Haukalagið

N1(1)Nú er nýja haukalagið komið í verslanir N1 í Hafnafirði og er þetta klárlega lag sem allir Haukamenn þurfa að eiga á lager. Frábært lag þar á ferðinni (Haukar, Haukar)

Páll Rósinkrans fer þar á kostum enda mikill Haukamaður.


Halldór og Jón Karl leggja skóna á hilluna

Halldór Ásgrímur IngólfssonÞeir Halldór Á Ingólfsson og Jón Karl Björnsson hafa ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir þetta tímabil. Halldór kom í Haukana 1991 og hefur spilað nánast sleitulaust síðan fyrir utan 2 ár sem hann hefur spilað erlendis. Halldór er því að spila sitt 16 tímabil fyrir Haukana. Eitthvað eru þetta af leikjum og mörkum en það virðist vera erfitt að nálgast þessar upplýsingar þar sem HSÍ hefur ekki staðið sig í að halda utan um þessar upplýsingar. Sjálfsagt er skortur á mannskap til að taka þetta saman en það hefur samt ekki stoppað þá í að halda landsliðsfjölda leikamann til haga en deildinn hefur látið mæta afgangi. Hægt er að nálgast upplýsingar um leiki frá 95 eða það hélt maður. Það vantar inn í t.d allt um árið 1998 og svo vantar allt um bikarkeppnina frá 98 til 2000. Það verður eitthvað moð að taka saman leikjafjölda hjá honum Halldóri það er alveg ljóst.

Jón Karl BjörnssonJón Karl er uppalinn Haukamaður og spilaði sinn fyrsta leik 1996 en svo fór hann í Fylki í tvö ár. 1999 kom hann svo til baka og hefur spilað nánast alla leiki síðan með Haukunum eða 11 tímabil í heildina. Ég náði að taka saman hans leiki og eru þetta um 340 leikir í öllum keppnum á vegum HSÍ og IHF. Deildarleikir verða eftir þetta tímabil 232, leikir í úrslitakeppni 53, í bikarkeppni 18, í deildarbikar 5, í meistara meistaranna 5 og í evrópukeppni taldi ég 27 leik (það gæti orðið fleiri). 

Þetta er mikill missir af þessum leikmönnum og til gamans má geta að Haukar hafa ekki unnið titill þegar Halldór hefur ekki verið með síðustu 10 árin. Það verður því verðugt verkefni að landa titli á næsta ári án "PapaTrix". 

 

FB 


2 stigum nær Íslandsmeistaratitlinum

Jón Karl BjörnssonÞað var ekki fallegur handbolti sem fór fram í eyjum fyrr í dag. Menn töluðu um að mæta tilbúnir til leiks og ekki láta eyjamenn fara með okkur eins og þeir gerðu við Fram í síðustu umferð. En eins og í síðasta leik okkar gegn ÍBV þá voru allt of fáir klárir í þennan slag. Vörnin var ekki góð og ef það hefði ekki verið fyrir Jón Karl og Ella þá hefðum við verið undir í hálfleik. Jón Karl fór á kostum í þessum leik og setti 6 úr 6 skotum í fyrrihálfleik og einhver 11 mörk í leiknum. Staðan í hálfleik var svo 14-14. Í seinnihálfleik var jafnt á öllum tölum Arnar Péturssonen það var ekki fyrr en Arnar Pétursson og Magnús Sigmundsson komu inn á að við náðum undirtökunum. Ef menn eru í vafa hvern þeir eiga að velja sem besta varnamann deildarinnar þá kemur Arnar P sterklega til greina. Hann er sýndi það að hann er ómetanlegur í miðju varna okkar. Sigur 28-24 og 2 stig í hús eru staðreynd. Jón Karl, Addi og Maggi voru þeir einu sem sýndu góðan leik, Kári átti Magnús Sigmundssongóðar rispur en hann meiddist á hásin fljótlega í leiknum og gat lítið beitt sér. Ekki má gleyma Halldóri Ingólfssyni en hann átti nokkur mikilvæg mörk og átti markið sem slökkti alveg í þeim en það var fast undirskot af 8 metrum.(Já ég sagði fast undirskot)!!!

Næsti leikur er gegn Fram á föstudaginn og getum við með sigri þar orðið ÍSLANDSMEISTARA. Það verður án efa hörkuleikur og því tilvalið að Haukamenn fjölmenni og styðji okkur í að endurheimta Bikarinn heim aftur eftir 2 ára fjarveru.


Æfingaáætlun 4.apríl til 5.maí.

Frá 4. apríl til 5. maí 2008 Mfl. Karla
D.VikudagurStaðurTímiHvað
4FöstudagurÁsvellir16:45-18:30Taktík+Salur
5LaugardagurÁsvellir10:00N1-deildin: ÍBV-Haukar kl. 15:00
6SunnudagurFrí  
7MánudagurHress/Ásvellir?Lyftingar (Explósívt)
 MánudagurÁsvellir19:30-21:00Salur
8ÞriðjudagurÁsvellir18:00-19:30Salur
9MiðvikudagurFrí  
10FimmtudagurÁsvellir17:30-19:30Taktík+Salur
11FöstudagurÁsvellir18:00N1-deildin: Haukar-Fram kl. 19:15
12LaugardagurÁsvellir10:30-12:00Salur
13SunnudagurFrí  
14MánudagurÁsvellir19:00-21:00Taktík+Salur
15ÞriðjudagurÁsvellir18:00N1-deildin: Haukar-Akureyri kl. 19:15
16MiðvikudagurÁsvellir18:30-20:00Taktík+Salur
17FimmtudagurMýrin18:45N1-deildin: Haukar-Stjarnan kl. 20:00
18FöstudagurÁsvellir17:00-18:30Salur
19LaugardagurFrí  
20SunnudagurFrí  
21MánudagurHress/Ásvellir?Lyftingar (Þungt)
 MánudagurÁsvellir19:30-21:00Salur
22ÞriðjudagurÁsvellir18:00-19:30Salur
23MiðvikudagurFrí  
24FimmtudagurHress/Ásvellir?Lyftingar (Explósívt)
 FimmtudagurÁsvellir18:00-19:30Salur
25FöstudagurÁsvellir17:00-18:30Salur
26LaugardagurÁsvellir10:00-12:00Taktík+Salur
27SunnudagurÁsvellir14:45N1-deildin: Haukar-Afturelding kl. 16:00
28MánudagurFrí  
29ÞriðjudagurHress/Ásvellir?Lyftingar (Þungt)
 ÞriðjudagurÁsvellir18:00-19:30Salur
30MiðvikudagurFrí  
1FimmtudagurHress/Ásvellir?Lyftingar (Explósívt)
 FimmtudagurÁsvellir19:30-21:00Salur
2FöstudagurÁsvellir17:00-18:30Salur
3LaugardagurÁsvellir10:00-12:00Taktík+Salur
4SunnudagurDigranes14:45N1-deildin: HK-Haukar kl. 16:00
5MánudagurÁsvellir19:30-21:00Salur

Vestmanneyjar á laugardaginn

ibv2_01Nú fer að líða að næsta leik og þá er leggjum land undir fót og förum erlendis nánar tiltekið til Vestmanneyja. Veit ekki hvort fólk átti sig alveg hvar þessi eyjaklassi er en fyrir ykkur sem ekki vitið þá er þetta land sem er ekki langt frá Bakka fyrir sunnan Ísland. En við komum einmitt til með að keyra þangað til að taka flug frá Bakka. Leikurinn er settur á kl. 15 að staðar tíma en það vill svo til að það er einmitt engin tímamunur á milli Íslands og Vestmanneyja. Það verður án efa gaman fyrir útlendinga í okkar liði að koma á heimaslóðir og takast á við frændur sína. Siggi Braga er víst búinn að bjóða Halldóri Ingólfs í Te og Rist fyrir leik og ætlar Dóri ekki að reyna "krækja í rautt" út í eyjum að þessu sinni.

Hlynur að missa sig!!

Eyjamaðurinn Hlynur Sigmarsson sem sér um síðuna www.handbolti.is er alveg búin að tapa sér og fór með 1.apríl gabb á næsta level. Hann byrjaði á því að auglýsa að úrslitaleikurinn í deildarbikarnum skildi endurtekin. Svo kemur hann með magnaða lýsingu á þessu meinta leik og ég læt fólk um að lesa þetta yfir sjálft og bið menn um að athuga sérstaklega hverjir voru að dæma þennan leik og hverjir voru á tímavarðaborðinu. :)

"Haukar Deildarbikarmeistara

Haukar unnu Fram 29-28 í endurteknum úrslitaleik Deildarbikars karla þar sem allt varð vitlaust undir lokinn.


Leikurinn var æsispennandi allt frá upphafi til enda.  Það var Fram sem byrjaði betur í leiknum og náði fljótt þriggja marka forystu 4-7 en þá tóku Haukar við sé og náðu að minnka muninn fyrir leikhlé í eitt mark 13-14.

Framarar komu grimmir til leiks í siðari hálfleiks og skoruðu þrjú fyrstu mörkin og breyttu stöðunni í 13-17 og virtust ætla að gera út um leikinn strax í upphafi.  Haukar komust smám saman betur inn í leikinn og náðu loks að jafna 5 mínútum fyrir leiksloka.  26-26.  Í hönd fóru æsispennandi lokamínútur er Sigurbergur Sveinsson skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndum leiksins og lokatölur urðu eins og áður sagði 29-28.

Viggó Sigurðsson, sem var aðstoðarmaður Magnúsar Jónssonar þjálfara Fram í þessum leik fékk RAUTT að leik loknum eftir að hafa hraunað yfir dómar leiksins.  Hann sagði að það væri ótrúlegt að snúa til baka eftir 5 ára fjarveru og fá þennan skandall yfir sig.  Það væri greynilega ekki vanþörf á því að hann mundi halda fræðslu fyrir dómara þessa lands og hann biði eftir símtali frá Guðmundi Yngvarssyni formanni HSÍ um boð til að kenna þessum mönnum leikreglurnar.

Bestir í liði Haukum voru þeir Sigurbergur Sveinsson sem skoraði 7 mörk og Gunnar Berg Viktorsson sem skoraði 6 mörk.

Bestir í liði Fram voru þeir Haraldur Þorvarðarson og Halldór Jóhann Sigfússon sem skoruðu 6 mörk hvor.

Mikil reykistefna var í lok leiks þar sem á myndbandi sést greinilega að Haukar voru 9 inn á er lokamarkið var skorað og virðist eitthvað hafa klúðrast hjá dómurum og á tímavarðaborðinu undir lokinn þar sem hvorki dómarar, eftirlitsmaður né tímaverðir tóku eftir þessu.

Þá gerðist sú furðulega uppákoma er komið var að því að Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnafirði átti að afhenta bikarinn til Hauka að hann fanst ekki og mun hann víst vera enn í höndum Fram sem neita að afhenta bikarinn.  Lúðvík dó þó ekki ráðalaus og í staðinn þá skrifaði hann tékka á staðnum fyrir 5 miljónum króna sem hann afhenti Haukum að tilefni að þessum frábæra árangri.  Hann gat þess einnig að Hafnafjarðarbær væri eflaust eini aðilinn í þessu þjóðfélagi sem ætti fjármuni til brúks eftir góðan árangur þeirra í að sækja fjármuni að láni hjá írskum banka fyrir stuttu og því væri honum það mikið gleðiefni að geta stutt við bakið á Haukum með þessum hætti.

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var gríðarlega ánægður með sigur sinna drengja og sagði að nú væri réttlætinu fullnægt.  Jafnfram sagði hann, Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, ætti við í þessu hjá Haukum.  Það væri greinilegt að Haukar væru langbesta liðið hér á landi og þá hann eflaust langbesti þjálfarinn.

Magnús Jónsson, nýráðinn þjálfari Fram, sagði sorglegt að tapa þessum leik eftir að hafa átt stærstan þátt í því að ná í titilinn um áramótin.

Markaskorarar Hauka voru:

Sigurbergur Sveinsson 7, Gunnar Berg Viktorsson 6, Andri Stefan 4 Kári Kristjánsson 4, Freyr Brynjarsson 4, Elías Már Halldórsson 3 og Gísli Jón Þórisson 1.

Magnús Sigmundsson varði 10 skot og Gísli Guðmundsson 7.

Markaskorarar Fram voru:

Haraldur Þorvarðarson 6, Halldór Jóhann Sigfússon 6, Jóhann Gunnar Einarsson 5, Björn Guðmundsson 4, Andri Berg Haraldsson 3, Hjörtur Hinriksson 2 og Stefán Baldvin Stefánsson 2.

Björgvin Páll Gústavssson varði 9 skot og Magnús Erlendsson 7.

Áhorfendur voru rúmlega 2.000 og var mikil stemming á pöllunum.

Dómarar voru Sigurjón og Gústaf Bjarnasynir.

Eftirlitsmaður var Daníel Halfdánarson.

Heiðursgestir voru þeir Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnafirði og Ólafur Magnússon borgarstjóri.

Tímaverðir voru þeir Páll Ólafsson og Sigurjón Sigurðsson."

Tekið af www.handbolti.is


Lagerstjórinn leikmaður 3.umferðar

SIgurbergur SveinssonVið Haukamenn eigum tvo að þessu sinni í liði umferðarinnar.  Beggi var valinn í vinstri skyttuna og jafnframt besti leikmaður  3 umferðar. Aron varð valinn aðra umferðina í röð sem besti þjálfarinn.

Í fyrstu umferð fengum áttum við engan mann í liði umferðarinnar sem var skandall, vorum efstir ásamt stjörnunni eftir 1.umferð

Eftir 2.umferð voru svo valdir Andri á miðjuna, Kári á línunni og Aron sem þjálfari ásamt því að Haukarnir vorum með bestu umgjörðinna.Aron Kristjánsson

Eftir 4.umferðinna er stefna sett á að hafa bara Haukamenn í liðinu. :) 


mbl.is Sigurbergur besti leikmaðurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær seinnihálfleikur liðsheildarinnar

SIgurbergur SveinssonÍ dag tókust á besta liðið frá því í fyrra og besta liðið í dag og eftir jafnan leik í Kári Kristján Kristjánssonfyrrihálfleik framan af þá náðu Valsmenn 3 marka forustu en þegar staðan varð 10-13 fyrir Val þá vissi ég að við myndum vinna þennan leik. Það hefur verið þannig síðustu ár að ef þessi staða kemur upp í leik hjá Haukunum hvort sem það er fyrir Haukana eða hjá andstæðingunum þá hafa Haukar farið með sigur á hólmi. Ég veit að nokkrir stuðningsmenn Hauka fögnuðu smá þegar Valsarar skoruðu 13 markið. Í hálfleik var staðan svo 11-14 fyrir Val.

elliÍ seinnihálfleik mættu menn mjög einbeittir til leiks og eftir 6 mín var staðanFreyr Brynjarsson orðin 18-14 haukum í vil. Við litum ekki til bara eftir það og unnum öruggan sigur 27-23.

Liðsheildin var frábær í síðari hálfleik og fóru liðsmenn á kostum. Freyr, Beggi, Gunni, Kári og Elli voru allir með 5 mörk hver.

Gunnar Berg ViktorssonNæsti leikur er svo gegn ÍBV í vestmanneyjum næstkomandi laugardag.Arnar Pétursson ÍBV gerði sér lítið fyrir og lagði Fram á útivelli í gær og því alls ekki hægt að bóka sigur á þeim þó þeir séu í neðsta sæti.

Markaskor: Elli 5/5, Freyr 5/6, Gunnar Berg 5/8, Kári 5/9, Beggi 5/10, Andri 2/4.

Magnús SigmundssonMaggi var mjög öflugur í markinu og varði 10 bolta og Gísli 5 bolta og þar af 2 víti.Gísli Guðmundsson

 

 

 

FB.

P.s. myndbandið sem menn horfðu á videofundinum í gær kemur inn vonbráðar.

ATH það er bannað börnum. 


mbl.is Haukar færðust skrefi nær titlinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haukar-Valur N1-deildin kl.16

null    vs     Valurinn

Á morgun koma Valsmenn í heimsókn til okkar Haukamanna. Þetta er einn af úrslitaleikjum vetrarins og rosalega mikilvægt fyrir bæði lið að ná sigri. Valsmenn eru í dag 7 stigum á eftir okkur en við getum ekki leyft okkur að slaka á, það er ein umferð eftir (7 leikir) og ef við höldum að þetta komi að sjálfum sér fer það án efa illa. Við erum búnir að æfa vel og erum tilbúnir í slaginn á morgun. Á video fundinum í dag var horft á myndband sem klippt var til að kveikja í mönnum og nú er bara að vona að það hafi haft góð áhrif á okkur og menn komi brjálaðir til leiks.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband