14.9.2007 | 22:51
Varnasigur gegn Val
Já það hafðist, við sigruðum Valsmenn í nýju höllinni að Hlíðarenda 23-20. Haukamenn skoruðu fyrsta markið og það var ég sjálfur sem skoraði það (Freyr) enda var ég búin að segjast ætla skora fyrsta deildarmarkið í nýja íþróttahúsinu að Hlíðarenda. Valsmenn geta huggað sig við það að ég lít ennþá á mig sem Valsara þannig að það var Valsari sem setti fyrsta markið.
En að leiknum aftur þá var staðan 1-1 í þónokkurn tíma en svo skoruðu Valsmenn 2 og komust í 3-1 en þá fór vörnin í gang hjá okkur og við skoruðum 6 mörk í röð. Staðan í hálfleik var svo 13-10 okkur í vil. Í seinni hálfleik hélt vörnin áfram að halda sínu með þá Arnar P og Gunnar Berg fremsta í flokki. Valsmenn jöfnuðu tvisvar þ.e.a.s. 15-15 og 18-18 en að lokum hafðist sigur 23-20 eftir spennandi loka mínutur.
Markaskorarar hjá okkur eftirfarandi: Andri Stefan 5, Halldór 5, Freyr 4, Beggi 4, Arnar P 3, Gunnar Berg 1 og Þröstur 1.
Gísli varði 6 og Maggi 7.
Það voru 26 sem kusu í skoðanakönnun um hvernig leikurinn við Val myndi fara og það voru meirihlutinn sem hafði rétt fyrir sér. 65,4% sögðu að Haukar myndu vinna en 34,6 að Valsmenn myndu sigra.
Kveðja Freyr B
![]() |
Haukar lögðu meistaralið Vals á útivelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.4.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 163532
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með sigurinn :) Glæsilegur sigur hjá ykkur haukamönnum, flott að Haukar eru fyrsta liðið sem vinnur í nýju höllinni þeirra valsmanna :) Og ekki má gleyma aðalatriðinu að þú skorðaðir fyrsta markið í Ogvodafone höllinni
kv.Haukadís
Haukadís (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 20:16
Þetta var alveg frábært hjá þér Freysi að skora fyrsta markið eftir þessa yfirlýsingu.. Þú mannst veðmálið okkar,verður að vera kaldur.
Maggi S (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 16:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.