Æfingaleikir halda áfram

Eins og flestir vita ákváðu Haukar að taka ekki þátt í Reykjavík Open og spiluðum við því 3 leiki í vikunni gegn Gróttu, Val og svo HK. Þess má geta að við spiluðum einnig við Víking í síðustu viku og töpuðum þeirri viðureign. En í þessari viku unnum við alla 3 leikina. Gróttumenn komu í heimsókn á miðvikudaginn og unnum við þá 35-28 eftir að hafa verið undir í hálfleik. Í gær fórum við í heimsókn til Valsmanna og við unnum þann leik 29-25 en staðan í hálfleik var 13-13. Í kvöld komu svo HK-ingar í heimsókn og unnum við þá nokkuð örugglega. Staðan í hálfleik var 16-11 okkur í vil og við héldum áfram að auka forskotið í seinni hálfleik og lokastaðan var svo 11 marka sigur 32-21.

Næst á dagskrá er Hafnafjarðarmótið sem fram fer í Strandgötunni dagana 24 til 26.sept. Leikjaplanið er eftirfarandi:

Fimmtudagur 24. September

Kl. 18:00 FH-Valur

Kl. 20:00 Haukar-Akureyri

Föstudagur 25. September

Kl. 18:00 Haukar-Valur

Kl. 20:00 FH-Akureyri

Laugardagur 26. September

Kl. 14:00 Valur-Akureyri

Kl. 16:00 Haukar-FH


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hafnarfjarðarmótið verður í beinni á www.sporttv.is fyrir þá sem komast ekki á völlinn til að styðja við sín lið.

Gummi Marinó (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband