meiðsli hjá okkur undanfarið.
Andri Stefan hefur verið meiddur í hálsi, vill ekki að menn komi aftan að sér og því alltaf að líta um öxl.
Arnar Jón er meiddur á ökkla og gerðist það þegar hann var að reyna flýja konuna eftir að hún komst að því að hann hafði pissað útfyrir.
Pétur Páls a.k.a. the Hulk meiddist svo svakalega á læri að annað eins hef ég ekki séð (sjá mynd). Það gerðist þannig að valtari keyrði yfir hann. Öðruvísi er ekki hægt að slasa þennan einstakling. En valtarinn eyðilagðist í kjölfarið.
Beggi er eitthvað meiddur í öxlum en hann meiddist heima hjá sér í nýja nuddstólnum sínum.
Þröstur er svo eitthvað tæpur í nára en það er eftir einhverjar leikfimisæfingar heima hjá sér.
Íþróttir | Breytt 11.11.2007 kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.11.2007 | 15:34
Skuldir leikmanna
Þetta er skuldastaða leikmanna í dag. Hægt er að borga inná reikning 1101-26-500505 á kt:050577-3769 (Freyr Brynjarsson). Borga þarf þessa skuld fyrir 4.des annars leggst 500 kr í vanskilagjald.
Nafn Skuld Búnir að borga
Andri 400
Arnar P 1200
Arnar Jón 2800
Aron Rafn 500
Magnús 500 Búin að borga
Gunnar Berg 4900
Freyr 0
Gísli G 700
Gísli Jón 0
Halldór 6600
Jón Karl 1200
Þórður Rafn 0
Kristján Örn 4500
Kári Kristján 500 Búin að borga
Pétur Páls 3300
Sigurbergur 0
Þröstur 0
Finnbogi 1000
Sigurjón 0
Óskar 1000 Búnin að borga
Aron Kristjáns 0
Halldór og Gunnar Berg eru mennirnir sem halda sjóðnum digrum og vert að þakka þeim sérstaklega fyrir sitt framlag.
Kv. Sektarsjóðurinn.
Íþróttir | Breytt 10.11.2007 kl. 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.11.2007 | 15:32
Engin Haukamaður í liði umferðar 1-7!
Mér finnst þetta ótrúlegt að lið sem er í 1. sæti úrvalsdeildar ásamt Stjörnunni eigi ekki leikmann í liði umferðar 1-7. Það eru 4 leikmenn frá Fram, 2 leikmenn frá Stjörnunni, 1 frá Akureyri og 1 frá HK. Veit einhver hver velur í þetta lið er hann flokksbundin Framari? Nei ég bara spyr - væri gaman að heyra hvað ykkur finnst um þetta. Ég ætla ekki að halda því fram að þessir leikmenn eigi þetta ekki skilið en mig langar soldið að vita hvernig valið fer fram, er skoðað flest skot varin, markahæstur, besta skotnýtingin eða er þetta bara einn maður út í bæ sem velur eftir geðþóknun.
Ég vil halda því fram að það hefði átt að vera pláss fyrir alla vegna einn Haukamann. Hver það er verður að vera ykkar að velja.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.11.2007 | 21:48
Sigur í bikar
Jæja þá eru við komnir áfram í bikarnum og næsta skref er 8-liða úrslit. Leikurinn í kvöld var mjög slakur af okkar hálfu og í raun ekki mikið gagn að fjalla eitthvað sérstaklega um hann. Leikurinn vannst þó örugglega 35-25. Það vantaði þó nokkra leikmenn. Andri Stefan og Arnar Jón voru meiddir og Jón Karl var veikur. Bestu menn okkar í kvöld voru Beggi, þröstur, Pétur ásamt þeim Gísla og Magga í markinu.
Næsti leikur er gegn Val 14.nóvember að Ásvöllum.
Markaskorarar koma síðar.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.11.2007 | 18:22
Haukar2 nálægt því að leggja Íslandsmeistarana
Jæja kannski ekki alveg en í dag áttust við Haukar2 sem samastóð af gömlum kempum eins og Aron Kristjánsson, Bjarna Frosta, Þorkell Magnússon, Gústi og Sigurjón Bjarnasynir ásamt fleirum. Staðan í hálfleik var 18-11 og loka staða aðeins 10 marka tap. Markahæstur haukamanna var þjálfari meistarflokks hann Aron Kristjáns með 7 mörk. Loka staða 33-23.
Við haukamenn eigum leik við ÍR2 annað kvöld kl. 18:45 í Austurbergi.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2007 | 20:26
Blokkeringar í handbolta
Ég vildi fá að vita hvaða fyrirmæli dómarar fá um ólöglegar blokkeringa í handboltanum en oft er misjafnt eftir dómurum hvenær dæmt er ólögleg blokkering. Ég ákvað því að ráðfæra mig við Guðjón L. Sigurðsson yfirdómara í handboltanum hér á Íslandi. (hættur sem betur fer :)Það virðist vera í nánast hverjum leik sem þjálfarar hoppa upp og vilja fá dæmda ólöglega blokkeringu og sumir leikmenn eru alveg á mörkunum en komast oftar en ekki upp með slæma blokkeringu.
Ég fékk senda frá honum Guðjóni vini mínum reglu 8 úr reglum HSÍ sem heitir "Brot og óíþróttamannsleg hegðun" ásamt því að hann kom með smá aukaútskýringu:
Greinar 8.1c og 8.2b ná yfir hvað er löglegt og hvað ekki varðandi blokkeringar. Það er erfitt að útskýra nákvæmlega hvað má og hvað ekki en ef leikmaður er búinn að staðsetja sig og notar ekki hendur eða fætur til að hindra mótherja þá telst það löglegt. Algengustu blokkeringar, sem dæmdar eru ólöglegar, eru vegna þess að leikmenn nota fætur (stíga út í varnarmann) eða nota varnarmann sem stuðpúða út úr blokkeringu.
Við haukamenn þökkum Guðjóni fyrir þessa skýringu.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.11.2007 | 23:11
Sunnudagskvöld, sunnudagur, mánudagur
Þetta er nú meiri vitleysan með þennan blessaða bikar. Við eigum að spila við ÍR2 og þeir eru búnir að breyta leiktímanum þrisvar sinnum á tveimur dögum. Fyrst átti leikurinn að vera á sunnudagskvöldið kl 19 svo var honum breytt og átti að spila hann á sunndeginum kl.13 en eitthvað virðist þeim erfitt hjá ÍR að ná í lið og töldu að betra væri að hafa hann á mánudagskvöldið kl. 19. Ef það er eitthvað vandamál með að ná í lið afhverju að skrá sig þá í þessa bikarkeppni í fyrsta stað. Svo kom upp sú staða að 2.flokkur Hauka á leik á sama tíma á mánudaginn en HSÍ vildi frekar fresta honum en að halda sig bara við upprunalegu tímasetninguna á sunnudeginum. Ef þeir ná ekki í lið á sunnudegi þá held ég að það séu ekkert rosalegar líkur á að menn mæti á mánudagskvöldi. ÞVÍLÍKT RUGL.
Ekki áfram ír
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2007 | 00:29
Góður sigur gegn HK

Næsti leikur er gegn Val í deild en í millitíðinni förum við í Austurbergið og mætum þar ÍR2.
Markaskor: Freyr 10/14, Arnar Jón 5/9, Beggi 4/7, Andri 3/5, Gísli Jón 2/3, Þröstur 2/4.
Maggi varði 11 og Gísli Guðmund 3.
![]() |
Haukar lögðu HK af öryggi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.10.2007 | 23:50
Haukar-HK miðvikudag kl.20 N1-deild karla
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar