19.3.2008 | 08:22
Handboltabúðir Hauka
Núna í þessari viku hóf göngu sína handboltabúðir fyrir krakka í 7 og upp í 5.flokk. Boðið er uppá fjölbreyttar æfingar frá 9 til 12. Á námskeiðinu eru um 80 krakkar og hefur það gengið mjög vel undir leiðsögn Gísla Guðmundssonar en honum til aðstoðar hafa verið leikmenn meistaraflokks karla og kvenna. Námskeiðinu lýkur svo á morgun fimmtudag þar sem Risa-vítakeppni fer fram og í verðlaun eru Risa-páskaegg.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2008 | 01:58
Sigur og 6 stiga forskot
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2008 | 14:17
Haukar - HK : Frítt inn
Á morgun verður enn einn stórleikurinn að Ásvöllum en þá mætum við HK í lokaleik 3 umferðar. HK menn hafa verið sterkir í undanförnum leikjum og hafa unnið Val, ÍBV og svo nú Fram síðast. Fyrir bæði lið er þetta úrslitaleikur og það kemur ekkert annað en sigur til greina á okkar heimavelli. Við höfum unnið hina tvo leikina fyrst að Ásvöllum og svo í Digranesinu. Þess má geta að BYR ætlar að bjóða öllum á leikinn. Þannig að nú er engin afsökun á að mæta ekki. Leikurinn hefst kl.16
Ég setti saman nokkrar klippur frá því úr leiknum í fyrstu umferð, njótið.
Íþróttir | Breytt 15.3.2008 kl. 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.3.2008 | 12:02
Arnar Jón Agnarsson
Vegna mistaka hjá mér gleymdist að setja inn markið hans Arnar Jóns en eins og flestir vita hefur hann verið frá vegna meiðsla og hefur í raun ekki náð sér að fullu. Hann náði að skora sitt fyrsta mark í nokkurn tíma. Það er jákvætt að við skulum eiga inni mann sem er líklega skotfastasti leikmaður deildarinnar. Hann á án efa eftir að koma aftan að einhverju liði og setja þá tveggja stafa tölu. HK næst og Arnar fýlar sig ávallt vel á móti gömlu erkifjendunum enda gamall Bliki.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.3.2008 | 23:54
Sigur í Mosó
Sigur og 5 stiga forskot á næsta lið, ekki alslæmt. Heimamenn byrjuðu betur og settu 2 fyrstu mörkin en við byrjuðum í 5-1 / 3-2-1 vörn með Andra fyrir framan. Ekki gekk hún sem skildi og skiptum við í 6-0 vörn um miðjan fyrirhálfleik og þá fóru hjólin að snúast okkur í vil. Í hálfleik vorum við með 5 marka forustu. Í seinni hálfleik vorum við komnir í 8 marka forustu og þeir tveimur mönnum færri. Við töpuðum þeim mínutum 2-0. En við héldum þeim í góðri fjarlægð og komust þeir aldrei nær en 4 mörk. Loka staðan var svo 32-26. Andri Stefan var okkar markahæstur með 11 mörk og Gísli Jón með 5. Þess má geta að Andri var með 55% skotnýtingu (reiknið nú). Beggi ákvað að leyfa Andra bara að njóta sína og setti bara 1 mark að þessu sinni.
Næsti leikur er gegn HK að Ásvöllum næstkomandi laugardag.
Markaskor: Andri 11, Gísli 5, Jón Karl 4, Kári 4, Elli 2, Freyr 2, Beggi 1, Gunnar Berg 1, Pétur 1 og stórskyttan Arnar Jón setti eina slummu.
Gísli Guðmunds varði 11 bolta og Maggi 4.
P.s. Gúmmí Pétur tapaði veðmáli við Gisla G um hverjir færu áfram í viðureign Liverpool og Inter. :)
FB.
![]() |
Öruggur sigur hjá toppliði Hauka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt 12.3.2008 kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2008 | 14:47
Afturelding-Haukar í kvöld kl.20
Í kvöld förum við í heimsók í Mosó og mætum þar Aftureldingu. Afturelding á það til að spila mjög vel og það er alveg ljóst að við þurfum að spila vel ef við ætlum okkur sigur í kvöld. Þeir hafa tekið 3 stig af Val og verið inn í öllum leikjunum við hin liðin sem eru ofarlega. Nú er ekkert annað en að mæta í mosó og styðja Haukana til sigurs og þá erum við einu þrepi nær titlinum. Ef þessi leikur tapast komsta Valsmenn nær okkur en þeir eru mjög frískir núna og eiga leik við ÍBV. Afturelding er með fínan hóp og eru án efa með vanmetnasta leikmann deildarinnar en það er fyrrum félagi minn hann Ingimar Jónsson stórskytta sem er jafnvígur á hægri og vinstri.
MOSÓ KL.20
Kv. FB
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2008 | 20:11
Sigur liðsheildarinnar gegn Stjörnunni.
Það vannst góður og jafnframt mikilvægur sigur á Stjörnunni í dag. Leikurinn var jafn í upphafi en í seinni hluta fyrrihálfleik náðum við 3 marka forskoti 11-8. Í hálfleik var staðan svo 13-11 fyrir okkur. Í seinnihálfleik byrjuðum við mun betur og náðum mest 6 mörkum 18-12. Þeir náðu ekki að komast inn í leikinn aftur og við sigruðum 32-28. Þetta þýðir að Stjarnan er komnir 8 stigum á eftir okkur og því ekki í baráttunni lengur um Íslandsmeistaratitilinn. Við styrktum okkar stöðu á toppnum en Fram og Valur unnu bæði líka þannig að það verður barist til síðasta leiks. 9 leikir eftir og við með 4 stiga forskot á Fram. Beggi setti 11 stykki í þessum leik og var besti maður leiksins ásamt markvörðunum Magga og Gísla. Svo má ekki gleyma vörninni hjá okkur sem var upp á sitt besta.
Addi var öflugur í vörninni í dag.
Markaskor: Beggi 11, Freyr 6, Kári 5, Elías 3, Andri Stefan 3, Gunnar Berg 1, Jón Karl 1, Gísli Jón 1, Halldór 1.
![]() |
Sigurbergur með 11 mörk gegn Stjörnunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2008 | 11:00
Haukadagur á morgun að Ásvöllum
Á morgun verður sannkallaður haukadagur en þá mætast kl.13:30 Haukar - Stjarnan í kvennaflokki og svo kl.16:00 mætast Haukar - Stjarnan í karlaflokki. Þetta verða án efa hörkuleikir og mikilvægt fyrir alla aðila að fá 2 stig. Adidas ætlar að gefa 150 fyrstu áhorfendunum miða á báða leikina og verða svo með vítakeppni í hálfleik á báðum leikjum þar sem Adidas bolti verður í vinning. Nú er ekkert annað í stöðunni en að mæta og styðja Haukana til sigur í kvenna og karlaleiknum. Þessir leikir verða sýndir í sjónvarpinu en það er miklu skemmtilegra að mæta og taka þátt í stemningunni.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 163583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Öll spjót stóðu á dómsmálaráðherra
- Skjálfti á Suðurlandi
- Ragga Gísla er borgarlistamaður Reykjavíkur
- Forseti hvatti til vonar og kærleika
- Fimmtán fengu fálkaorðuna í dag
- Ný forysta kjörin en óvissa um fjármálin
- Gerðu þetta annars staðar
- Myndir: Forsetinn í fyrsta sinn í aðalhlutverki
- Veröldin er svo sannarlega ekki fullkomin
- Katrín Halldóra er fjallkonan
Erlent
- Segist hafa fullkomna stjórn á loftrýminu yfir Íran
- Segja Trump hella olíu á eldinn
- Ísrael réð æðsta herforingja Íran af dögum
- Trump segir alla skulu yfirgefa Teheran
- 18 ár fyrir skotárás á rakarastofu
- Peningaþvottur með banka-appi
- Íranar hefja loftárásir á Ísrael
- Segir að aftaka æðsta klerksins myndi enda stríðið
- Borgarar flýja Teheran
- Ferðamenn brutu stól van Gogh