Haukar - Stjarnan:úrslit - Haukar - Valur á föstudag

magnusÍ kvöld spiluðum við okkar annan æfingaleik og að þessu sinni var það Stjarnan sem eru mjög vel mannaðir og verða teljast mjög sigurstranglegir í deildinni í vetur ásamt Val og auðvitað okkur í Haukum. Leikurinn endaði með sigri Stjörnunar 27-28. Við vorum að spila illa og nýttum okkur ekki nægilega þau tækifæri í leiknum til að jafna og komast yfir, t.d. fóru 5 víti forgörðum. Besti leikmaður Haukamanna voru markverðirnir og svo kom Tóti mjög sterkur inn í lok leiks. Ég fékk hné í læri í fyrrihálfleik frá ofvöxnu trölli frá Georgíu, hann er hátt í tveir metrar, örvhentur 19 ára gutti.

Beggi var meiddur á eyra og gat ekki tekið þátt í leiknumSigurbergur Sveinsson

Næsti æfingaleikur verður á föstudaginn gegn Val og svo förum við í Mosó á laugardaginn til að spila við Aftureldingu.

Kveð í bili Freyr B.


Haukar - Stjarnan annað kvöld kl.18:30 að Ásvöllum

Annað kvöld keppum við haukamenn við Stjörnuna í "alvöru" æfingaleik. Spilað verður á aðalvellinum og vonast eftir að fólk komi til að sjá hvernig leikmenn koma út eftir miklar æfingar. Leikurinn hefst kl. 18:30 og verður um hörkuleik hér að ræða. Stjörnumenn með mjög sterkt lið og án efa eitt af liðunum sem gerir tilkall til Íslandsmeistaratitils.

Nú er um að gera að mæta og styðja Haukana til sigurs.


Eldri vs Yngri og Enski boltinn

Það er hefð fyrir fótbolta í upphitun hjá okkur handboltamönnum. Við spiluðum 2 sinnum í viku fótbolta í upphitun og 2 sinnum var hitað upp í körfu. Í fótboltanum er ávallt stillt um eldri gegn yngri og það er gert hjá flestum liðum í handboltanum, það var þannig í Val þegar ég spilaði þar og er þannig í Haukum í dag. Í fyrra voru spilaðir 42 fótboltaleikir og það kemur ekkert á óvart að eldri gjörsamlega slátruðu ungum í þessari baráttu. Fór það þannig að Eldri unnu 31 leik en ungir aðeins 11 leiki yfir síðasta tímabil.

Á þessu tímabili hafa farið fram tveir knattspyrnuleikir og að sjálfsögðu hafa eldri unnið þá báða, meiri að segja vannst síðasti leikur þar sem eldri voru einum færri. Þannig að staðan er í dag 2-0 eldri í vil.

 Þá aðeins að enska boltanum sem hófst núna um helgina. Mínir menn í Liverpool unnu glæsilegan sigur á Aston Villa með drauma marki frá The Big G.  Man und náðu aðeins jafntefli við Reading sem mér persónulega finnst góða úrslitDevil. Annar er mikil barátta milli manna í liðinu þar sem karpað er um og sínu liði hælt í bak og fyrir. Um helmingur af liðinu eru liverpool menn og hinir eru man und og arsenal menn. Svo eru jú einhverjir sem halda með einhverjum öðrum liðum, fer nánar út í það síðar þegar ég kem með nákvæma tölu á stuðningsmönnum hvers liðs.  Eitt það besta við þjálfaraskiptin hjá Haukunum er sá að út fór man und aðdáandi og inn koma Liverpool aðdáandi. Grin

Kv. FB


Bananar og kókómjólk!

Nú þegar æfingar byrjuðu hjá okkur og nýr þjálfari tekinn við, koma oft nýjir siðir og í þetta skipti hefur Aron verið á prósentu hjá bananaræktundum og hjá mjólkursamsölunni. Hann talar mikið um að menn eigi að borða vel af bönunum og drekka kókómjólk úti í eitt. Eftir hverja æfingu eru bananar til taks og maður því með kolvetnin klár eftir æfingar.

Ekki misskilja þetta er að mínu mati mjög gott framtak því mér finnst bananar mjög góðir og það er hárrétt hjá honum að líkaminn er fljótari að ná sér aftur eftir æfingar ef kolvetni eru etinn fljótlega eftir æfingar. Það eina sem ég hef áhyggjur af er að það hlýtur að koma að því að maður fái ógeð af bönunum og í rauninni ekki spurning um hvort heldur hvenær það gerist.

 

FB


Fyrsta umferðin í Íslandsmótinu

Í júlí var dregið í töfluröð Íslandsmótsins. Sú breyting verður í vetur að leikið verður í þremur deildum á Íslandsmótinu og í efstu deild verða leiknar fjórföld umferð, samtals 28 leikir á lið.
Í fyrstu deild leika: Afturelding, Akureyri, Fram, Haukar, HK, ÍBV, Stjarnan og Valur
Í annari deild leika: FH, Fylkir, Grótta, Haukar U, Höttur, ÍR, Selfoss og Víkingur.
Í þriðju deild leika: Ármann/Þróttur, Fram 2, HK 2, ÍR 2, Stjarnan 2, Valur 2 og Valur 3.
Íslandsmót karla hefst dagana 13. - 16. september.
Hér að neðan er umferðatal karla fyrstu 8 umferðirnar
1. umferð
Laugardalshöll            Valur - Haukar
2. umferð
Ásvellir                       Haukar - ÍBV
3. umferð
Framhús                      Fram - Haukar
4. umferð
KA heimilið                Akureyri - Haukar
5. umferð
Ásvellir                       Haukar - Stjarnan
6. umferð
Varmá                         Afturelding - Haukar
7. umferð
Ásvellir                       Haukar - HK
8. umferð
Ásvellir                       Haukar - Valur
FB

Æfingaleikir og æfingamót

Nú fara af stað æfingaleikir fyrir komandi tímabil og var sá fyrsti í gærkveldi gegn HK. Þar fórum við Haukamenn með sigur á hólmi 23-22. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir haukamenn en við unnum á og í hálfleik var staðan 11-11. Ýmislegt á eftir að laga og það eru þó nokkur kerfi sem við eigum eftir að ganga í gegnum og fullkomna.

Næsti æfingaleikur verður miðvikudaginn 15.ágúst. Leikið verður gegn Stjörnunni og hefst leikurinn 18:30 að Ásvöllum

24-26. ágúst förum við svo á Ragnarsmótið á Selfossi.

27.ágúst - 3.sept - Æfinga- og keppnisferð til Danmerkur

12 - 16.sept - Íslandsmótið hefst.

FB.


Haukamenn komnir af stað

Þá eru menn komnir á fullt í æfingum og hafa þær verið stífar síðan 24.júlí með lyftingum, intevali og boltaæfingum. Að meðaltali er æft 8 sinnum í viku. Aron hefur komið sterkur inn og verða menn klárir í slaginn þegar fyrsti leikur hefst sem er gegn Val að Hlíðarenda. (svakalega hlakka ég til)

Kv. Freyr B


« Fyrri síða

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband