2 stigum nær Íslandsmeistaratitlinum

Jón Karl BjörnssonÞað var ekki fallegur handbolti sem fór fram í eyjum fyrr í dag. Menn töluðu um að mæta tilbúnir til leiks og ekki láta eyjamenn fara með okkur eins og þeir gerðu við Fram í síðustu umferð. En eins og í síðasta leik okkar gegn ÍBV þá voru allt of fáir klárir í þennan slag. Vörnin var ekki góð og ef það hefði ekki verið fyrir Jón Karl og Ella þá hefðum við verið undir í hálfleik. Jón Karl fór á kostum í þessum leik og setti 6 úr 6 skotum í fyrrihálfleik og einhver 11 mörk í leiknum. Staðan í hálfleik var svo 14-14. Í seinnihálfleik var jafnt á öllum tölum Arnar Péturssonen það var ekki fyrr en Arnar Pétursson og Magnús Sigmundsson komu inn á að við náðum undirtökunum. Ef menn eru í vafa hvern þeir eiga að velja sem besta varnamann deildarinnar þá kemur Arnar P sterklega til greina. Hann er sýndi það að hann er ómetanlegur í miðju varna okkar. Sigur 28-24 og 2 stig í hús eru staðreynd. Jón Karl, Addi og Maggi voru þeir einu sem sýndu góðan leik, Kári átti Magnús Sigmundssongóðar rispur en hann meiddist á hásin fljótlega í leiknum og gat lítið beitt sér. Ekki má gleyma Halldóri Ingólfssyni en hann átti nokkur mikilvæg mörk og átti markið sem slökkti alveg í þeim en það var fast undirskot af 8 metrum.(Já ég sagði fast undirskot)!!!

Næsti leikur er gegn Fram á föstudaginn og getum við með sigri þar orðið ÍSLANDSMEISTARA. Það verður án efa hörkuleikur og því tilvalið að Haukamenn fjölmenni og styðji okkur í að endurheimta Bikarinn heim aftur eftir 2 ára fjarveru.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband