Lið 1.umferðar hjá handbolti.is

Í þetta sinn eru tveir Haukamenn í liðinu, en annað var upp á teningin þegar HSÍ valdi liðið fyrir deildina. Einnig var besta umgjörðin hjá okkur, enda er það eins og það á að vera. Það hefur alltaf verið eitthvað í gangi hjá okkur í Haukunum í hálfleik en það er ekki að gerast hjá öðrum liðum.

lið 1. umferðar í N1 deild karla sem valið hefur verið af þjálfurum deildarinnar í samráði við www.handbolti.is.

Lið 1. umferðarinnar er skipað eftirtöldum leikmönnum:


Markmaður:
Björgvin Páll Gústavsson, Fram.

Vinstra horn:  Baldvin Þorsteinsso, Val.

Vinstri skytta: Augustas Strazdas.

Miðja: Andri Stefan, Haukum.

Hægri skytta: Jóhann Gunnar Einarsson, Fram.

Hægra horn:  Arnór Þór Gunnarsson, Val.

Lína:  Sergey Petraytis, HK.



Besti leikmaðurinn:  Jóhann Gunnar Einarsson, Fram.

Besti þjálfarinn:  Aron Kristjánsson, Haukum.

Besta umgjörð:  Haukar.


Jafntefli í hörkuleik

Valsmenn náðu í stig að Ásvöllum í kvöld eftir að við höfðum leitt leikinn nánast frá byrjun. Þeir komust inn í leikinn aftur þegar um 4 mín voru eftir og komust þá yfir 19-20. En með seiglu og baráttuvilja og Magga í svaka stuði í markinu þá komust við yfir aftur 22-21 en þeir stálu einu stigi í lokinn með marki þegar 4 sek voru eftir. Við hefðum getað skorað í lokinn með smá yfirvegun en það gekk ekki í þetta skipti. Með þessum úrslitum þá komust við í efsta sætið eftir 8 umferðir með 12 stig.

Magnús SigmundssonMaður leiksins var án efa Magnús Sigmundsson markmaður okkar haukamanna en hann varði alls 18 tuðrur og þar af voru fjölmörg dauðafæri sem kallinn tók ásamt að verja eitt stykki víti líka.

 Markaskorara hjá okkur voru: Arnar P 4/5, Arnar Jón 4/8, Beggi 4/9, Dóri 4/7, Gunnar Berg 2/3, Gísli Jón 2/5, Þröstur 1/1, Jón Karl 1/1 og Andri 1/3. Staðan í hálfleik var 14-11 fyrir okkur haukamenn. Leikurinn endaði 22-22.

 Næsti leikur er gegn ÍBV á laugardaginn "út í eyjum".


Stórleikur í N1-deildinni

 

 null  VS  Valurinn

Annað kvöld kl.19 kemur Valur í heimsókn að Ásvelli. Þetta er lokaleikur 8.umferðar og mikilvægur fyrir bæði lið. Við komust í efsta sætið með sigri en þeir geta nálgast toppliðin með sigri. Það kemur ekkert annað til greina en sigur og get ég sagt fyrir mitt leyti að ég verð klár í slaginn. Við verðum með okkar sterkasta lið og ég veit ekki betur en að Valur sé einnig með alla sína menn klára. Vona að sem flestir mæti og styðji sitt lið. Áfram Haukar.

 FB


Meiðsli leikmanna

Nokkuð hefur verið um meiðsli hjá okkur undanfarið. 

Andri Stefan hefur verið meiddur í hálsi, vill ekki að menn komi aftan að sér og því alltaf að líta um öxl.

Arnar Jón er meiddur á ökkla og gerðist það þegar hann var að reyna flýja konuna eftir að hún komst að því að hann hafði pissað útfyrir.

peturlaeriPétur Páls a.k.a. the Hulk meiddist svo svakalega á læri að annað eins hef ég ekki séð (sjá mynd). Það gerðist þannig að valtari keyrði yfir hann. Öðruvísi er ekki hægt að slasa þennan einstakling. En valtarinn eyðilagðist í kjölfarið.

Beggi er eitthvað meiddur í öxlum en hann meiddist heima hjá sér í nýja nuddstólnum sínum.

Þröstur er svo eitthvað tæpur í nára en það er eftir einhverjar leikfimisæfingar heima hjá sér.

 

 

 

Þröstur ÞráinssonSIgurbergur SveinssonPétur Pálsson

 

 

 

 

 

 

 

Arnar Jón AgnarssonAndri Stefan Guðrunarson

 

 

      

 

 

 

 

 

 

 


Skuldir leikmanna

Þetta er skuldastaða leikmanna í dag. Hægt er að borga inná reikning 1101-26-500505 á kt:050577-3769 (Freyr Brynjarsson). Borga þarf þessa skuld fyrir 4.des annars leggst 500 kr í vanskilagjald.

Nafn                        Skuld         Búnir að borga

Andri                        400

Arnar P                    1200   

Arnar Jón                 2800

Aron Rafn                 500

Magnús                    500      Búin að borga

Gunnar Berg            4900

Freyr                        0

Gísli G                       700

Gísli Jón                    0

Halldór                      6600

Jón Karl                     1200

Þórður Rafn               0

Kristján Örn               4500

Kári Kristján               500        Búin að borga

Pétur Páls                  3300

Sigurbergur               0

Þröstur                      0

Finnbogi                    1000

Sigurjón                     0

Óskar                        1000         Búnin að borga

Aron Kristjáns           0

Halldór og Gunnar Berg eru mennirnir sem halda sjóðnum digrum og vert að þakka þeim sérstaklega fyrir sitt framlag.

Kv. Sektarsjóðurinn. 


Engin Haukamaður í liði umferðar 1-7!

N1(1)Mér finnst þetta ótrúlegt að lið sem er í 1. sæti úrvalsdeildar ásamt Stjörnunni eigi ekki leikmann í liði umferðar 1-7. Það eru 4 leikmenn frá Fram, 2 leikmenn frá Stjörnunni, 1 frá Akureyri og 1 frá HK. Veit einhver hver velur í þetta lið er hann flokksbundin Framari? Nei ég bara spyr - væri gaman að heyra hvað ykkur finnst um þetta. Ég ætla ekki að halda því fram að þessir leikmenn eigi þetta ekki skilið en mig langar soldið að vita hvernig valið fer fram, er skoðað flest skot varin, markahæstur, besta skotnýtingin eða er þetta bara einn maður út í bæ sem velur eftir geðþóknun.

Ég vil halda því fram að það hefði átt að vera pláss fyrir alla vegna einn Haukamann. Hver það er verður að vera ykkar að velja.

 


Sigur í bikar

Jæja þá eru við komnir áfram í bikarnum og næsta skref er 8-liða úrslit. Leikurinn í kvöld var mjög slakur af okkar hálfu og í raun ekki mikið gagn að fjalla eitthvað sérstaklega um hann. Leikurinn vannst þó örugglega 35-25. Það vantaði þó nokkra leikmenn. Andri Stefan og Arnar Jón voru meiddir og Jón Karl var veikur. Bestu menn okkar í kvöld voru Beggi, þröstur, Pétur ásamt þeim Gísla og Magga í markinu. 

Næsti leikur er gegn Val 14.nóvember að Ásvöllum.

Markaskorarar koma síðar. 


Haukar2 nálægt því að leggja Íslandsmeistarana

Jæja kannski ekki alveg en í dag áttust við Haukar2 sem samastóð af gömlum kempum eins og Aron Kristjánsson, Bjarna Frosta, Þorkell Magnússon, Gústi og Sigurjón Bjarnasynir ásamt fleirum. Staðan í hálfleik var 18-11 og loka staða aðeins 10 marka tap. Markahæstur haukamanna var þjálfari meistarflokks hann Aron Kristjáns með 7 mörk. Loka staða 33-23.

Við haukamenn eigum leik við ÍR2 annað kvöld kl. 18:45 í Austurbergi.


Blokkeringar í handbolta

Ég vildi fá að vita hvaða fyrirmæli dómarar fá um ólöglegar blokkeringa í handboltanum en oft er misjafnt eftir dómurum hvenær dæmt er ólögleg blokkering. Ég ákvað því að ráðfæra mig við Guðjón L. Sigurðsson yfirdómara í handboltanum hér á Íslandi. (hættur sem betur fer :)Það virðist vera í nánast hverjum leik sem þjálfarar hoppa upp og vilja fá dæmda ólöglega blokkeringu og sumir leikmenn eru alveg á mörkunum en komast oftar en ekki upp með slæma blokkeringu.

Ég fékk senda frá honum Guðjóni vini mínum reglu 8 úr reglum HSÍ sem heitir "Brot og óíþróttamannsleg hegðun" ásamt því að hann kom með smá aukaútskýringu:

Greinar 8.1c og 8.2b ná yfir hvað er löglegt og hvað ekki varðandi blokkeringar.  Það er erfitt að útskýra nákvæmlega hvað má og hvað ekki en ef leikmaður er búinn að staðsetja sig og notar ekki hendur eða fætur til að hindra mótherja þá telst það löglegt.  Algengustu blokkeringar, sem dæmdar eru ólöglegar, eru vegna þess að leikmenn nota fætur (stíga út í varnarmann) eða nota varnarmann sem stuðpúða út úr blokkeringu.

Við haukamenn þökkum Guðjóni fyrir þessa skýringu.


Sunnudagskvöld, sunnudagur, mánudagur

eimskip%20minnaÞetta er nú meiri vitleysan með þennan blessaða bikar. Við eigum að spila við ÍR2 og þeir eru búnir að breyta leiktímanum þrisvar sinnum á tveimur dögum. Fyrst átti leikurinn að vera á sunnudagskvöldið kl 19 svo var honum breytt og átti að spila hann á sunndeginum kl.13 en eitthvað virðist þeim erfitt hjá ÍR að ná í lið og töldu að betra væri að hafa hann á mánudagskvöldið kl. 19. Ef það er eitthvað vandamál með að ná í lið afhverju að skrá sig þá í þessa bikarkeppni í fyrsta stað. Svo kom upp sú staða að 2.flokkur Hauka á leik á sama tíma á mánudaginn en HSÍ vildi frekar fresta honum en að halda sig bara við upprunalegu tímasetninguna á sunnudeginum. Ef þeir ná ekki í lið á sunnudegi þá held ég að það séu ekkert rosalegar líkur á að menn mæti á mánudagskvöldi. ÞVÍLÍKT RUGL.

Ekki áfram ír


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband