28.11.2007 | 22:35
Stórleikur í N1-deildinni
Þá er komið að leiknum sem við haukamenn höfum verið að bíða eftir þegar við förum í heimsókn í Mýrina og mætum þar Stjörnunni. Síðasti leikur milli þessa liða fór illa en þar töpuðum við 37-30. Þetta verður án efa hörkuleikur og mun jafnari en síðasti leikur þessa liða. Leikurinn hefst kl. 20 í Mýrinni. Halldór Ingólfsson er enn meiddur og verður ekki með í þessum leik, aðrir eru klárir í slaginn og vel það.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2007 | 20:06
Jafntefli gegn Akureyri
Það var ekki góð úrslit af okkar hálfu í kvöld þegar við náðum jafntefli gegn Akureyri að Ásvöllum. Við leiddum leikinn lengst af en þegar staðan var 20-17 fyrir okkur gerðumst við sekir um 4 tæknifeila í sókninni og þeir komust yfir 20-22. En við gáfust ekki upp og náðum að jafna leikinn 24-24 og 25-25 en það varð einmitt lokastaðan í leiknum. Við gerðum okkur seka um allta of mörg mistök í leiknum en ef ekki hefði verið fyrir stórleik Magnúsar í markinu þá hefðum við ekki náð stigi í dag. Næsti leikur er gegn Stjörnunni og það verður sá stærsti á tímabilinu hingað til en þeir geta náð okkur af stigum ef þeir vinna þá leiki sem þeir eiga inni. Það verður því barátta um efsta sætið í þeim leik.
Staðan í dag er svona:
Haukar 11 leikir 17 stig
HK 10 leikir 15 stig
Fram 10 leikir 13 stig
Stjarnan 9 leikir 13 stig
Næsti leikur hjá Stjörnunni er gegn Val að Hlíðarenda á morgun.
Markaskor í leiknum í dag: Kári 5/5, Arnar Jón 5/10, Jón Karl 4/6, Beggi 4/7, Andri 3/5, Freyr 2/5, Þröstur 1/2, Gunnar Berg 1/4.
Maggi 24 varðir
Gísli varði 1 víti.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2007 | 10:56
Haukar - Akureyri í dag kl.17
Í dag kl. 17 koma Akureyringar í heimsókn að Ásvelli og mæta efsta liði deildarinnar. Þetta verður án efa hörkuleikur en Akureyringar hafa að skipa mjög sterkum einstaklingum en hafa ekki náð að stilla saman strengi sína ennþá sem liðsheild. Við ætlum okkur sigur í dag og tryggja okkur toppsætið en það hefst bara með áframhaldandi vörn og markvörslu að okkar hálfu. Vonum að sem flestir mæti á svæðið og styðji okkur Haukana til sigurs.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2007 | 12:35
Hjörtur gómaður á Stöð 2
Núna í hádegisfréttunum á stöð 2 var sýnt úr leik okkar gegn Fram og þar sýnir Hjörtur Hinriks sitt rétta andlit þegar hann slær mig niður að algjöru óþörfu. Gaman að sjá að stöð 2 hafi séð ástæðu til að sína þetta óíþróttamannslega atvik. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann hagar sér á þennan hátt og hvet ég dómara til að fylgjast betur með þessum einstaklingi í framtíðinni.
FB
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.11.2007 | 00:43
Baráttu sigur gegn Fram
Það byrjaði ekki vel í kvöld þegar Fram mætti að Ásvelli. Fram komst í 5-1 í upphafi og voru yfir 9-5 og svo 10-6 en þá fór haukavélin í gang og við skoruðum næstu 6 mörkin og vorum yfir 12-10 í hálfleik. Í seinnihálfleik var aldrei spurning hvar sigurinn myndi enda og kláruðum við leikinn örugglega 26-20. Þetta gerið það að verkum að Fram er núna 3 stigum frá okkur. Vörn og markvarsla var það sem skóp þennan sigur eins og flesta leiki hjá okkur undanfarið. Gísli Guðmunds var án efa maður leiksins með 16 varðar tuðrur og þar af 2 vítaköst. Við erum klárlega með besta varnaliðið í deildinni. Kári kom sterkur inn en hann er ennþá að komast í leikform. Í dag skoraði Kári 2 en fiskaði ein 6 vítaköst. Staðan í deildinni er að við erum efstir með 16 stig eftir 10 leiki en Stjarnan og HK erum eð 13 stig eftir 9 leiki.
Næsti leikur er gegn Akureyri á laugardaginn að Ásvöllum.
Markaskor í leiknum var á þessa leið: Jón Karl 6/10, Andri 5/9, Freyr 3/4, Halldór 3/5, Arnar Jón 2/2, Gunnar Berg 2/2, Kári 2/3, Beggi 2/4, Gísli Jón 1/1.
![]() |
Haukar lögðu Fram með sex marka mun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2007 | 17:54
Valur - Haukar í bikarnum
Það verður aldeilis stórleikur í 8-liða úrslitum bikarsins þegar við förum á minn annan heimavöll Hlíðarenda. Leikurinn fer fram 2 eða 3. desember. Það er reyndar annar stórleikur þegar Fram og Stjarnan mætast í Framheimilinu.
Aðrir leikir eru Þróttur Vogur - Víkingur og Afturelding 2 - Akureyri. Það má segja að Víkingur og Akureyri séu örugg áfram í 4- liða úrslit Eimskipsbikarsins.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2007 | 13:19
Engin Framari, Stjörnumaður eða Akureyringur
Núna undanfarnar vikur hefur verið skoðanakönnum um með hvaða liði fólk heldur sem er að skoða þessa síðu og af þeim 52 sem hafa kosið þá er engin Framari, Stjörnumaður eða Akureyringur sem skoða þessa síðu. Eða kannski heldur bara engin með þessum liðu?
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2007 | 13:07
Fréttablaðið að klikka!
Það virðist sem að Fréttablaðið hafi klikkað í morgun. Þetta er blað sem státar sig af því að vera eina blaðið sem kemur út á sunnudögum og greinir þannig frá þeim íþróttaviðburðum sem voru á laugardeginum. í þetta skipti þá virðist eitthvað hafa klikkað því það er ekki minnst á okkar leik við ÍBV í gær sem fór fram kl. 15. Það eru ekki einu sinni úrslit leiksins. Svo er spurning hvort það hafi verið nokkur blaðamaður á leiknum, veit það ekki en þetta er lélegt og vonandi leiðrétta þeir þetta og koma með einhverja umfjöllun í Fréttablaðinu á morgun.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2007 | 00:35
Efsta sætið í N-1 deildinni okkar
Í dag var lagt af stað til eyja og þar mættum við ekki svo frískum eyjamönnum. Þessi leikur vorum við með í hendi okkar frá fyrstu mínútu. Staðan í hálfleik var 18-9 okkur í vil og lokastaða var 23-37 haukamönnum í vil.
Leiðinlegt atvik gerðist í leiknum þegar Sigurður Bragason réðst að Halldóri Ingólfsyni og reyndi ítrekað að kýla hann. Dóri stoppaði hann vel í vörninni en þá ætlaði Sigurður að kýla hann. Ef ekki hefði verið fyrir Kára Kristján sem náði að halda aðeins í hendina á Sigga þannig að hann náði ekki neinu alvöru höggi en þetta var klárlega rautt spjald á Sigurð. Sigurður er greinilega ennþá eitthvað ósáttur við Dóra síðan 2005 en þá lenti þeim saman í úrslitaeigvíginu það ár. Held að Siggi ætti að koma upp á land og ræða við Dóra um þetta mál því eitthver misskilningur er hér á ferð.
Markahæstu menn voru: Jón Karl 7 þar af 4 víti, Andri 6, Arnar Jón 6, Freyr 6, Gunnar Berg 4, Tóti 3, Kári 2, Þröstur 1, Arnar P 1 og Halldór 1.
Gísli stóð í markinu allann leikinn og varði mjög vel og var ásamt vörn okkar besti maður leiksins.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.11.2007 | 08:55
ÍBV-Haukar í dag kl.15
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 163588
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar