2 töp á árinu 2012

Árið 2012 byrjar ekki vel hjá okkur Haukamönnum. Byrjuðum á því að tapa gegn Val í fyrsta leik þar sem jafnt var í hálfleik 8-8 en svo vorum við bara ekki með í þeim seinni. Svipað er upp á teninginn í kvöld þegar við töpum gegn fh. Staðan var 10-10 og við að spila góða vörn en hefðum átt að gera betur sóknarlega. Í seinni hálfleik hrynur varnaleikurinn og sóknin skilar litlu sem engu. Nú eru tvær umferðir búnar og við erum með 1 stigs forskot í deildinni en það fer fljólega ef við ætlum að spila svona.

Næsta verkefni er undanúrslit í bikarnum gegn fh að Ásvöllum og það er eins gott að við girðum okkur í brók og komum klárir í 60 mín. 


Rauð jól í Hafnarfirðinum þetta árið.

Það verður að segjast eins og er að þessi sigur á mánudagskvöldið verður ekki sætari og það kom aldrei til greina annað en sigur og vilji okkar, metnaður og sigurvilji var meiri þetta kvöld.

Leikurinn var jafn og einkenndist af góðum varnaleik og fullt af sóknarmistökum. Staðan í hálfleik var 8-7 fh í vil og við búnir að tapa boltanum 7 sinnum, klúðra 4 dauðafærum sem fóru flest í stöng eða slá og markverðir okkar vörðu 2 bolta. Það var því alveg ljóst í hálfleik að við áttum mun meira inni. fh-ingar byrjuðu reyndar betur og skoruðu 2 fyrstu mörkin en í stöðunni 13-10 þeim í vil tók Aron Rafn við sér og hann ásamt varnaleik okkar varð til þess að þeir skoruðu einungins 3 mörk næstu 10 mín en við 11 mörk. Sanngjarn sigur vannst 21-16 og við förum með 5 stiga forskot inn í jóla/landsliðspásu. Næsti leikur í deildinni er ekki fyrr en 3.febrúar 2012.

Næsta verkefni hjá okkur er deildarbikarinn sem fram fer að Strandgötu 27.des og þar mætum við Fram í undanúrslitum. Ef við sigrum þann leik þá mætum við sigurvegurum úr leik fh og HK daginn eftir. 

 

Haukakveðja Freyr B.


Komnir áfram í undanúrslit bikarsins

Í kvöld fórum við Haukamenn í heimsókn að Hlíðarenda og undirbúningur okkar var á þeim nótunum að þetta yrði jafn og spennandi leikur. En þessi leikur var aldrei spennandi því Valsmenn áttu engin svör við varnaleik okkar ásamt því að vörnin hjá þeim og markvarsla var enginn.

Undanfarnir leikir okkar við Valsmenn hafa yfirleitt ekki verið miklir markaleikir því bæði lið geta spilað góðan varnarleik og eiga á að skipa góðum markmönnum. En í kvöld var þetta einstefna og eftir að hafa leitt leikinn í hálfleik með 6 mörkum heldum við áfram í þeim seinni og keyrðum yfir þá. Lokatölur urðu 11 marka sigur 21-32.

 

stebbi Stefán Rafn átti frábæran leik og spilaði eins og engill. Einnig var Tjörvi mjög tjorvi öflugur í fyrrihálfleik ásamt því að Birkir varði mjög vel. Varnalega spiluðum við 6-0 vörn þar sem Matti og Svenni gerðu ekki feilsspor allan leikinn. 

Undanúrslit eru staðreynd og þar getum við mætt Fram, fh/Grótta, ÍBV2/HK. 

Næsti leikur okkar er í deildinni gegn Akureyri fyrir norðan næsta fimmtudag. 


Sigur gegn Gróttu - Bikarleikur á morgun gegn Val.

Á fimmtudaginn síðastliðinn fengum við Gróttu í heimsókn. Til að gera langa sögu stutta þá var þetta öruggur sigur 29-17 gegn slöku liði Gróttu. Gylfi var öflugur og skoraði 12 mörk og Birkir Ívar var flottur í markinu og tók meðal annars tvisvar dansspor inn í teignum.

Næst verkefni okkar Haukamanna er Eimskipsbikarinn 8 liða úrslit. Þar förum við í heimsókn að Hlíðarenda og mætum Valsmönnum. Valsmenn hafa verið á siglingu undanfarið og náðu nú síðast jafntefli gegn fh eftir að hafa verið undir 2 mörkum og 1 min eftir.  Leikir okkar gegn Val hafa ávallt verið hörkuleikir og verður þessi leikur örugglega engin undantekning. Valsmenn eru núverandi bikarmeistara og á heimavelli og við verðum að eiga okkar besta leik til að komast áfram. Þessi leikur verður sjónvarpaður í sjónvarpi okkar landsmanna en við vonum að Haukamenn sjái sér fært að mæta og styðja okkur til sigurs. 

Áfram Haukar.

p.s. leikurinn hefst kl.15:45.


Sigur í Safamýrinni

Á fimmtudaginn síðastliðin mættust topplið deildarinnar og það mátti vita að þessi leikur yrði spennandi. Það byrjaði þó ekki þannig þar sem við Haukamenn byrjuðum mun betur og skorðuðum 5 fyrstu mörkin. Eftir það slökuðum við örlítið á og Fram komst inn í leikinn og á tímabili í fyrrihálfleik komut þeir yfir en staðan í hálfleik var svo 13-13.

Í seinni hálfleik hófu Framarar leikinn betur og komust í 17-14. Það var í þessari stöðu sem við breyttum um vörn og stuttu eftir það kom Birkir Ívar inn í markið. Þetta tvennt ásamt því að spila agaðan sóknarleik varð til þess að við náðum yfirhöndinni og í stöðunni 21-20 vorum við einu yfir eða fram búið að jafna. Í stöðunni 25-25 og 3 mín eftir náðum við að halda þeim frá markinu og áttum svo síðustu sóknina í stöðunni 25-26 þar sem Gylfi tryggði okkur sigurinn og lokatölur því 25-27. 

Í fyrrihálfleik átti Aron Rafn fínan leik en í þeim seinni kom Birkir virkilega sterkur inn. 

Varnarleikurinn var öflugur og hefur verið það í vetur. Við höfum aðeins fengið á okkur 23 mörk að meðaltali í leikjunum 8. 

Næsti leikur er gegn Gróttu á heimavelli okkar, en þar á eftir förum við í heimsókn á Hlíðarenda að spila í 8 liða úrslitum Eimskipsbikarsins. 

Maður leiksins var Heimir Óli en hann nýtti færin sín fullkomnlega og greip allt sem á hann var kastað. 

Markaskor: Gylfi 8, Heimir 6, Tjörvi 5, Freyr 4, Svenni 3, Nemanja 1.


Góður sigur á HK

aronrafn Í dag vannst góður sigur gegn kópavogsbúum. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir okkur þar sem HK náðu nokkrum hraðupphlaupum ásamt því að varnarleikur okkar var ekki góður. En fljótlega náðum við áttum og náðum að bæta vörnina ásamt því að Aron Rafn fór að verja vel. Við náðum að komast yfir og staðan var 12-11 okkur í vil þegar flautað var til hálfleiks.

Í seinni hálfleik byrjuðu HK menn betur en við vorum einum færri fyrstu 1.30 sek og Gylfi það nýttu HK menn sér og komust yfir. Í stöðunni 15-15 náðum við nokkrum góðum vörnum ásamt að Aron Rafn varði eins og engin væri morgundagurinn. Við náðum 3 marka forskoti 20-17 þegar lítið var eftir og í stöðunni 20-18 vorum við 2 færri en náðum að fiska vítakast sem Stefán Rafn skoraði úr. Þeir náðu að minnka muninn í eitt mark þegar um 1 mín var eftir en við náðum að skora þegar um 20 sek voru eftir og Nemanja Malovic þar var Nemanja að verki og úrslitin ráðin. HK náði þó að minnka muninn með síðasta marki leiksins og lokastaðan var því 22-21 okkur í vil. 

Frábær varnarleikur ásamt frábæri markvörslu hjá Aroni Rafni skilaði þessum sigri í dag. 

Næsti leikur er á fimmtudaginn gegn Fram en þeir sitja á toppi deildarinnar með sama stigafjölda og við en þeir eru með betri einbyrðis gegn okkur.

Maður leiksins er klárlega Aron Rafn en Gylfi kemur þar rétt á eftir. 

 Áfram Haukar.

p.s. svo vann Liverpool Chelsea í dag og því tvöfaldur sigur. :)


Sigur í eyjum.

Í gær lögðum við loksins af stað til eyja eftir að sumir af leikmönnum höfðu verið farni í loftið daginn áður og ekki getað lent vegna þoku, og því var leiknum frestað.  Það má með sanni segja að okkar hafi beðið mjög svo óvinveittur heimavöllur en áhorfendur mynda magnaða stemmningu í litla salnum í Vestmanneyjum. Mikill hávaði var þegar við vorum í sókn en svo sló á dúna logn meðan ÍBV var í sókn. Mjög furðuleg upplifun og mætti halda að það væri þagnarbindindi í gangi þegar heimamenn voru í sókn og sá fyrsti sem vogaði sér að tala yrði um leið hent út af Steina frænda.

Leikurinn var jafn og sóknarleikur var lélegur hjá báðum liðum. Eyjamenn komust yfir undir lok fyrrihálfleiks og var staðan 10-9 fyrir heimamenn. Í seinni hálfleik náðum við undirtökunum og leiddum bróðurpartinn af honum. Við nýttum okkur vel að vera manni fleiri og skoraði Gylfi einhver 6 mörk í seinni hálfleik eftir stimplun í hornið. Eyjamenn hafa á að skipa góðu liði og ef þeir spila áfram svona vörn þá stoppar þá ekkert lið í 1.deildinni. Þess ber að geta að Pétur Páls gat ekki tekið þátt í þessum leik og er það mál manna að hann hafi einfaldlega hrökklast undan þegar hann sá að við vorum með mynd af Didda með okkur. Pappakassi þessi Pési.

Næsta verkefni hjá okkur í bikarnum er Valur og fer hann fram á Hlíðarenda 4 eða 5. desember.  Næsti leikur okkar í deildinni er gegn HK á sunnudaginn en sá leikur er einmitt sjónvarpsleikur, þannig að það er spurning um að Stebbi (a.k.a. Anton) fari í svo til einn ljósatíma.

Markahæstur í leiknum gegn ÍBV var Gylfi með 9 mörk. Aðrir miklu minna.


Eimskipsbikarinn

Þá fer að líða að því að við Haukamenn tökum þátt í bikarkeppni HSÍ og við fáum það verðuga verkefni að mæta Eyjamönnum og það í Vestmanneyjum. Eyjamenn trjóna á toppi 1.deildar og virðast vera fara beinustu leið upp í efstu deild. Við hittum þar fyrir nokkra Haukamenn sem hafa hampað Íslandsmeistaratitlum með okkur undanfarin ár.

Arnar Pétursson Fyrstan ber að nefna harðjaxlinn og núverandi þjálfara eyjamanna Arnar Pétursson. Addi P eins og hann er kallaður a.k.a. man of steal verður án efa búin að efla sína menn og ef þeir hafa hans baráttu þá er eins gott að við mætum tilbúnir til leiks. Gísli Jón Þórisson

Næstur í röðinni er Gísli Jón Þórisson en hann fór yfir til eyjamanna um síðustu áramót og er að stýra sóknarleik þeirra ásamt því að vera góður varnarmaður. Gilli John a.k.a. áégadlemjaþig verður án efa erfiður í þessum leik.

Síðast en ekki síst er það Pétur nokkur Pálsson línu(lukku)tröll og húmoristi með meiru. Pétur var einn af okkar lykilmönnum þegar við lönduðum Íslands og bikarmeistaratitli 2010. Pétur meiddist nýverið og talið var að hann myndi ekki spila en samkvæmt áræðanlegum heimildum þá er Pétur búin að Pétur Pálsson láta sprauta sig og ætlar að spila þenna leik. Pétur er harður en við ætlum að taka Didda með í ferðina, en fyrir þá sem ekki vita þá er Diddi kryptonitið sem getur hugsanlega stoppað Pésa. 

Við hlökkum til að hitta haukamennina og fá að taka á þeim. 

Leikurinn fer fram þriðjudaginn 15.nóvember í Vestmanneyjum og hefst hann kl.19.


Sigur, sigur og aftur sigur.

Gylfi tjorvi Í kvöld unnum við okkar 4 sigurleik í röð þegar Valsmenn mættu í heimsókn. Valsmenn byrjuðu betur en við komumst fljótlega inn í leikinn og náðum 3 marka forskoti fyrir leikhlé. Í seinni hálfleik héldum við uppteknum hætti og leiddum leikinn í 2-4 mörkum en í stöðunni 29-25 tóku Valsmenn smá kipp eftir að við vorum einum færri. Þeir  náðu að minnka muninn í eitt mark en þá settum við í lás og skoruðum næstu 5 mörkin og sigur vannst 34-28. Góður sóknarleikur og góð nýting úr færunum var lykilinn að sigri okkar í kvöld. Tjörvi stjórnaði sókninni að stakri snilld og setti 8 mörk og Gylfi var með frábæra nýtingu úr horninu og í vítunum en hann skoraði 9 mörk.

Eins og fyrr segir þá höfum við unnið nokkra leiki í röð en síðustu tveir leikir á móti Akureyri og Aftureldingu voru seiglu sigrar og það má með sanni segja að við séum að spila vel á liðsheildinni og sigurviljinn er til staðar eins og sést á úrslitum þessara leikja. 

Næsti leikur aftur á móti er leikur leikjanna þegar við förum í heimsókn í kaplakrika og tökum á fh-ingum. Sá leikur verður ekki fyrr en 13.nóvember þar sem landsliðið hittist til æfinga. Það þarf ekki að taka það fram að það er skyldumæting á þennan leik. 

Áfram Haukar.


4 leikir 3 sigrar

birkir

Í kvöld vannst mjög góður sigur á liði Akureyrar og var þetta 3 sigur okkar í deildinni úr fyrstu 4 leikjunum.

Leikurinn í kvöld var jafn en við leiddum þó allan leikinn og Akureyri jafnaði fyrst í stöðunni 20-20. Í fyrrihálfleik höfðum við yfirhöndina og vorum komin í 13-10 en þá kom slæmur kafli hjá okkur og þeir minnkuðu munin í eitt mark fyrir hlé og var staðan í hálfleik 14-13. 

Í seinnihálfleik ætluðum við ekki að mæta eins og við gerðum á móti Fram í síðasta heimaleik. Í kvöld mættum við ákveðnir og skoruðum 2 fyrstu mörkin. Í stöðunni 16-14 voru 3 haukamenn reknir útaf með stuttu millibili en við létum heimiroli það ekki slá okkur út af laginu og unnum við þennan kafla 2-0 og náðum 4 marka forustu 18-14. Eftir að við fengum alla okkar leikmenn inná þá gáfum við eftir og þeir komust inn í leikinn aftur og eins og fyrr segir jöfnuðu 20-20. Síðustu mínútur leiksins voru spennuþrungnar en við náðum að innbyrða sigur 23-22. Birkir Ívar átti frábæran leik og megum við þakka honum að við kláruðum þennan leik ásamt því að Heimir Óli átti mjög góðan leik í sókninni og skoraði 7 mörk en hann skoraði einmitt síðasta mark leiksins og tryggði okkur sigur. 

Næsti leikur er gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ næsta fimmtudag. 

Markaskorun: Heimir Óli 7, Tjörvi 4, Stefán 3, Freyr 3, Nemanja 3, Þórður 2, Gylfi 1. 

Birkir varði 18 samkvæmt mbl. ( en Hörður skráði bara 12 varða) við trúum frekar Herði ;)


Næsta síða »

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2011-2012
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2011-2012

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2011-2012

 

 

Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband