Færsluflokkur: Íþróttir

Fitumæling

ss fat guyJæja drengir ég fann síðu á netinu þar sem þið getið sett inn tölurnar ykkar og fundið út fituprósentuna ykkar.

http://www.linear-software.com/online.html

Farið aðeins neðar á síðunni og þar koma nokkrar aðferðir til að mæla. Þið farið í Durnin/Womersley Caliper Method. Munið að skrá líka aldur og þyngd.

Bicep (tvíhöfði)

Tricep (þríhöfði)

Supscapular (bakið)

Suprailiac (síða)

Veit að Birkir Ívar fór á fæði hjá konunni sinni og lét hana um æfingaprógrammið. Það varð til þess að hann fór úr 12,5 í 9,7% fitu. Vel gert. Samt held ég að það nái engin honum Tóta, hann verður alltaf í holdi eins og Afrískur maraþonhlaupari


Nýr reikningur fyrir sektir leikmanna

Þá er sektarsjóður byrjaður aftur eftir sumarfrí. Til að hafa þetta formlegt þá hefst skráning 6.ágúst 2009.

Nú er komið nýtt reiknings númer sem ber að borga inná: 

Reikn.nr: 1121-05-760585

kennit: 660609 - 0160

 


Rangar staðreyndir í þessari frétt

Það kemur fram að það sé engin leikmaður úr U-19 ára liðinu sem sé í þessum U-21 árs leikmannahóp.

Það eru tveir leikmenn sem eru í báðum liðum. Annars vegar haukamaðurinn Guðmundur Árni og hins vegar Akureyringurinn Oddur Grétars. Guðmundur er hægri hornamaður og Oddur vinstri hornamaður.


mbl.is HM-hópur Heimis kynntur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólland verður það þá.

nullNú er klárt að við fáum lið frá Póllandi í EHF-bikarnum. Við förum inn í aðra umferð á meðan Framarar fara í strax í fyrstu umferð. Liðið heitir Wisla Plock S.A. og verða leikirnir spilaðir í október. Svo er bara spurning hvort við seljum heimaleikinn okkar út eða þá að við kaupum þeirra leik heim. Það verður allt skoðað í þeim málum og væntanlega ódýrasti kosturinn tekinn.

Æfingar eru ekki hafnar hjá okkur en við byrjum að krafti 4.ágúst. Þann 20.ágúst til 24.ágúst förum við til Svíþjóðar að spila í sterku móti. Þar mætum við líklega Andra Stefani en lið hans frá Noregi Fyllingen verður meðal keppenda á þessu móti. (nánar um þetta mót síðar).


mbl.is Fram til Hollands, Haukar til Póllands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meistaramyndband Hauka 2009

Í kvöld verður lokahóf Hauka og þar verður þetta myndband sýnt. Ef þú ætlar að mæta í kvöld þá horfir þú bara á þetta í kvöld. Ef þú ert ekki að mæta þá er þetta myndband um veturinn hjá okkur meistaraflokkunum. Farið er yfir titlana sem við unnum.

Konur - Deildarmeistarar

Karla - Meistarar meistarana, deildarmeistarar, Íslandsmeistarar og að ógleymdum sigri gegn Vezprém.

Verði ykkur að góðu.

Kv. FB


Haukar bestir

HSÍ hófið var í kvöld og þar fórum við Haukamenn og konur með þó nokkuð af verðlaunum. Ef ég taldi rétt þá áttu Haukar 13 af þeim 31 verðlaunum sem afhent voru.

Í Karlaflokki voru við með 3 leikmenn í liði ársins: Kári Kristján Kristjánsson, Freyr Brynjarsson og Sigurbergur Sveinsson. (Birkir Ívar var ekki valinn þó svo að hann hafi verið valinn 2 sinnum í lið umferðarinnar og í seinna skiptið var hann valinn besti leikmaður umferðarinnar - Óskiljanlegt með fullri virðingu fyrir Ólafi)

Í Kvennaflokki áttum við 2 leikmenn: Ramune Pekarskyte og Hanna Guðrún Stefánsdóttir

Við áttum þjálfara ársins í bæði karla og kvennaflokki: Aron og Díana. 

Hjá konunum fengu eftirfarandi viðurkenningu:

Besti sóknarmaður: Ramune Pekarskyte, Haukum
Háttvísisverðlaun HDSÍ: Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Haukum
Markahæsti leikmaðurinn: Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Haukum (212 mörk)

Besti leikmaður deildarinnar: Hanna Guðrún Stefánsdóttir.

Hjá okkur körlunum fengu eftirfarandi viðurkenningu:

Valdimarsbikarinn: Arnar Pétursson; Tilnefndir voru: Arnar Pétursson, Freyr Brynjarsson og Jónatan Magnússon

Besti leikmaðurinn: Sigurbergur Sveinsson

Við áttum svo tvo leikmenn sem voru tilnefndir sem besti varnamaður en unnu því miður ekki. 

Arnar Pétursson og Freyr Brynjarsson

Glæsilegur árangur hjá okkur Haukamönnum og konum. 

Andri Stefan GuðrunarsonAð lokum vil ég óska Andra Stefan og konunni hans til hamingju með frumburðinn, en það fæddist drengur í morgun og var hann 17 merkur og 53 cm. 

 


mbl.is Hanna og Sigurbergur best í handboltanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslandsmeistarar 2009 - Haukar.

bikarinnNú er handboltavertíðinni lokið og við Haukamenn tókum flesta titla sem í boði voru.  Byrjuðum að vinna Val í meistarar meistarana í haust. Næsta verkefni var deildinn og þar vorum við klárlega besta liðið. Í ár var svo úrslitakeppni aftur eftir nokkur ár og þar tókum við Val 3-1.

Fyrsti leikurinn var spilaður á Ásvöllum og þann leik hófum við í 6-0 vörn. Sigur vannst á loka sprettinum og við komnir í 1-0. 

Annar leikur einkenndist af atviki sem gerðist í leik 1 þegar Kári braut á Sigga sem varð til þess að hann rifbeinsbrotnaði. Margi vildu meina að Kári hefði gert þetta viljandi en að mínu mati var þetta óheppilegt atvik. Þeir sem þekkja Kára vita að hann er ekki leikmaður sem reynir að meiða menn og hefur hann ekki á að skipa brögðum eins og gamla Mulningsvélin í Val hafði á sínum tíma. Við létum þetta umtal hafa áhrif á okkar leik á meðan Valsmenn komu brjálaðir til leiks og spiluðu fasta vörn eins og við erum þekktir fyrir.  Þessi leikur var í eign Valsmanna meirihlutan af leiknum en við náðum að jafna leikinn eftir að hafa verið undir 23-19 í 24-24 og framlengja þurfti leikinn. Valsmenn unnu svo framlenginguna örugglega. 

Þriðji leikurinn var svo á okkar heimavelli og allt tal um brotið hans Kára var látið til hliðar en ég verð að segja að ummælin hans Fúsa hjálpuðu okkur í undirbúningnum. Í þessum leik spiluðum við 5-1 vörn (besta vörnin :)). Við fórum að spila okkar vörn og vorum fastir fyrir. Valsmenn komust aldrei inn í leikinn og var þetta nokkuð öruggur sigur sem vannst. 

Fjórði leikur var svo í Valsheimilinu og við notuðum það í undirbúningnum að Valsmenn töluðu mikið um 5 leik og virtust gera bara ráð fyrir því að þeir myndu vinna á heimavelli. Við ætluðum að sýna fram á annað og fórum staðráðnir í að klára mótið þar. Við hófum leikí 5-1 vörn og náðum fljótt 4 marka forskoti en undir lok fyrri hálfleiks náðu Valsmenn að minnka muninn í 1 mark eingöngu fyrir tilstilli Heimis Árna, en hann skoraði 3 mörk í röð fyrir Val. Staðan í hálfleik var 15-16 okkur í vil. Í seinni hálfleik héldum við ávallt forskoti en Valsmenn héldu í okkur þangað til að það voru um 12 mín eftir. Í stöðunni 19-20 klúðruðu Valsmenn tækifæri til að jafna leikinn og við gengum á lagið og náðum góðu forskoti 20-24. Í þessari stöðu reyndu Valsmenn að stytta sóknina til að komast aftur inn í leikinn. En við duttum á þessum tímapunkti niður í 6-0 vörn og gjörsamlega lokuðum vörninni ásamt því að Birkir varði nokkra bolta úr dauðafærum. Áður en við vissum af þá vorum við komnir með 9 marka forskot og titilinn í höfn. Lokastaða var svo 8 marka sigur og Íslandsmeistaratitilinn unnin annað árið í röð. 

Fagnað var vel og lengi að Ásvöllum með bestu stuðningsmönnum á landinu Haukum í horni. 

Læt hér fylgja myndbandið sem við horfðum á fyrir þennan leik. 

 


Íslandsmeistarar, íslandsmeistarar

bikarinnOle ole ole við eru meistarar við erum meistarar. Frábær sigur í kvöld á bikarmeisturunum. Snilld að fá svona í afmælisgjöf. hehehhe. 3 faldir meistarar í ár. Meistarar meistarana gegn Val, Deildarmeistarar og Íslandsmeistarar.

Klárlega langbesta liðið á landinu. Áfram Haukar. 

Nánar um leikina kemur síðar. 

Kv. Freyr Brynjarsson


Beggi opna augun!!!

Það er rosalega góð mynd af honum Begga félaga okkar á www.handbolti.is. Friðrik S. Einarsson tók hana.

 Linkurinn á myndina er hér.

P.s. Beggi, maður skorar ekki úr vítum með lokuðum augum. :)


The bad boys komnir í úrslit :)

Það var aldrei spurning um hvernig þessi leikur myndi fara. Það voru svo margir hlutir sem bentu til þess. Sem dæmi þá hefur það mjög góð áhrif að fá Jónsa til að hita upp. Fór á leik 2 hjá Grindavík og Kr þar sem  Jónsi hitaði einmitt upp  fyrir Grindvíkingana og viti menn Grindavík vann. Semsagt Jónsi=sigur hjá heimaliðinu. :) 

lidsmyndhaukari veszpremEn að leiknum þá  vorum við vel upplagðir og vörnin var nánast óstöðvandi með Birki Ívar fyrir aftan í fanta formi. Það var jú jafnt í byrjun en í stöðunni 6-5 fyrir okkur þá tók Aron leikhlé og eftir það litum við aldrei til baka. Komumst í 12-6 og svo var hálfleiksstaðan 16-10 okkur í vil. Í seinni hálfleik ætluðum við ekki að láta það koma fyrir eins og gerðist í fyrsta leiknum þar sem við glötruðum niður forskotinu. Við mættum ákveðnir og gengum frá frömmurum. Lokastaðan var 30-21 en þeir höfðu gefist upp þegar 15 mín voru eftir af leiknum. 

Markaskor: Beggi 7, Elli 5, Einar 5, Freyr 4, Andri 3, Addi 2, Kári 2, Tjörvi 1, Gunnar 1

Birkir varði 20 bolta og Gísli 2.

Næsta verkefni er Valur og það er bara tillhlökkun að spila á móti gamla félaginu. Tvö bestu liðin klárlega komin áfram. Áfram KFUM. 

P.s séra Friðrik hlýtur að vera stolltur af félögunum sínum.

Set hér inn Bad boys myndbandið en ég var búin að lofa að setja það inn ef sigur myndi vinnast í kvöld. Njótið.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband