17.12.2009 | 00:15
2 í úrvalsliði umferðar 1-7 + deildarbikar
Í dag var valið í úrvals lið N1-deildarinnar fyrir umferðir 1-7. Hjá okkur Haukamönnum voru tveir leikmenn. Það voru þeir Sigurbergur Sveinsson í vinstri skyttu og Freyr Brynjarsson í vinstra horni. Einnig var Aron valinn besti þjálfarinn.
Hanna G Stefánsdóttir var svo fulltrúi kvennaliðsins í hægra horninu.
Nú tekur við jólapása þó með tveimur leikjum milli jóla og nýárs. Deildarbikarinn fer fram 27. og 28.desember og verður leikið í Strandgötunni. Við haukamenn fáum Valsmenn í undanúrslitum og í hinum undanúrslitaleiknum leika fh og Akureyri. Í þessum leik fá 4 elstu leikmennirnir frí (Birkir, Einar, Freyr og Gunnar Berg) en aðrir eru klárir og nokkuð ljóst að í þessum leik fá ungu leikmennirnir tækifæri til að sýna sig og sanna.
Þess má geta að við Haukamenn eigum einnig nokkra í landsliðshóp Íslands. Sigurbergur, Birkir og Gunnar Berg eru skráðir í 28 manna hóp fyrir EM í Austurríki. Einnig eru fjölmargir "gamlir" haukamenn í hópnum eins og Ásgeir Örn, Þórir, Kári Kristján og Vignir.
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 163323
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.