15.9.2009 | 15:00
Ekkert Reykjavík Open í ár hjá okkur.
Það er svo sem ekkert nýtt, þar sem við höfum ekki tekið þátt í þessu móti í mörg ár. En í ár ætluðum við að mæta til leiks og áttum að vera í riðli með Neista frá Færeyjum, Stjörnunni, Víking og Þrótti. En stjórn Hauka ásamt þjálfurum kusu að taka liðið úr keppni vegna þess að samkvæmt síðasta plani þá áttum við að spila 4 leik einn daginn. Þó að þetta séu 2x 20 mín leikir þá er fáránlegt að ætlast til að við spilum 3-4 leiki á sama degi.
Haukarnir ásamt Val, FH og HK hafa dregið lið sín úr keppni. Ég kíkti á planið á hsi.is og ekki virðist þetta hafa lagast. Sá að Framarar eiga að spila 3 leiki sama dag og er það skipulagt þannig að Framarar spila tvo leiki í röð. Fyrir þá sem vilja sjá nánar um þetta mót þá er hægt að smella HÉR.
Í staðin fyrir að taka þátt í þessu móti munum við spila æfingaleiki við Gróttu á miðvikudaginn(líklega), Val á fimmtudaginn og FH á laugardaginn. Þessir leikir verða spilaðir í fullri lengd eða 2x30 mín.
![]() |
Fjögur hætt við Reykjavíkurmótið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2009 | 08:17
Æfingaleikur við Stjörnuna í gær
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2009 | 23:13
Haukamenn í Meistaradeild Evrópu.
Um helgina fór fram riðlakeppni um laus sæti í Meistaradeild Evrópu. Þar voru fyrrum Haukamenn að keppa. Andri Stefan og lið hans í Fyllingen komst áfram eftir að hafa unnið sinn riðil. Þeir gerðu jafntefli í fyrsta leiknum geng liði frá Serbíu, RK Partizan - Fyllingen 28-28 (16-14). Í þessum leik fór allt í háaloft á lokamínútum leiksins og fengu 3 leikmenn rautt spjald, einn úr Partizan og tveir frá Fyllingen. En Andri var einmitt einn af þeim sem fékk rautt spjald. (á eftir að heyra nánar í honum um þetta). Andri spilaði því ekki gegn Bregenz frá Austurríki. Þann leik unnu Fyllingen nokkuð örugglega 35-31.
Vignir Svavarsson var einnig að spila í svona riðlakeppni með liði sínu Lemgo. Þeir gerðu ekki gott mót og unnu ekki leik. Þeir voru í riðli með Reale Ademar frá Spáni, Kadetten frá Sviss (liðið sem Björgvin leikur með) og Celje Lasko frá Slóveníu.
Andri Stefan mun því spila í riðli með BM Ciudad Real frá Spáni, HC Croatia Osiguranje-Zagreb frá Króatíu, Hamburg frá Þýskalandi, FCK handball frá Danmörku og Alingsas HK frá Svíþjóð. Ekki leiðinlegur riðill þetta.
Kári Kristján fór beint inn með sínu liði GC Amicitia Zürich frá Sviss inn í aðalkeppnina og er þar í riðli með THW Kiel frá Þýskalandi, Kolding frá Danmörku, Barcelona frá Spáni, Reale Ademar frá Spáni og HC Vardar PRO - Skopje frá Makadóníu. Annar skemmtilegur riðill þar á ferðinni.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2009 | 00:00
September - æfingaleikja mánuður
Nú er september gengin i garð og í ár er hann ekki eins og fyrri ár vegna þess að HSÍ hefur ákveðið að þétta mótið og hefst deildin ekki fyrr en 8.október. September verður því nýttur í æfingamót.
Fyrsta mótið er Reykjavík Open, en það fer fram 18-20 september. Strax helgina á eftir fer fram Hafnarfjarðarmótið. Þar mætast Haukar, fh, Valur og Akureyri.
Við höfum þegar spilað tvo leiki hér heima. Fyrst unnum við HK og svo tóku við Fram í síðustu viku.
Meistarar meistarana verður einhverntíman í október - ekki komin dagsetning. Eftir fyrsta leik okkar í deildinni mætum við Pólsku liði í evrópukeppni bikarhafa. Ekki er klárt hvort við spilum báða leikina úti. Það fer eftir því hvort Pólska liðið taki tilboði Hauka um að selja leikinn út.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2009 | 13:14
Tap gegn Skövde
Það hafðist ekki að klára síðasta leikinn í þessu móti í dag. Menn voru mættir í morgunmat kl.7:30 að staðartíma sem er 5:30 heima. Leikurinn hófst svo kl.11. Við byrjuðum ágætlega og jafnt var á flestum tölum en svo þegar um 2 mín voru eftir mistókst okkur að minnka muninn í eitt mark og í staðinn skoruðu þeir 3 mörk en við náðum svo að skora síðasta mark fyrri hálfleiksins. Staðan í hálfleik var 18-15 þeim í vil. Í seinni hálfleik héldu þeir þessu forskoti langt fram eftir leik en þegar um 5 mín voru eftir náðum við að minnka muninn niður í 1 mark 26-25. Þeir náðu svo að landa sigri eftir mikla baráttu 31-29. Í þessum leik erum við að gera okkur seka um allt of marga sendingafeila og byrjendamistökum.
Markaskor: Heimir 5, Elli 4, Bjöggi 4, Einar 4, Freyr 3, Stebbi 3, Gummi 3, Tjörvi 2, Gunnar 1.
Birkir varði 8 bolta
Beggi var spilaði ekki þennan leik þar sem hann snéri sig í lok leiksins í gær. Hann var svo valinn í liði mótsins.
Dagurinn í dag verður frjáls hjá okkur og er stefna sett á Gúrkumót seinna í dag. Menn hafa verið duglegir að safna að sér sektum og eru þar nokkrir sem hafa verið duglegir. Helsta er að nefna þá Jónatan, Guðmund, Ella, Pétur, Tóta sem dæmi. Sektarsjóðurinn þakkar fyrir þeirra framlag.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2009 | 14:40
Tap gegn Drammen
Við byrjuðum illa í leiknum í dag og mættum einfaldlega ekki til leiks. Við vorum engan vegin klárir og Drammen nýttu sér það til fullnustu. Þeir komust í 5-1 og voru betri en við á öllum vígstöðum. Vörn var léleg, sóknin tilviljunarkennt og markvarsla engin, staðan var 20-12 í hálfleik. Í seinnihálfleik var annað upp á teningin og mættum við mjög öflugir með góðri vörn. Það skilaði sér í að við skoruðum fyrstu 4 mörkin og vorum loksins að spila sem lið. Þegar um 10 mín voru eftir fengum við tækifæri til að minnka muninn niður í 1 mark en í staðinn náðu þeir að skora 2 ódýr mörk í röð eftir mistök hjá okkur sóknalega. Lokastaðan var svo 35-30 Drammen í vil.
Næsti leikur er gegn Skövde í fyrramálið um 5-6.sætið.
Markskor: Beggi 8, Gummi 5, Pétur 4, Stebbi 4, Björgvin 3, Einar 2, Elli 1, Freyr 1, Tjörvi 1, Heimir 1.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2009 | 20:21
Tap í fyrsta leik gegn Savehof
Í kvöld mættum við liði Savehof sem eru núverandi deildarmeistarar í Svíþjóð. Leikurinn byrjaði vel og skoruðum við fyrsta markið úr hraðupphlaupi. Við spiluðum 3-2-1 vörn og 5-1 í leiknum. Við leiddum allan fyrri hálfleikinn og vorum að spila vel sóknalega en létum þá skora full mikið úr hraðupphlaupum og í öðru tempóí. Staðan í hálfleik var 15-14 okkur í vil. Í seinni hálfleik spiluðum við ekki nógu vel og þeir náðu fljótlega forustu. Leikurinn endaði svo með 4 marka tapi 24-28. Við gerðum okkur seka um allt of marga tæknifeila og vorum að skjóta illa á markið í seinnihálfleik. Það fengu allir leikmenn að spreyta sig og í heildina er þetta ágæt byrjun þó svo að við töpuðum þessum leik. Við erum að spila okkar fyrsta alvöru æfingaleik en þeir hafa spilað þó nokkuð meira í sínu undirbúningstímabili. Markhæstur hjá okkur var Björgvin Hólmgeirs með 6 mörk.
Næsti leikur er gegn Drammen frá Noregi. Sá leikur fer fram kl.12 að staðartíma sem er 10 heima á Íslandi.
P.s. Við hittum okkar gamla félaga og góð vin Andra Stefan en hann er nú spilandi með Fyllingen frá Noregi. Þeir spila í hinum riðlinum ásamt Kolding og Skövde. Það gæti verið að við spilum við hann ef við vinnum á morgun. :)
Annars var markaskor á þennan veg:
Björgvin 6/12
Beggi 4/11
Elli 3/6
Pétur 3/3
Guðmundur 3/3
Einar Örn 2/2
Gunnar Berg 1/2
Heimir 1/2
Freyr 1/3
Birkir varði 11 bolta og Aron Rafn 1.
Fallegastu á velli: Gunnar Berg (Að eigin sögn)
Grófasti leikmaðurinn: Stefán Rafn (Rautt spjald, 3x2 min)
Fallegasta markið: Guðmundur ( Haus úr horninu)
Besta nýtingin: Einar Örn, Pétur og Guðmundur.
Mesta steikin: Dómarar leiksins.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2009 | 17:43
Jöfnun á leikjafjölda á einu tímabili.
Ég hef tekið saman fjölda leikja sem við Haukamenn spiluðum í öllum helstu keppnum á síðasta keppnistímabili og við spiluðum 43 leiki í fyrra í öllum keppnum og er það jöfnun á leikjafjölda frá tímabilinu 2005-2006.
Deildaleikir = 21
Bikar = 2
Deildarbikar = 2
Evrópukeppni = 10
Meistarar meistarana = 1
Úrslitakeppni = 7
2004-2005 = 33 leikir
2005-2006 = 43 leikir
2006 - 2007 = 29 leikir
2007- 2008 = 33 leikir
2008 - 2009 = 43 leikir
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2009 | 23:09
Fyrsti æfingaleikurinn á morgun. Svíþjóð á fimmtudaginn
Nú fer að koma að æfingaleikjum og sá fyrsti verður hjá okkur á morgun. Í heimsókn fáum við HK sem eru með mikið breytt liði frá því í fyrra. Þessi leikur er fengin sem liður í undirbúningi fyrir æfingamót í Svíþjóð. Við förum á fimmtudaginn 20.ágúst og spilum þar í sterku æfingamóti. Möguleiki er á að við mætum liðinu hans Andra Stefan en þeir heita Fyllingen og eru núverandi meistarar í Noregi.
P.s. bónið á laugardaginn gekk vel og voru í heildina þrifnir 55 bílar. Við þökkum öllum þeim sem komu að þessu verkefni.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 163578
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar