4 stiga forskot í pásunni.

Já það var bara upprúllun hjá stjörnunni í kvöld gegn Fram. Þetta eru mjög góð úrslit fyrir okkur í haukunum, því núna erum við með 4 stiga forskot eftir 2 umferðir. Það eru reyndar heilar 2 umferðir eftir þannig að við erum ekki búnir að vinna neitt ennþá. Ég bjóst reyndar við að Stjarnan myndi taka þennan leik eftir að þeir töpuðu í bikarnum fyrir þeim. Spáði því líka að Valur myndi vinna HK en staðan er 16-13 fyrir Val þegar ég skrifa þetta. Ef Valsararnir vinna þennan leik þá mætum við þeim í undanúrslitum deildarbikarsins þann 28.des. Ef HK vinnur þá fáum við Stjörnuna. Ég vil Val.

Kv. FB


mbl.is Öruggur sigur Stjörnunnar - Valur lagði HK
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt kerfi í vopnabúri Haukamanna

Aron Kristjáns er búin að eyða miklum tíma í æfingar á þessu kerfi og verður það notað einhverntíman í vetur.

 

http://www.youtube.com/watch?v=aDnhggUyPcY


Frábær sigur á HK

Magnús SigmundssonLiðsheildin mætti tilbúin til leiks í Digranesið í kvöld. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og staðan í hálfleik 14-13 okkur í vil. Í fyrrihálfleik var það vörnin sem stóð fyrir sínu og Beggi dróg vagninn í sókninni en hann skoraði 6 mörk öll í fyrri hálfleik. Í seinni hálfeik mættum við tilbúnir til leiks og náðum góðu forskoti um miðjann hálfleikinn 25-19. En þá fóru HK-menn í 3-3 vörn og við manni færri nokkrum sinnum. Þeir minnkuðu muninn í eitt mark 26-25 en þá kom Andri Stefan inn á og skorði 2 og fiskaði eitt víti. Á þessum tímapunkti varði Maggi líka eins og rotta. Andri Stefan var ekki mikið með í leiknum fram að þessu en kom svo og kláraði leikinn fyrir okkur sóknalega. Dóri var öflugur í þessum leik og átti oftar en ekki mikilvæg mörk en hann setti 6 í leiknum. Svo er vert að minnast á Pétur "Hulk" Pálsson en hann kom inn í hægra hornið og setti 3 kringlumörk úr 3 skotum. Maggi kláraði svo leikinn með þvi að skora yfir endilangan völlinn um leið og flautan gall. Enn og aftur var það liðsheildin sem skóp þennan sigur og við því pottþétt með fyrsta sætið fyrir jólafrí.

Næsta verkefni er deildarbikarinn en hann fer fram dagana 28 og 29. desember. Við spilum við það lið sem endar í 4.sæti eftir 14 leiki.

Að lokum er vert að þakka þeim haukamönnum sem mættu á leikinn og stóð með okkur í pöllunum, það var án efa meiri stemning hjá okkar stuðningsmönnum en hjá HK - fólkinu. Frábærir stuðningsmenn sem við Haukamenn eigum.

Mörk; Beggi 6/9, Dóri 6/10, Pétur 3/3, Kári 3/3, Gunnar Berg 3/6, Freyr 3/7, Andri 2/3, Gísli Jón 2/5, MAGGI SIGMUNDS 1/1, Jón Karl 1/3.

Maggi varði 15 bolta og Gísli 3.


mbl.is Haukar unnu toppslaginn gegn HK
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HK-Haukar föstudag kl.19:15

Annað kvöld förum við haukamenn í Digranesið og tökum þar á HK-ingum. Þetta verður án efa hörkuleikur en HK er í öðru sæti í deildinni. Í fyrstu umferðinni unnum við þá nokkuð örugglega eftir jafnan fyrrihálfleik. Þeir töpuðu síðasta leik í deildinni gegn Fram og koma án efa tilbúnir til leiks en það verðum við líka. Þeir eru með sterka menn í hverri stöðu og við þurfum að ná upp okkar varnaleik og markvörslu ef við ætlum okkur sigur. Sigur í þessum leik setur þá 6 stigum á eftir okkur en þeir eiga leik inni gegn Val. Mætum og styðjum haukamenn til sigurs.

Arnar Jón AgnarssonArnar Jón verður ekki með þar sem að það komst upp að hann er ökklabrotinn og hefur spilað þannig síðustu tvo mánuðina. Hörkunagli þar á ferð en hann fór í aðgerð í dag á fætinum og verður frá í 6-8 vikur.


Baráttusigur gegn Aftureldingu

Það var ekki glæsilegur fyrri hálfleikur sem við sýndum í kvöld. Þó byrjuðum við betur en um miðjan hálfleikinn varð sóknaleikurinn tilviljunarkenndur og vörn ásamt markvarsla var lítil sem engin. Mosfellingar komust inn í leikinn og voru mest 3 mörkum yfir 10-13, staðan var svo 11-13 í hálfleik. Í seinni hálfleik vorum við ákveðnir í að bæta okkar leik og berjast til síðasta dropa fyrir tveimur stigum. Gísli fór í gang í markinu eftir að hann varði viti og við fórum í 5-1 vörn með Andra fyrir framan. Við komust svo yfir 18-17 og þá var ekki aftur snúið, fórum mest í 4 marka forustu og loka staðan varð svo 29-26. Markahæstu menn voru Arnar Jón með 7/9, Freyr með 5/5, Andri með 5/8. Gísli G varði 16 tuðrur og komu flestir þeirra í seinni hálfleik.

Næsti leikur er svo gegn HK en sá leikur er 4 stiga leikur þar sem þeir geta jafnað okkur á stigum ef þeir vinna okkur og leikinn sem þeir eiga inni. Ef við vinnum þá verða þeir 4 stigum fyrir aftan okkur. Enn einn úrslitaleikurinn í þessari deild.

Freyr Brynjarsson      Arnar Jón Agnarsson    Andri Stefan Guðrunarson  Gísli Guðmundsson

Valinn var svo besti leikmaðurinn í hálfleik og var það hann Tóti sem vann þennan eftirsótta titill.

Þórður Rafn Guðmundsson


mbl.is Haukar náðu fjögurra stiga forskoti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sektir leikmanna

Sektir leikmanna

Borga inn á reikning: 332-26-555

Kennitala: 050577-3769

 Greitt  í  okt.Greitt í  nóv.Greitt í desAlls gr.Skuldir  alls
Andri Stefan        500             400                   900     0
Arnar Pétursson     1.400                 1.400     5.700
Arnar Jón Agnarss.     2.500               2.800               5.300     400
Aron Rafn     1.500                 1.500     1.000
Magnús Sigmunds         500                   500     0
Gunnar Berg Viktors     1.100               4.900               6.000     1.000
Freyr Brynjarsson     1.700                  500               2.200     0
Gísli Guðmundsson     1.000             700                1.700     0
Gísli Jón Þórisson     2.400                 2.400     1.400
 Halldór Ingólfsson                    -     7.100
Jón Karl Björnsson     1.000                 1.000     1.400
Þórður Rafn     1.700                 1.700     700
 Kristján Örn                    -     4.500
Kári Kristjánsson     1.900             500              1.000               3.400     -500
 Pétur Pálsson    3.800
Sigurbergur Sveins     2.800                 2.800     2.000
Þröstur Þráinsson        900                    900     900
 Finnbogi    1.000
 Sigurjón    0
 Jónatan    500
      
Óskar Ármansson      1.000                1.000     1.000
Hörður Harðarson     
Aron Coach                    -     1.500
 Samtals   20.400          3.100              9.600             32.700     33.400

Haukar - Afturelding: Föstudag kl.19:15

Annað kvöld koma mosfellingar í heimsókn. Síðasti leikur þessara liða fór þannig að við unnum 30 -24. Markahæstur okkar manna í þessum leik var Arnar Jón með 7 mörk. Það eru allir heilir hjá okkur og því allir tilbúnir í slaginn.  Nú er bara að mæta og styðja haukamenn til sigurs. 

Áfram Haukar.


Úr leik í bikarnum

Það var hörkuleikur sem fram fór í Valsheimilinu í dag. Þetta var dagur varnar og markvörslu. Í stöðunni 10-7 fyrir okkur fóru Valsmenn í gang og voru yfir 12-11. Þetta minnir mann á leik okkar gegn Fram um daginn þar sem við vorum undir 10-7 en vorum svo yfir í hálfleik. En að leiknum þá gerðumst við sekir um of mörg sóknarfeila og skotnýting manna var ekki nógu góð en við létum markvörð þeirra verja 21 skot í leiknum. Í svona bikarleik má ekkert fara úrskeiðis. Baráttan var til staðar en því miður dugði það ekki til í þetta skipti. Einn titill farinn 2 eftir.

Næsti leikur er gegn Aftureldingu á föstudaginn næsta að Ásvöllum.

Markaskor: Arnar Jón 6/12, Andri 4/11,  Beggi 4/10, Kári 3/4, Freyr 3/5, Arnar P 1/1, Dóri 1/2, 

Maggi varði 10 skot, Gísli 6. 


Hlíðarendi here we come

 

 Valurinn  VS   null

Þá er komið að 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins og þar eigum við haukamenn leik við Val og fer sá leikur fram að Hlíðarenda. Þetta verður án efa hörkuleikur þar sem vörn og markvarsla verður án efa það sem skilur liðin að á endanum. Við ætlum okkur áfram í bikarnum og taka skrefið nær Höllinni. Við vonum að sem flestir mæti og hvertji okkur til sigurs. Þessi leikur verður sýndur í sjónvarpinu kl. 16. Valsmenn eru með sterkann mannskap og það þarf toppleik að okkar hálfu ef við ætlum okkur sigur.


Sigur liðsheildarinnar

Kári Kristján KristjánssonÞað var stjörnufall í kvöld þegar við unnum góðan sigur gegn Stjörnunni í Mýrinni. Leikurinn var jafn á nánast öllum tölum í fyrri hálfleik en þeir náðu að vera einu marki yfir þegar flautað var til leikhlés 12-11. Í seinni hálfleik hélt vörnin okkar að skila sínu og nýtingin var góð hjá flestum í sókninni. Kári Kristján fór fyrir þeim pakkanum og setti 5 úr 5 skotum þar af var ein gríðalega falleg kringla úr hægra horninu. Jón Karl var öruggur úr vítunum en hann setti 5 af 6 vítum sínum í leiknum. Andri setti 6 stykki úr 8 skotum. Maggi varði svo 12 bolta í markinu og Gísli 5. Góður sigur þar sem liðsheildin sigraði einstaklingana.

Næsti leikur er gegn Val á sunnudaginn kl.16 að Hlíðarenda í 8-liða úrslitum bikarsins. Sá leikur verður sýndur í sjónvarpinu

 

Markaskor í leiknum: Andri Stefan 6/8, Kári Kristján 5/5, Jón Karl 5/6, Arnar Jón 4/12, Gunnar Berg 3/4, Þröstur 2/3, Gísli  Jón 1/2, Freyr 1/3, Beggi 1/4.

Jón Karl Björnsson    Andri Stefan Guðrunarson


mbl.is Haukar áfram á toppnum eftir sigur á Stjörnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband