Færsluflokkur: Íþróttir

Síðasti kúrekin í dalnum!

Það var viðtal tekið við Frey í Víkurfréttum sem kom út í gær. Hægt er að nálgast þá grein hér.

Aldrei hætta á öðru en sigri

SIgurbergur SveinssonÞað voru ákveðnir haukamenn sem mættu í Safamýrina til að sigra Framara. Í Andri Stefan Guðrunarsonupphafi var jafnt á öllum tölum en svo síðla fyrrihálfleiks náðum við forustu sem við héldum til enda. Í hálfleik var staðan 17-15 fyrir okkur. Í seinnihálfeik náðum við mest 8 marka forustu og sigurinn því aldrei í hættu. Menn komu svo sannalega tilbúnir til leiks. Leikmenn sem áttu dapran dag á Akureyri spiluðu stjörnuleik í dag. Beggi setti 12 mörk úr 15 skotum og Andri Stefan 10 úr 14 skotum. Við spiluðum fínan varnarleik en það var sóknarleikurinn sem vann þennan leik í dag. Menn voru að skjóta mjög vel á markmenn Fram og því var lítið um markvörslu hjá þeim. Það kom ekkert annað til greina en sigur í dag og maður hafði góða tilfinningu fyrir leiknum í allan dag. Nú er komin tveggja vikna frí vegna Bikarúrslitahelgar næstu helgi. Þar mætast Valur og Fram. Ég persónulega held með Val í þessum leik, veit ekki með ykkur. Ný könnun um hvernig leikurinn fer er hér hægra megin.

Kv. FB


mbl.is Haukar með öruggan sigur á Fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náðum stigi

Gunnar Berg ViktorssonÞað var ekki mikil breyting hjá okkur síðan úr leiknum við ÍBV. Við vorum engan vegin að spila vel og það var ekki fallegur handbolti til staðar. Í fyrrihálfleik var staðan 13-8 fyrir Akureyri. Magnús fékk rautt spjald fyrir 3x2 mín hjá Akureyri og það var alveg rétt þó svo að heimamenn vilja meina að dómarar leiksins hafi verið meira hliðhollir okkur. Norðan menn spila mjög gróft og uppskáru eftir því. Í seinnihálfleik fékk svo Einar Logi rautt fyrir að kýla Begga kaldann í andlitið. Mjög líklega óviljandi en samt sem áður er það rautt spjald samkvæmt reglum. Við vorum 5 mörkum undir lengi vel en fórum af stað þegar um 12 mín voru eftir. Freyr jafnaði 24-24 eftir að Maggi hafði varið tvö dauðafæri í röð. Gunnar Berg kom okkur svo yfir í fyrsta skipti 24-25 en þá náðu heimamenn hraðupphlaupi og fengu víti ásamt því að Gunnar Berg fékk 2 mín brottvísun. Akureyri skoraði úr vítinu og tvö næstu mörkin og voru komin yfir 27-25 og 1 1/2 mín eftir. Við gáfumst ekki upp og Andri skoraði næsta mark og Halldór Ingólfsson setti jöfnunarmarkið 30 sek fyrir leikslok og þar við sat, jafntefli staðreynd og megum við vera heppnir með að ná 1 stigi.

Næsti leikur er gegn Fram í Safamýrinni á sunnudaginn kl. 16. Mikilvægasti leikur vetrarins.

Gunnar Berg var okkar besti maður og setti 8 mörk og Dóri setti 7. Gísli stóð sig vel í rammanum og Maggi kom gríðalega sterkur inn af bekknum. Þessir menn skópu þetta stig okkar en aðrir eiga miklu meira inni.


mbl.is Akureyri og Haukar skildu jöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferð norður á morgun

 akureyri-merki2Þá er komið að næsta leik sem eru Akureyri og fer sá leikur fram fyrir norðan heiða. Akureyri hafa verið að koma sterkir til leiks eftir áramót og þeir eru mjög fastir fyrir og mætti segja grófir í undanförnum leikjum. Við ætlum okkur sigur í þessum leik. Við verðum að sigra á morgun ef við ætlum ekki að hleypa Fram og Val of nálægt. Við eigum einmitt leik svo við Fram á sunnudaginn. Þannig að næstu 4 dagar verða mjög mikilvægir fyrir framhaldið hjá okkur. Við höfum spilað 2 sinnum við Akureyri þar sem við unnum þá fyrir norðan og gerðum jafntefli á heimavelli. Nú er að duga eða drepast.

Það eru allir klárir hjá okkur og því erfitt fyrir þjálfaran að velja í lið. Þröstur og Tóti hvíla að þessu sinni.


Lélegt en sigur.

Gísli GuðmundssonSigur vannst gegn eyjamönnum í dag eftir kaflaskiptan leik. Eyjamenn byrjuðu betur og komust í 4-2 en þá fórum við loks í gang. Fyrrihálfleikur var fín af okkar hálfu og leiddum við 15-10. Í seinnihálfleik byrjuðum við betur og komust í 19-12 og svo 22-14. En þá fóru menn að vera kærulausir og í staðin fyrir að keyra yfir þá eins og við gerðum í fyrstu umferðinni þá hleyptu við þeim inn í leikinn. Eyjamenn minnkuðu muninn í 27-24 en við mörðum sigum 32-28. Það var ekki að sjá að efsta liðið væri að spila við það neðsta. Núna erum við búinir að spila tvo leiki og báðir slakir af okkar hálfu. Réttast væri að biðjast haukaáhorfendur og sjónvarpsáhorfendur afsökunar á okkar leik og er það hér með gert. Við erum efstir eins og er en með svona leikjum verður það ekki lengi. Næsti leikur er gegn Akureyri 21.feb og svo Fram 24.feb. Það er eins gott fyrir okkur að fara spila eins og menn því titillinn kemur ekki að sjálfum sér.

Markahæstu menn hjá okkur voru Kári með 7, Andri 5, Jón Karl 5, Beggi 3, Elli 3, Gísli Jón 3, Freyr 2, Gunnar 2, Arnar 2.

Gísli Guðmunds var okkar besti maður og varði 22 skot. Svo sannalega betri en enginn.


mbl.is 14 mörk Sigurðar dugðu Eyjamönnum ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haukar - ÍBV í dag

 

null          

 

 VS         ibv2_01

 

Í dag kl. 16 koma eyjamenn í heimsókn að Ásvelli. Við haukamenn höfum farið með sigur á hólmi í síðustu 2 leikjum en eyjamenn eru búnir að styrkja sig fyrir þennan leik og hafa fengið örvhenta skyttu til liðs við sig. Það verður ekkert vanmat í gangi að okkar hálfu og ætlum við okkur að koma okkur aftur á sigurbraut eftir tapleik gegn Val í síðustu umferð. Hjá okkur eru Halldór og Arnar Jón frá vegna meiðsla en aðrir eru klárir í slaginn. Við eigum jú nokkra eyjamenn í okkar liði. Arnar, Gunnar og Kári verða án efa klárir að mæta sínum gömlu félögum og þá sérstaklega vini sínum honum Sigurði Bragasyni. Nú er bara að vona að eyjamenn séu komnir upp á fast land því ekki hefur veðrið verið að hjálpa flugferðum eða Herjólfi.


Veðmál útkljáð - Ítalir

Sorry Gunnar Berg það virðist vera Kári sem vinnur þetta veðmál. 

03. feb. 2005 00:01

Mömmustrákar á Ítalíu

Ítalskir karlmenn virðast hanga ívið lengur í pilsfaldi mömmu sinnar en aðrir því stór hluti Ítala á þrítugs- og jafnvel fertugsaldri býr ennþá heima hjá foreldrum sínum. Þá virðist ekkert fararsnið vera á þessum mömmustrákum því þeim er að fjölga og þróunin er sú að þeir dvelja lengur í foreldrahúsum. Ríflega 36 prósent ítalskra karla á aldrinum 30-34 ára búa enn hjá mömmu. Ástæðurnar eru margþættar, meðal annars mikið atvinnuleysi og aukin framfærslukostnaður.


Eldri vs yngri í fótbolta

Yngri leikmennÞað er hefð hjá handboltamönnum að spila knattspyrnu í upphitun og þá er skipt upp í eldri gegn yngri. Nú erum við búnir að spila þó nokkra leiki og ekki seinna vænna en að greina frá úrslitum síðan í ágúst. Það þarf ekki að nefna það en eldri eru mun sterkari í þessum viðureignum og maður vorkennir oft þessum unglingum sem tapa hverjum leiknum á fætur öðrum. Til að sjá súlurit og kökurit þurfið þið að smella á tenginuna hér að neðan. 

 

Eldri þyrftu helst að spila í svona búningum eins og á mynd til að yngri eigi möguleika


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband