Færsluflokkur: Íþróttir

Haukar - HK : Frítt inn

 

null   vs  HK

Á morgun verður enn einn stórleikurinn að Ásvöllum en þá mætum við HK í lokaleik 3 umferðar. HK menn hafa verið sterkir í undanförnum leikjum og hafa unnið Val, ÍBV og svo nú Fram síðast. Fyrir bæði lið er þetta úrslitaleikur og það kemur ekkert annað en sigur til greina á okkar heimavelli. Við höfum unnið hina tvo leikina fyrst að Ásvöllum og svo í Digranesinu. Þess má geta að BYR ætlar að bjóða öllum á leikinn. Þannig að nú er engin afsökun á að mæta ekki. Leikurinn hefst kl.16

Ég setti saman nokkrar klippur frá því úr leiknum í fyrstu umferð, njótið.


Arnar Jón Agnarsson

Arnar_Jon_AgnarssonVegna mistaka hjá mér gleymdist að setja inn markið hans Arnar Jóns en eins og flestir vita hefur hann verið frá vegna meiðsla og hefur í raun ekki náð sér að fullu. Hann náði að skora sitt fyrsta mark í nokkurn tíma. Það er jákvætt að við skulum eiga inni mann sem er líklega skotfastasti leikmaður deildarinnar. Hann á án efa eftir að koma aftan að einhverju liði og setja þá tveggja stafa tölu. HK næst og Arnar fýlar sig ávallt vel á móti gömlu erkifjendunum enda gamall Bliki.

 

 


Sigur í Mosó

Andri Stefan GuðrunarsonSigur og 5 stiga forskot á næsta lið, ekki alslæmt. Heimamenn byrjuðu betur og settu 2 fyrstu mörkin en við byrjuðum í 5-1 / 3-2-1 vörn með Andra fyrir framan. Ekki gekk hún sem skildi og skiptum við í 6-0 vörn um miðjan fyrirhálfleik og þá fóru hjólin að snúast okkur í vil. Í hálfleik vorum við með 5 marka forustu. Í seinni hálfleik vorum við komnir í 8 marka forustu og þeir tveimur mönnum færri. Við töpuðum þeim mínutum 2-0. En við héldum þeim í góðri fjarlægð og komust þeir aldrei nær en 4 mörk. Loka staðan var svo 32-26. Andri Stefan var okkar markahæstur með 11 mörk og Gísli Jón með 5. Þess má geta að Andri var með 55% skotnýtingu (reiknið nú). Beggi ákvað að leyfa Andra bara að njóta sína og setti bara 1 mark að þessu sinni.

Næsti leikur er gegn HK að Ásvöllum næstkomandi laugardag.

Markaskor: Andri 11, Gísli 5, Jón Karl 4, Kári 4, Elli 2, Freyr 2, Beggi 1, Gunnar Berg 1, Pétur 1 og stórskyttan Arnar Jón setti eina slummu.

Gísli Guðmunds varði 11 bolta og Maggi 4.

P.s. Gúmmí Pétur tapaði veðmáli við Gisla G um hverjir færu áfram í viðureign Liverpool og Inter. :)

FB.


mbl.is Öruggur sigur hjá toppliði Hauka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afturelding-Haukar í kvöld kl.20

N1(1)Í kvöld förum við í heimsók í Mosó og mætum þar Aftureldingu. Afturelding á það til að spila mjög vel og það er alveg ljóst að við þurfum að spila vel ef við ætlum okkur sigur í kvöld. Þeir hafa tekið 3 stig af Val og verið inn í öllum leikjunum við hin liðin sem eru ofarlega. Nú er ekkert annað en að mæta í mosó og styðja Haukana til sigurs og þá erum við einu þrepi nær titlinum. Ef þessi leikur tapast komsta Valsmenn nær okkur en þeir eru mjög frískir núna og eiga leik við ÍBV. Afturelding er með fínan hóp og eru án efa með vanmetnasta leikmann deildarinnar en það er fyrrum félagi minn hann Ingimar Jónsson stórskytta sem er jafnvígur á hægri og vinstri.

MOSÓ KL.20

Kv. FB 


Sigur liðsheildarinnar gegn Stjörnunni.

SIgurbergur SveinssonÞað vannst góður og jafnframt mikilvægur sigur á Stjörnunni í dag. Leikurinn var jafn í upphafi en í seinni hluta fyrrihálfleik náðum við 3 marka forskoti 11-8. Í hálfleik var staðan svo 13-11 fyrir okkur. Í seinnihálfleik byrjuðum við mun betur og náðum mest 6 mörkum 18-12. Þeir náðu ekki að komast inn í leikinn aftur og við sigruðum 32-28. Þetta þýðir að Stjarnan er komnir 8 stigum á eftir okkur og því ekki í baráttunni lengur um Íslandsmeistaratitilinn. Við styrktum okkar stöðu á toppnum en Fram og Valur unnu bæði líka þannig að það verður barist til síðasta leiks. 9 leikir eftir og við með 4 stiga forskot á Fram.  Beggi setti 11 stykki í þessum leik og var besti maður leiksins ásamt markvörðunum Magga og Gísla. Svo má ekki gleyma vörninni hjá okkur sem var upp á sitt besta.

Arnar PéturssonAddi var öflugur í vörninni í dag.

Markaskor: Beggi 11, Freyr 6, Kári 5, Elías 3, Andri Stefan 3, Gunnar Berg 1,  Jón Karl 1, Gísli Jón 1, Halldór 1.


mbl.is Sigurbergur með 11 mörk gegn Stjörnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haukadagur á morgun að Ásvöllum

       vs  Stjarnan

 

Á morgun verður sannkallaður haukadagur en þá mætast kl.13:30 Haukar - Stjarnan í kvennaflokki og svo kl.16:00 mætast Haukar - Stjarnan í karlaflokki. Þetta verða án efa hörkuleikir og mikilvægt fyrir alla aðila að fá 2 stig. Adidas ætlar að gefa 150 fyrstu áhorfendunum miða á báða leikina og verða svo með vítakeppni í hálfleik á báðum leikjum þar sem Adidas bolti verður í vinning. Nú er ekkert annað í stöðunni en að mæta og styðja Haukana til sigur í kvenna og karlaleiknum. Þessir leikir verða sýndir í sjónvarpinu en það er miklu skemmtilegra að mæta og taka þátt í stemningunni.


Nýr skuldalisti

Jæja þá er komið að skuldadögum. Menn þurfa að borga fyrir 15. mars.

Kt:050577-3769     Reikningur:1101 - 26 - 500505

Gunnar Berg er sá eini sem á inneign í sektarsjóðnum. Sumir eiga eftir að gera upp gamlar skuldir.

SKULDALISTI      
 DesJanFebAlls greitt frá upphafiSkuldir  alls
Andri Stefan     1.400     400400        900     2.200
Arnar Pétursson     2.500     8002700     1.400     11.700
Arnar Jón Agnarss.     1.500     5001600     5.300     4.000
Aron Rafn        400      200     3.000     100
Magnús Sigmunds             -     200         500     200
Gunnar Berg Viktors     1.600     200400   10.000     -800
Freyr Brynjarsson             -     700      2.200     700
Gísli Guðmundsson     1.200     200600     1.700     2.000
Gísli Jón Þórisson     1.600     1000200     3.800     2.800
Halldór Ingólfsson     1.200     2001200     8.000     1.700
Jón Karl Björnsson        700     200      3.000     300
Þórður Rafn     2.200     200200     1.700     3.300
Kristján Örn                -     4.500
Kári Kristjánsson        400     4001000     3.400     1.300
Pétur Pálsson        500     600200     3.800     1.300
Sigurbergur Sveins     1.000     200700     2.800     3.900
Þröstur Þráinsson        500     200      1.900     600
Finnbogi                -     1.000
Elías Már 200700             -     900
Sigurjón                -     0
Jónatan  400             -     900
Tjörvi 200200             -     400
Stefán        500     1400              -     1.900
Óskar Ármansson  500     1.000     1.500
Hörður Harðarson                -     0
Aron Coach 700400     1.500     1.100
Samtals:   17.200         8.500        11.600        55.900              47.500    

 


Valur bikarmeistarar

ValurinnÞað er við hæfi að óska Valsmönnum til hamingju með bikarmeistartitilinn 2008. Á 10 ára fresti semsagt. Nei án gríns þá áttu Framarar ekki breik í Valsmenn. Sanngjarn sigur að þessu sinni eða hvað? Framarar vælandi á heimasíðu sinni eins og vanalega. Nú er bara að við Haukarnir klárum þessa dollu sem eftir er, hún skal verða okkar. Það verða því synir Friðriks sem vonandi hampa þessum stærstu titlum. Valur bikarmeistara og Haukar Íslandsmeistara?

 

Menn voru á því að Valur myndi vinna þennan leik samkvæmt skoðanakönnuninni. En það voru um 32% sem söðu að þeir myndu vinna. 28 % sögðu að Fram myndi vinna. 14% söðu að Valur myndi vinna eftir framlengingu og svo voru um 26 % sem sögðu að Valur myndi vinna en að Fram myndi kæra. Það getur ennþá gerst.

Sem sagt voru 72% sögðu að Valur myndi vinna með einum eða öðrum hætti.  

Læt hér fylgja leikinn 98. :=)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband