Færsluflokkur: Íþróttir
19.1.2008 | 13:35
Ísland vs Slóvakía
Kl.17:15 byrjar alvaran hjá okkar mönnum og það er eins gott að sigur vinnist í þeim leik, því annars er þetta mót svo gott sem búið. Ég trúi ekki öðru en að menn komi tilbúnir til leiks og fari með sigur á hólmi. Ég spái Íslendingum sigri 30 - 26. Komið endilega með ykkar spá í athugasemdir, sá sem er næstur úrslitunum fær kók og prins.
P.s. athugið líka að það er leikur á VÍS.is þar sem hægt er að spá fyrir um úrslit leiksins og þar eru vegleg verðlaun.
FB
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2008 | 21:03
Svenson með Ísland í vasanum
Ekki gekk það í kvöld frekar en síðstu 44 ár. Tap gegn Svíþjóð í vægast sagt hörmulegum leik. Tomas Svenson gjörsamlega át leikmenn okkar í kvöld og voru strákarnir orðnir hræddir og það leiðir af sér lélegri skot. Eini maðurinn sem var á lífi sóknarlega var Ólafur Stefánsson, aðrir voru einfaldlega ekki með. Markverðir okkar komust ágætlega frá sínu og vörnin var fín þegar á heildina er litið. Fallegustu mörkin áttu Ólafur þegar hann hamraði tuðruna í skeitinn í stöðunni 10-14 og svo Logi Geirsson með þessu lokamarki frá miðju, vonum bara að þetta mark hjálpi okkur ef markatala kemur til með að ákveða hvaða lið kemst áfram.
Haukamennirnir í liðinu voru fínir. Birkir var góður og verður ekki sakaður um þau mörk sem hann fékk á sig(sjá mynd ;)). Ásgeir spilaði vörnina vel en var eins og hinir staður sóknarlega. Vignir spilaði ekki mikið en hann á mikið inni.
Menn leiksins hjá Íslandi voru markverðirnir Birkir og Hreiðar ásamt Ólafi Stef.
Áfram Haukar og Ísland.
Næsti leikur á laugardaginn og sá leikur verður að vinnast annars er þetta búið spil.
![]() |
Svíar sigruðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.1.2008 | 20:13
Ísland vs Svíþjóð
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.1.2008 | 21:32
Jólafríð búið og EM á næsta leiti - Tippa á úrslit
Er ekki komin tími á fyrstu færslu á nýju ári. Við Haukamenn erum ferskir á nýju ári og erum búnir að æfa eins og vel síðan 6.jan svo erum við líka búnir að bæta við okkur nýjum leikmanni. Elías Már Halldórsson hefur gegnið til liðs við okkur frá þýska liðinu Hansa Rostoc (pottþétt vitlaust skrifað). Nú í kvöld var fyrsta æfing hjá landsliðsmönnum okkar og á morgun er æfingaleikur við Aftureldingu (er að hugsa um að panta flug þangað frá Keflavíkurflugvelli).
Nú er EM að byrja og í tilefni þess verður smá leikur og ætla ég að biðja menn að skrifa í athugasemdir spá um hverjir komast í undanúrslit og í hvaða sæti Ísland lendir jafnvel að setja líka hverjir vinna mótið. Það verður svo krýndur sigurvegari og verður hann leystur út með glæsilegum vinninugum. Það er öllum heimilt að taka þátt, bara ein regla að setja nafnið sitt og póstfang annars verð ég að deleta ykkur.
Ég spái í topp 4
Frakkland, Danmörk, Noregur, Þýskaland.
Ísland lendir í 9 sæti
Sigurvegarar verða Frakkland
Kv. Freyr B
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2007 | 22:15
Úrslitaleikurinn á morgun í Höllinni
Það var hart barist í kvöld þegar við unnum Val í undanúrslitum deildarbikarsins 27-26. Við byrjuðum betur og komust í 3-1 en þá fóru Valsmenn í gang og komust í 4-9. Við náðum að rétta úr okkar hlut og staðan í hálfleik var 13-14 fyrir Val. Seinni hálfleikur byrjaði ekki vel fyrir okkur því þeir skoruðu fyrstu 2 mörkin. Við ætluðum ekki að tapa þessum leik og girtum okkur í brók og jöfnuðu leikinn 19-19. Jafnt var á öllum tölum þar til í stöðunni 22-22 en þá náðum við að koma þeim aðeins frá okkur og þegar 6 mín voru eftir var staðan 25 - 22. Í stöðunni 27-24 gáfum við soldið eftir og þeir fengu tækifæri til að jafna þar sem þeir áttu síðustu sókn leiksins þegar 12 sek voru eftir, Maggi varði skot frá Erni og Andri náði frákastinu og leikurinn búin. Sigur í leik þar sem dómarar leiksins voru ekki alveg í takt og ef eitthvað er þá hallaði á okkur frekar en Val. Það sem skipti máli var að við létum ekki dómarana fara allt of mikið í taugarnar á okkur heldur spiluðum okkar leik með Halldór Ingólfsson fremstan í flokki jafningja. Kallinn setti 7 mörk samkvæmt mogganum og átti ófáar stoðsendingar. Tvímannalaust maður leiksins.
Á morgun verður úrslitaleikurinn gegn Fram en þeir lögðu Stjörnuna í hörku spennandi leik. Leikurinn hefst kl.16 í laugardalshöllinni. Nú er bara að mæta og styðja Haukana til sigurs.
![]() |
Haukar í úrslit deildabikarsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.12.2007 | 00:01
Deildarbikarinn
Í kvöld föstudag mætum við haukamenn til leiks í laugardalshöllina og spilum þar við valsmenn í undanúrslitum deildarbikarsins. Leikurinn hefst kl.18:30. Það lið sem fer með sigur á hólmi spilar til úrslita á morgun laugardag við annað hvort Fram eða Stjörnuna. Við haukamenn verðum án Arnars Jóns og Jón Karls. Það er bikar í boði og við ætlum okkur sigur. Hvet alla haukamenn til að mæta og styðja okkur til sigurs. Þetta verður okkar bikarkeppni þar sem við erum dottnir út úr Eimskip -bikarnum.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2007 | 11:55
Gleðileg jól - myndband
Gleðileg jól til ykkar allra. Hér kemur létt myndband með jólalagi í óhefðbundnum búningi.
http://www.youtube.com/view_play_list?p=FCFD004E11722248
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.12.2007 | 22:21
Anja Andersen í rugl skotum
Fann hérna myndband af þessari handboltakonu sem örugglega sú frægast hingað til. Vissi að hún væri góð í handbolta og í þessu myndbandi gefur hún handboltafólki hugmyndir sem myndu gera þjálfara ykkar geðveika. Skoðið þetta og farið svo að æfa ykkur í þessum skotum.
http://www.youtube.com/watch?v=kKqeaHajU5U
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2007 | 21:01
4 stiga forskot í pásunni.
Já það var bara upprúllun hjá stjörnunni í kvöld gegn Fram. Þetta eru mjög góð úrslit fyrir okkur í haukunum, því núna erum við með 4 stiga forskot eftir 2 umferðir. Það eru reyndar heilar 2 umferðir eftir þannig að við erum ekki búnir að vinna neitt ennþá. Ég bjóst reyndar við að Stjarnan myndi taka þennan leik eftir að þeir töpuðu í bikarnum fyrir þeim. Spáði því líka að Valur myndi vinna HK en staðan er 16-13 fyrir Val þegar ég skrifa þetta. Ef Valsararnir vinna þennan leik þá mætum við þeim í undanúrslitum deildarbikarsins þann 28.des. Ef HK vinnur þá fáum við Stjörnuna. Ég vil Val.
Kv. FB
![]() |
Öruggur sigur Stjörnunnar - Valur lagði HK |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2007 | 09:17
Nýtt kerfi í vopnabúri Haukamanna
Aron Kristjáns er búin að eyða miklum tíma í æfingar á þessu kerfi og verður það notað einhverntíman í vetur.
http://www.youtube.com/watch?v=aDnhggUyPcY
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 163586
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Viðskipti
- Bjartsýnn á horfur í fluginu
- Breytingar á stjórnendateymi N1
- Bjartsýnn á að yfirtakan gangi eftir
- Bestu tækifærin myndast þegar enginn þorir
- Erlend netverslun nam um 10 milljörðum janúar til apríl
- Á sjöunda milljarð í lóðakaup og gatnagerðargjöld
- Kvika sá ljósið í sólinni
- Innviðafélag Íslands stofnað
- Yfirsýn milli markaða ábótavant
- Rekstrarumhverfið krefjandi