Keppnis- og æfingaferð til Danmerkur

"Tekið af heimasíðu Hauka. www.haukar.is

Strákarnir okkar halda nú eftir hádegið í vikulanga keppnis- og æfingaferð. Áfangastaðurinn er Danmörk þar sem meðal annars verður leikið á gífurlega sterku móti, hálfgerðu Norðurlandamóti.

Fyrstu þrjá daga ferðarinnar munu strákarnir dvelja í Stoholm, sem er staðsett rétt utan við Viborg á Jótlandi. Á miðvikudaginn munu þeir leika fyrsta leikinn en það verður gegn Skjern, gömlu lærisveinum Arons Kristjánsson, þjálfara okkar manna. Með Skjern leikur einn Haukamaður, en það er línumaðurinn snjalli Vignir Svavarsson.

Á fimmtudag verður svo haldið til austur til Silkeborgar. Þar munu strákarnir taka þátt á gífurlega sterku fjögurra liða móti, hálfgerðu Norðurlandamóti.
Mótherjar strákanna á mótinu verða fyrst lið Bjerringbro-Silkeborg, sem hefur styrkt leikmannahóp sinn mjög mikið fyrir átök vetrarins, meðal annars með því að kaupa hinn magnaða leikmann Lars Krogh Jeppesen frá Kiel í Þýskalandi.
Næst er röðin komin að lærisveinum hins þekkta Staffan Olson, betur þekktur sem "Faxi", í Hammerby. Hammerby eru núverandi sænskir meistarar.
Þriðja og síðasta liðið er svo hið sterka norska lið Sandefjord, sem við Haukamenn könnumst við frá Evrópukeppninni.

Strákarnir halda svo heim á leið á mánudaginn eftir viku. Þá verður stutt í Íslandsmótið og áætlað er að fyrsti leikur verði gegn Val föstudaginn 14. september í Vodafone höllinni, nýjum heimavelli Vals.

Steinar.


Kári Kristján og Gísli Guðmunds meiddir

Ekki fórum við slysalausir úr þessum úrslitaleik gegn U17 á laugardaginn. Kári meiddist á fæti og er brotinn. Brotið er nálægt rist og þarf hann að hvíla í mánuð og fer líklega ekki með til Danmerkur á morgun. Einnig hefur komið í ljós að Gísli Guðmunds markvörður er með trosnað liðband í fæti og þarf að hvíla í viku. Þessi meiðsli koma á versta tíma þar sem liðið er á leið í viku æfingaferð til Danmerkur þar sem spilað verður við sterk lið.

Kári Kristján Kristjánsson                 gisligud

Kári Kristján                                  Gísli Guðmunds


Sigur í Ragnarsmótinu

Í dag vannst sigur á U17 ára landsliði Ísland sem óvænt komust í úrslit eftir að hafa gert jafntefli við Stjörnuna 29-29 í gær. Fregnir herma að Stjarnan hafi verið með 2.flokkinn og því langt frá því að vera með sitt sterkasta lið. En aftur að leiknum þá byrjuðum við að krafti og áttum í raun aldrei í vandræðum með þessa unglinga. Í hálfleik var staðan 19-11 okkur í vil og lokastaða var svo 37-27. Markahæstu menn voru Freyr með 6, Jón karl með 6, Halldór 5, Andri 4, Pétur 4, Gísli Jón, Arnar Jón 3, Beggi 2, Kristján 1, Þröstur 1 og Gunnar Berg 1.

Arnar Pétursson spilaði ekki með í kvöld. Gísli Guðmunds var valinn besti markvörður mótsins.

Næst á dagskrá er viku æfingaferð til Silkiborgar í Danmörku. Hægt verður að fylgjast með ferðinni hér á síðunni.

P.s. Áfram Liverpool


Úrslitaleikur á laugardaginn

Í kvöld vannst sigur gegn Selfossi í Ragnarsmótinu 32-24. Þessi leikur byrjaði ekki vel hjá okkur og vorum við hálf sofandi í upphafi og í stöðunni 3-1 tók þjálfarinn leikhlé og ausaði aðeins yfir mannskapinn. Ekki tók betra við strax eftir en Selfoss komst í 8-4 en þá tóku við okkur tak og jöfnuðum leikinn en staðan í hálfleik voru Selfoss yfir 12-11. Í seinni hálfleik var jafnt á flestum tölum en við alltaf 1 til 2 mörkum yfir. Selfoss jafnaði svo leikinn 21-21 en þá skildu leiðir og við skoruðum 11 mörk á móti 3.

Markadreifingin var þessi: Kári 9 mörk, Freyr 5, Halldór - Jón Karl og Beggi 3 mörk, Andri og Tóti voru með 2 en aðrir minna.

Úrslitaleikurinn verður svo spilaður á laugardaginn kl.16 líklega gegn Stjörnunni.

FB


Haukar 29 - Fram 26

Sigur vannst í kvöld gegn Fram í hinu árlega Ragnarsmóti sem haldið er á Selfossi. Leikurinn var jafn til að byrja með en svo náðu Framarar forustu 4-7 og þá var tekið leikhlé. Haukamenn komu sterkir eftir leikhléið og komust yfir 11-9. Í hálfleik var svo staðan 15-14 fyrir okkur. Í seinni hálfleik byrjuðum við vel og héldum forustu það sem eftir lifði leiks. Á tímabili var orðin 5 marka munur. Góður sigur í heildina en ennþá hægt að laga nokkra hluti t.d. dauðafærin og velja betur færi.

Maggi kom sterkur inn í markið í seinnihálfleik og varði 13 bolta þegar yfir lauk. Markahæstu menn Hauka voru Arnar Jón, Freyr, Gunnar Berg og Halldór allir með 4 mörk.  Næsti leikur er annað kvöld gegn Selfossi og ef hann vinnst þá spilum við til úrslita á laugardaginn.

P.s. Júlli þessi sigur var tileinkaður þér.Cool

FB.


Júlíus Jónasson handboltakempa 43 ára í dag

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag.Wizard

julli

Já, snyrtipinninn og naglinn Júlíus Jónasson á afmæli í dag. Viljum við Haukamenn óska honum innilega til hamingju með daginn. Í tilefni dagsins ætlum við Haukamenn að vinna Fram í kvöld.

Með afmæliskveðju Haukamenn.


 

 

FB 


Ragnarsmótið á Selfossi

Á morgun byrjar Ragnarsmótið sem er árlegt mót og er það haldið á Selfossi. Við eigum leik við Fram kl. 18:30. Á fimmtudag spilum við svo við Selfoss og byrjar hann einnig kl. 18:30. Þessir leikir eru mikilvægir fyrir undirbúningin.

Á mánudaginn í næstu viku förum við svo til Danmerkur í æfingaferð og verðum í viku. Þar komum við til með að spila við nokkur sterk lið. Þannig að við ættum að koma til baka vel undirbúnir fyrir komandi tímabil.


Sigur á Aftureldingu.

Sigur vannst gegn Aftureldingu í morgun en spilað var í Mosó. Við byrjuðum illa og það þurfti leikhlé og tiltal frá þjálfara til að menn færu að taka á því. Í hálfleik var staðan 13-13 og endaði leikurinn með sigri okkar 29-25. Eins og í undanförnum leikjum þá eru við ekki nógu samfærandi sóknarlega og vörnin gæti og hefur verið betri á æfingum. Nú eru margir nýjir leikmenn og það er vonandi að við komum til með að pússa okkur saman sem eina liðsheild fyrir fyrsta leik sem er gegn Val um miðjan september. Andri Stefan var skárstur af okkar mönnum og þá sérstaklega síðustu 15 mín.

Næst á dagskrá er Ragnarsmótið sem fram fer á Selfossi og erum við í riðli með Fram og Selfossi. Fyrsti leikur í mótinu verður á miðvikudag gegn Fram. Í hinum riðlinum eru Stjarnan, U17 og eitt lið í viðbót sem ég man ekki akkúrat núna. Efstu liðin í riðlunum spila til úrslita.

Kv. FB


Valsmenn sigruðu örugglega

Í kvöld spiluðum við Haukamenn við Valsara að Ásvöllum. Leikurinn byrjaði ágætlega hjá okkur en fljótlega tóku Valsmenn yfirhöndina og voru yfir í hálfleik 9-17!!! Á tímabili í seinni hálfleik voru Valsmenn 11 mörkum yfir. Leikurinn endaði svo 24-28 fyrir Val en við tókum okkur tak síðustu 10 mín. Valsmenn voru langt frá því að vera með sitt besta lið. Markús ekki með vegna vinnu, Ernir var meiddur og Ægir línumaður lenti í bílslysi rétt áður en leikurinn átti að byrja og mætti ekkert. Hjá okkur voru Halldór og Freyr ekki með vegna meiðsla. Gaman var að sjá að gamla kempan Finnur Jóhannsson sem átti sín bestu ár með Val á síðustu öld er að æfa og spilar sem skytta hjá Völsurunum.

akureyriir2finnur2

Næsti æfingaleikur hjá okkur Haukunum verður í fyrramálið í Mosó gegn Aftureldingu.


Hvar er Pétur Páls?

Marvel-character-composit

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband