Færsluflokkur: Íþróttir
20.4.2009 | 23:32
1-1
Jæja við höfðum það í kvöld eftir brösuga byrjun í fyrrihálfleik. Vörnin stóð þokkalega en við gerðum okkur seka um allt of mörg misstök í sóknarleiknum sem varð til þess að þeir náðu hraðupphlaupum ásamt því að við vorum einum færri meiri hlutan af fyrrihálfleiknum á meðan þeir fengu ekki engar 2 mínútur. Staðan í fyrrihálfleik var 12-8 þeim í vil og mega þeir þakka markmanni sínum fyrir það. Í seinni hálfleik byrjuðum við á fullu gasi og náðum vörninni vel í gang og jöfnuðum leikinn 13-13. Þá komust þeir aftur í gang og voru yfir 1 til 2 mörkum þangað til í stöðunni 20-18. Við skoruðum næstu 4 mörkinn og náðum forustu sem við létum ekki af hendi.
Haukaáhorfendur voru frábærir í dag og sýndu okkur þann stuðning sem við þurftum á að halda í seinni hálfleik. Klárlega bestu stuðningsmennirnir.
Næsti leikur er að Ásvöllum á fimmtudaginn og hefst hann kl.19:30 - Mætum í rauðu og förum í úrslit.
Maður leiksins var án efa Gunnar Berg Viktorsson en hann fór á kostum í seinnihálfleik og skoraði 6 mörk og 8 alls. - Gunna í landsliðið -
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.4.2009 | 16:45
Lið umferðar 15-21 í N1-deildinni
Í dag var valið í lið 3 og síðustu umferðar deildarinnar. Við eigum 3 í karlaflokki og 3 í kvennaflokki.
Hjá Körlunum voru þeir Birkir Ívar, Freyr og Sigurbergur valdir og að mínu mati átti Kári Kristján að vera þarna líka. Birkir Ívar var svo valinn besti leikmaður umferðarinnar.
Hjá Konunum voru þær Hanna og Ramune valdar ásamt því að Díana var valinn besti þjálfarinn. Hanna var valinn besti leikmaður umferðarinnar. Einnig fengu Haukar verðlaun fyrir bestu umgjörðina í kvennaflokki.
Annað kvöld hefst svo úrslitakeppnin hjá okkur körlunum og þá koma Framarar í heimsókn.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.4.2009 | 19:51
Sektarlisti
Hér kemur sektarlistinn inn. Þeir sem eru furða sig á háum sektum hjá nokkrum einstaklingum þá er ástæðan sú að sumir af þessum mönnum skulda síðan í fyrra. Vert er að hrósa honum Tóta en hann á 1100 kr inneign í sektarsjóðnum. Það kemur mjög
sjald
an
fyrir, Tóti þú er fyrirmyndar sjóðsfélagi.
Læt hér fylgja myndir af þeim sem skulda mest. Skammist ykkar svo!!!
Andri Stefan 500
Arnar Pétursson 1700
Arnar Jón Agnarss. 8800
Aron Rafn 0
Birkir Ívar -600
Gunnar Berg Viktors 700
Freyr Brynjarsson 0
Gísli Guðmundsson 0
Gísli Jón Þórisson 700
Þórður Rafn -1100
Kristján Örn 7500
Kári Kristjánsson 7700
Pétur Pálsson 7700
Sigurbergur Sveins 9400
Heimir Óli 700
Einar Örn 500
Elli 5800
Sigurjón 0
Jónatan 700
Tjörvi 6100
Stefán 8500
Óskar Ármansson 1000
Hörður Harðarson 0
Aron Coach 500
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2009 | 18:32
Skildusigur á Stjörnunni - næst úrslitakeppni
Í dag sóttum við Stjörnumenn heim í Mýrina og byrjaði leikurinn rólega. Stjörnumenn komust yfir 3-1 þegar um 8 mín voru liðnar af leiknum. Við spiluðum 6-0 vörn þar sem ungir leikmenn fengu að spreyta sig ásamt að hafa Gunnar Berg þarna með til halds og trausts. Við náðum fljótlega góðum tökum á leiknum og vorum yfir í hálfleik 16-13. Í seinnihálfleik jukum við forustuna í 6 mörk 20-14. Stjörnumenn ætluðu sér ekki að gefa þetta eftir og náðu að minnka muninn í 2 mörk þegar um 3 mín voru eftir. Á þessum tímapunti varði Gísli G nokkra góða bolta úr dauðafærum og við tryggðum okkur öruggan sigur 31-27. Vörnin var góð og sóknarleikurinn ásættanlegur. Okkar bestu menn voru Gísli G í rammanum, Stefán Rafn í horninu ásamt þeim Andra og Einari Erni.
Markaskor: Andri 7, Einar 7, Stefán Rafn 7.
Gísli G varði um 20 skot.
P.s. flott mynd af Stebba á mbl.is (Tóti væntanlega sáttur við þetta)
Næsti leikur er í úrslitakeppninni og þar mætum við Fram. Fyrsti leikur er 16.apríl að Ásvöllum.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2009 | 22:28
Deildarmeistarar 2009
Það hafðist í kvöld að klára deildinna með jafntefli gegn HK. Við byrjuðum leikinn mjög vel og komust fljólega í 6-2 en þá tóku HK-menn sig til og skoruðu 6 mörk í röð og staðan orðin 6-8 fyrir HK. Varnaleikurinn komst ekki í gang aftur fyrr en við duttum niður í 6-0 vörn. Við jöfnuðum leikinn 16-16 og staðan í hálfleik var svo 17-17. Í seinni hálfleik byrjuðum við betur og komust í 19-17 og megum við þakka Birki Ívari fyrir það en hann varði á upphafs mínútum dauðafæri og víti. Við héldum forustunni lengi vel en þegar mín var eftir töpuðum við einbeitingunni og þeir náðu að jafna leikinn. Við áttum síðustu sókn leiksins og spiluðum út leiktímann. Jafntefli dugði okkur þar sem við vorum með betri árangur í einbyrðist viðureignum við Val.
Þess má geta að Freyr fékk duglegt högg á ennið og þurfti að sauma 5 spor, meiriháttar!!! Nefbrot í síðasta leik og núna duglegur skurður á ennið, hvað er næst?
Besti maður okkar í dag var klárlega Birkir Ívar, einnig átti Andri Stefan og Kári góðan leik. Það er einn leikur eftir í deildinni og er hann næsta sunnudag gegn Stjörnunni.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2009 | 23:12
Baráttu sigur fyrir norðan.
Það byrjaði ekki byrlega hjá okkur í kvöld fyrir norðan. Akureyringar byrjuðu leikinn
mun betur og komust í 2-0, en við jöfnuðum 2-2. Þá gáfu norðanmenn í og skoruðu næstu 5 mörkin og staðan orðin 7-2. Þá var ekki seinna vænna fyrir þjálfarann að taka leikhlé og lesa aðeins yfir okkur. Eftir það hófum við leikinn og var það vörninni ásamt Birki í markinu að þakka. Við jöfnuðum leikinn 9-9 og komust svo yfir 9-10. Þegar við náum að stilla upp í vörnina eiga öll lið erfitt með að komast í gegn og voru Akureyringarnir engin undantekning. Staðan í hálfleik var svo 11-13 okkur í vil. Seinni hálfleikurinn var að mestu okkar og héldum við þeim í 3-4 mörkum frá okkur lengi vel. Í stöðunni 21-23 okkur í vil fór Birkir Ívar hamförum, en á þessum tíma gekk lítið hjá okkur í sókninni og Akureyringar fengu ótal færa til að skora en
Birkir Ívar gjörsamlega át þá í einhverjum 4 dauðafærum. Við slökuðum aðeins á klónni og þeir minnkuðu muninn í 1 mark 23-24 þegar um 6 mín voru eftir. Við settum þá í næsta gír og skoruðum næstu 4 mörkin og þar við sat. Við sigruðum okkar 12 leik í röð og getum með sigri í næsta leik tryggt okkur deildarmeistaratitilinn á heimavelli gegn HK.
Markahæstu menn voru: Freyr 6, Kári 6, Andri 6, Beggi 4, Tjörvi 3, Elli 2 og Einar Örn 1.
Birkir varði einhvern slatta og Gísli kom inn á í tveimur vítum og lokaði í báðum tilvikum.
Næsti leikur er eftir tvær vikur, en nú er landsliðspása og við Haukamenn eigum tvo leikmenn þar, þá Kára Kristján og Sigurberg.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2009 | 22:39
Nokkuð ljóst hverjir eru STÓRI bróðir í Firðinum
Mikið var gaman að vinna litla liðið aftur og það nokkuð örugglega. Vörnin hjá okkur var eins og í fyrri leikjum óstöðvandi og Birkir tók marga góða bolta með. Fh ingar spiluðu ágætis vörn og Maggi var nokkuð traustur hjá þeim en við spiluðum bara miklu betri vörn og þeir
skoruðu aðeins 5 mörk í hálfleiknum sem hlýtur að vera met þegar þessi lið eru annars vegar. Staðan í hálfleik var því 12-5 okkur í vil. Í seinni hálfleik náðu þeir að riðla okkar sóknarleik þó nokkuð og náðu um leið að skora mörk úr öðru og fyrsta tempói. Þeir náðu að minnka munin í 3 mörk 14-11. Við náðum tökum aftur á leiknum en þegar við náðum að stilla upp í vörn þá áttu þeir enga möguleika og við gengum á lagið með 5 mörkum á móti 1. Staðan orðin því 19-12 og við komnir með tögl og hald á leiknum aftur. Leikurinn endaði svo með öruggum sigri okkar 22-17.
Nú geta FH-ingar hætt að væla yfir síðasta leik þar sem vantaði nokkra lykil leikmenn því í dag var þeirra besti maður með og hann setti 1 mark. Það er nokkuð ljóst að Haukarnir eru stóri bróðir og munu alltaf verða það í handboltanum hér eftir.
Maður leiksins: Var liðsheildin en Birkir Ívar var duglegur að vera fyrir boltanum og varði um 25 tuðrur og mörg hver úr dauðafærum í seinni hálfleik.
Markaskor; Elli 6/9, Beggi 5/9, Freyr 4/6, Andri 4/7, Kári 2/2, Einar 1/2.
![]() |
Öruggur sigur Hauka á grönnum sínum í FH |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2009 | 23:01
Flottur sigur á Fram í Safamýrinni
Það var hörkuleikur sem fór fram í kvöld þegar við Haukamenn fórum í heimsókn í
Safamýrina. Framarar skoruðu fyrsta markið en við jöfnuðum ávallt um leið. Varninar voru góðar hjá báðum liðum en við náðum forustunni 5-6 og héldum forustu eftir það. Þeir skoruðu síðasta markið í fyrrihálfleik og staðan því 10-11 okkur í vil. Vörnin hjá okkur var enn og aftur mjög sterk og það var hún sem gerði útslagið á endanum. Í stöðunni 17-18 fyrir okkur unnum við nokkra mikilvæga bolta og munurinn komin í 3 mörk 17-20 og svo 18-24 en þá gáfust Framarar upp og við unnum öruggan sigur 22-27 og höldum okkar 3 stiga forustu í deildinni. Liðið var að spila vel og varnaleikurinn var mjög öflugur með Birkir fyrir aftan í rammanum.
Sigurbergur var markahæstur með 11 mörk.
Það er vert að geta þess að Einar Örn ætlar ekki að spila meira í horninu eftir að hann setti síðasta mark leiksins með þrumuskoti fyrir utan punktalínu.
Markaskor: Beggi 11, Freyr 4, Einar Örn 4, Elías 3, Andri 3, Kári 2.
Næsti leikur er gegn FH að Ásvöllum og það verður án efa hörkuleikur og skildumæting er hjá Haukafólki á þann leik.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2009 | 22:15
Lok lok og læs hjá Gísla G
Það var alveg klárt að við ætluðum okkur að ná 3 stiga forskoti í deildinni og Víkingur var liðið sem við þurftum að klára til að ná því markmiði. Vikingar hafa verið hættulegir í undanförnum leikjum og ef lið gera ráð fyrir 2 öruggum stigum á móti þeim þá er voðin vís. HK menn geta vitnað um það.
Við byrjuðum leikinn með okkar sterku vörn og náðum fljótlega 4 marka forskoti 8-4. Vörnin hélt áfram að gera það gott með Gísla G heitan í rammanum. Staðan í hálfleik var 15-10. Í seinni hálfleik byrjuðum við vel og náðum mest 9 marka forskoti 24-15. Í staðinn fyrir að halda áfram og keyra yfir Víkingana þá gáfum við eftir og þeir komust nær okkur alveg í lokinn en það var bara of seint. Leikurinn vannst nokkuð örugglega 31-26. Sigurbergur var heitur í skyttunni og setti nokkur falleg mörk. Kári átti góðan leik og setti 7 slummur. Arnar Jón nýtti sitt tækifæri í kvöld og skoraði 5 mörk. En maður leiksins var klárlega Gísli Guðmundsson markmaður okkar Haukamanna en hann varði einhverja 22 tuðrur í rammanu og mörg hver úr dauðafæri.
Markaskor: Beggi 10, Kári 7, Arnar Jón 5, Elli 4, Freyr 1, Andri 1, Tjörvi 1, Stefán 1, Einar Örn 1.
Næsti leikur er gegn Fram í Safamýrinni 5.mars.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.2.2009 | 17:29
Komnir á toppinn aftur
Það vannst góður sigur í dag gegn núverandi og tilvonandi bikarmeisturum Vals. Við byrjuðum leikinn með okkar massívu vörn og náðum fljótt 3 marka forskoti 13-10. Staðan í hálfleik var 14-12 fyrir okkur og hefðum við getað verið með meira forskot með smá heppni. Seinni hálfleikurinn var meira og minna okkar og náum við mest 6 marka forskoti. Þeir fengu tækifæri til að komast inn í leikinn þegar við vorum tveimur færri en við tókum þarna eina ótrúlega sókn sem endaði eftir einhverjar 2 mín með því að Kári kom inná og leysti inn, fékk boltann og snéri hann skemmtilega inn í markið. Undir lokinn vorum við 24-19 yfir og þá gáfum við aðeins eftir og þeir náðu 3 hraðupphlaupum og lokastaðan var 25-22. Góður sigur sem skilaði okkur í toppsætið. Kári Kristján átti góðan leik og nýtti færin
sín nokkuð vel og skoraði 8 mörk. Beggi var eitraður í skyttunni í fyrri hálfleik og setti 7 í leiknum. Átti reyndar eina rugl tilraun frá 18 metrum þegar hann lyfti sér upp og hamraði á markið. Hafði sett svona mark á móti Gentzel í fyrri leiknum gegn Nordhorn og ætlaði sér að toppa það í dag en Óli Gísla náði að verja í einkast. Góð tilraun samt sem áður. Birkir var svo öfugur í rammanum og varði einhver 17 skot. (tölum ekkert um markið sem Addi Mal skoraði með stöðuskoti úr horninu með 3 varnamenn fyrir framan sig). :)
Næsti leikur er gegn Víkingi á miðvikudaginn og með sigri þar getum við náð 3 stiga forskoti í deildinni.
Markaskor: Kári 8, Beggi 7, Freyr 4, Elli 2, Andri 2 og Einar Örn 2.
Birkir 17 varðir.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar