Tap gegn Drammen

Pétur PálssonVið byrjuðum illa í leiknum í dag og mættum einfaldlega ekki til leiks. Við vorum engan vegin klárir og Drammen nýttu sér það til fullnustu. Þeir komust í 5-1 og voru betri en við á öllum vígstöðum. Vörn var léleg, sóknin tilviljunarkennt og markvarsla engin, staðan var 20-12 í hálfleik. Í seinnihálfleik var annað upp á teningin og mættum við mjög öflugir með góðri vörn. Það skilaði sér í að við skoruðum fyrstu 4 mörkin og vorum loksins að spila sem lið. Þegar um 10 mín voru eftir fengum við tækifæri til að minnka muninn niður í 1 mark en í staðinn náðu þeir að skora 2 ódýr mörk í röð eftir mistök hjá okkur sóknalega. Lokastaðan var svo 35-30 Drammen í vil.

Næsti leikur er gegn Skövde í fyrramálið um 5-6.sætið.

Markskor: Beggi 8, Gummi 5, Pétur 4, Stebbi 4, Björgvin 3, Einar 2, Elli 1, Freyr 1, Tjörvi 1, Heimir 1.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband