Færsluflokkur: Íþróttir

Laser Tag

Laser TagJá það var farið í Laser Tag sem staðsett er í kópavogi. Skipt var upp í ungir vs gamlir og voru ungir í rauða liðinu og gamlir í bláa liðinu. Fyrsti leikurinn fór þannig að gamlir unnu hann en í seinni leiknum voru það ungir sem fóru með sigur á hólmi. Í samanlögðu hafa ungir smá forskot en það er alveg ljóst að það verður að fara fram úrslitaleikur og því er staðan 1-1. Þess má geta að dóttir hans Dóra spilaði fyrir hann í seinni leiknum en Dóri var í 3 sæti í fyrstu umferðinni, en hún stóð sig vel og varð ekki í síðasta sæti. Það má þó segja að nokkrir af ungu hafa greinilega fundið sína íþrótt þarna því ekki er innanhúsknattspyrna þeirra fag. Leikmenn eins og Þröstur og Pétur eiga vel heima í hernum. Þröstur fær þann heiður að vera Laser Tag meistari en hann var í 1 sæti í fyrri leiknum og í 2 sæti í seinni en þó var Pétur með hærra heildarskor, þeir verða bara rífast um hver sé betri. Þó svo að ungir hafi átt besta leikmanninn þá áttu þeir einnig þann slakasta. Sá leikmaður lenti í síðasta sæti í báðum leikjum og má því með sanni segja að hans sterka hlið eru ekki skotbardagar. Hann náði ekki einu sinni að vinna dóttir hans Dóra sem er 13 ára. Vill ekki særa neinn og nefni því ekki leikmanninn á nafn en gef samt smá vísbendingu, (er fínn í golfi og er samfeðra og hann Svampur).

Hér eru samanlagt skor í þessum tveimur leikjum.

               Stig           Sæti

Óskar      400           15

Jón Karl   987           3

Elli           624           11

Maggi      758           7

Gísli G      571           13

Gísli J       681           8

Andri       459           14

Kári         611           12

Beggi      307           16

Þröstur   1169          2

Tóti         981            4

Gunni      841            6

Addi P     679            9

Pétur      1181          1

Halldór    671           10

Freyr       867           5


Óvissuæfing?

Í dag er skipulögð svokölluð óvissuæfing, en þetta er greinilega eitthver dönsk hugmynd sem Aron kemur með að utan. Það eina sem við vitum er að mæting er kl.13 að Ásvelli og við eigum að vera í íþróttaklæðnaði og að þetta fer fram innandyra (sem betur fer). Hefðum alveg eins búist við útihlaupi eftir leikinn í gær. Kannski verður bara píptest í staðinn. Æfingin á að standa í 2 tíma. Ég læt ykkur vita í kvöld hvernig þessi óvissuæfing fer fram.

Í kvöld förum við liðfélagarnir ásamt konum út að borða á Como. Þar verður í boði Susi í forrétt og svo steikarhlaðborð.

 


Tap í fyrsta leik ársins

Það var ekki góður leikur sem við spiluðum í kvöld þegar við mættum Val. Byrjuðum ágætlega og náðum 3 marka forustu 6-9 en þá fór sóknaleikurinn að verða tilviljunakenndari og við byrjuðum að skjóta lélegum skotum. Þeir komust inn í leikinn og voru yfir 15-13 í hálfleik. Í seinnihálfleik lékum við eins og asnar og létum Óla í markinu hjá þeim verja allt of marga bolta. Fengum á okkur 17 mörk í seinnihálfleik en við skoruðum 14 sem er allt í lagi nema hvað við vorum engan vegin klárir í að spila okkar varnaleik og því fylgir oft minni markvarsla. Þetta minnti soldið á leikinn sem við töpuðum í fyrstu umferðinni gegn Stjörnunni. 

Næsti leikur er gegn ÍBV á heimavelli og þar kemur ekkert annað en sigur til greina.

markaskor: Beggi 8/12, Andri 5/10, Gunni 5/8.


Valur vs Haukar í kvöld - N1-deildin

N1(1)Þá er mótið loks að byrja aftur eftir langt hlé. Við haukamenn erum búnir að æfa vel og fórum í æfingaferð til Frakklands núna í lok janúar. Þar áttum við misjafna leiki en við spiluðum 3 leiki og töpuðum einum örugglega, jafntefli í þeim næsta og töpuðum síðan í síðasta leiknum með hjálp frá dómurum leiksins.

Í kvöld förum við að Hlíðarenda og mætum Valsmönnum í 5 sinn á þessu keppnistímabili. Tveir í deild og tveir í bikar. Í deild höfum við unnið einn og í hinum varð jafntefli. Í bikarnum þá unnu Valsmenn í Eimskipsbikarnum en við unnum í deildarbikarnum. Þetta verður án efa hörkuleikur og mjög mikilvægt fyrir bæði lið að ná 2 stigum.

Hjá okkur vantar ennþá Arnar Jón og svo eru Dóri og Andri Stefan tæpir. Líklega verður Andri ekkert með.

Leikurinn hefst kl. 20 að Hlíðarenda. Áhorfandi númer 555 fær frítt inn. 


Tap gegn Chambery

Í dag spiluðum við gegn Chambery og sá leikur var jafn framanaf en svo komust þeir í mest 6 mörk í fyrrihálfleik og staðan var 17-11 í hálfleik. Í seinni hálfleik mættu menn tilbúinir og náðum við að minnka muninn í 2 mörk 22-20 en þá tóku dómarar leiksins sig til og gjörsamlega misþyrmdu okkur með fáranlegum dómum. Ruðningar og skref voru í miklu uppáhaldi hjá þeim og loka staðan var 31-26.

Á morgun förum við snemma til London og munum við eyða deginum þar til við förum kl. 21 annað kvöld. Skipulögð er tour um London fyrir þá sem vilja.

Markaskor í leiknum: Elli 7/10, Beggi 5/12.

Maggi stóð í rammanum og stóð sig vel.  


Chambery - Haukar í dag

Í dag fer fram þriðji og síðasti leikur okkar í þessum æfingamóti. Liðið sem við mætum heitir Chambery og er í 3 sæti frönsku deildarinnar. Í liði Chambery er hinn magnaði Jackson Richardson sem spilaði með Franska landsliðinu hér á árum áður. Hann hefur reyndar ekkert spilað í hinum leikjunum en hann er greinilega að hvíla sig fyrir leikinn gegn okkur. Þeir töpuðu fyrir Silkeborg í fyrsta leik sínum en unnu svo Dunkurq í gær með 4 mörkum.

Andri, Dóri og Arnar Jón verða ekki með í dag. Arnar Jón og Dóri hafa ekkert spila í þessum leikjum og Andri Stefan meiddist lítiðlega á ökkla.  


Jafntefli við Bjeringbro Silkiborg

Það var allta annað að sjá til leiks okkar í gær þegar við mættum Bjeringbro frá danmerku. Þetta lið var fyrirfram talið sterkasta liðið í þessu móti. Við mættum tilbúinir til leiks og þar fór Andri Stefan fremstur í flokki í fyrrihálfleik en hann setti 8 mörk. Hann meiddist svo snemma í seinni hálfleik og spilaði ekkert meir. Staðan í hálfleik var 17-16 okkur í vil. Í seinni hálfleik náðum við mest 4 marka forustu en við misstum að niður og þegar um 3 mín voru eftir voru þeir 2 mörkum yfir. Við náðum að jafna og þeir áttu svo síðustu sóknina í leiknum en náðu ekki að skora og því jafntefli staðreynd 34-34.

Beggi 10/14, Andri 8/12, Freyr 6/7, Kári 6/7, Elli 2/4, Gunni 1/5, Gísli Jón 1/1.

Gísli Guðmunds varði vel í markinu og var með um 15 bolta.

Næsti leikur er í dag. 


Viva la France

Hér erum við í Frakklandinu búnir að spila einn leik og vægast sagt skíta upp á bak þar. Fer ekkert nánar út í það hér, sá leikur er búin og ekki hægt að gera mikið meira upp á bak. Á morgun förum við til Lille og spilum við Beringborg Silkiborg, en við mættum þeim einmitt í haust þegar við fórum til Danmerkur í æfingaferð. Töpuðum þeim leik með 2-3 mörkum að mig minni. 

Búnar eru tvær æfingar og að sjálfsögðu hefur verið fótbolti í upphitun. Ungir vs Gamlir og það er sama sagan Gamlir eru með þessa ungu punga í vasanum, þessir drengir völdu greinilega rétta íþrótt. 


Borga í sektarsjóð

Þá fer að líða að skuldadögum. Menn þurfa að borga sína sekt hér fyrir neðan fyrir laugardaginn 2.febrúar.

Borga inn á reikning 1101-26-500505 á kt:050577-3769 (BYR í hafnafirði)

 AgustSeptOktNovAlls gr.Skuldir  alls
Andri Stefan400 500         900     0
Arnar Pétursson1400 1200      4.500          1.400     5.700
Arnar Jón Agnarss.23005002500         400          5.300     400
Aron Rafn1000500500         500          1.500     1.000
Magnús Sigmunds0500          500     0
Gunnar Berg Viktors110022002700      1.000          6.000     1.000
Freyr Brynjarsson1700           500          2.200     0
Gísli Guðmundsson700500500      1.700     0
Gísli Jón Þórisson2400        1.400          2.400     1.400
Halldór Ingólfsson410010001500         500          8.000     -900
Jón Karl Björnsson7005001000         200          1.000     1.400
Þórður Rafn1200500          700          1.700     700
Kristján Örn28001500200              -     4.500
Kári Kristjánsson14001000          500          3.400     -500
Pétur Pálsson2800500          500                  -     3.800
Sigurbergur Sveins2800200       1.800          2.800     2.000
Þröstur Þráinsson900           900             900     900
Finnbogi1000                -     1.000
Sigurjón0                -     0
Jónatan            500                  -     500
                  -      
Óskar Ármansson  1000      1.000          1.000     1.000
Hörður Harðarson                 -      
Aron Coach         1.500          1.500     0
    28.700         9.400        11.600         16.400        42.200     23.900
 

 

 

 

 


Afhverju ekki Frakkland!!!!

Frábær fyrrihálfleikur hjá strákunum þ.e.a.s. vörn og markvarsla. Hefði verið frábært ef við hefðum verið að spila við Frakkana í dag því ég held að við náum ekki svona hálfleik á morgun. Hreiðar var magnaður í rammanum í fyrrihálfleik og vörnin með Fúsa og Ásgeiri í fantaformi. Seinnihálfleikur byrjaði ekki vel og var sókarleikurinn slakur eins og á móti Svíum. Skil ekki afhverju Einar Hólmgeirs skýtur ekki á markið, hann var aldrei feimin við það þegar hann spilaði með ÍR. Svo er það García, hann á bara ekkert heima í þessu liði. Hann er alltof þungur á sér og á ekkert heima á þessu móti.

Haukamennirnir Birkir og Ásgeir voru fínir, þá sérstaklega Ásgeir sem spilaði vörnina mjög vel. Birkir leysti vel seinnihálfleikinn eftir að Hreiðar fann sig ekki eins og í fyrrihálfleik. Vignir setti eitt mark og hélt upp á það með því að fá tvær mínutur ;).

Frakkar á morgun og því miður held ég að sá leikur tapist, en maður vonar aftur á móti það besta. Ég spái 30-25 fyrir Frakka. Sóknarleikurinn verður þeim að falli.


mbl.is EM: Stórsigur gegn Slóvakíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband