Tap í fyrsta leik gegn Savehof

bjorgvinholmÍ kvöld mættum við liði Savehof sem eru núverandi deildarmeistarar í Svíþjóð. Leikurinn byrjaði vel og skoruðum við fyrsta markið úr hraðupphlaupi. Við spiluðum 3-2-1 vörn og 5-1 í leiknum. Við leiddum allan fyrri hálfleikinn og vorum að spila vel sóknalega en létum þá skora full mikið úr hraðupphlaupum og í öðru tempóí. Staðan í hálfleik var 15-14 okkur í vil. Í seinni hálfleik spiluðum við ekki nógu vel og þeir náðu fljótlega forustu. Leikurinn endaði svo með 4 marka tapi 24-28. Við gerðum okkur seka um allt of marga tæknifeila og vorum að skjóta illa á markið í seinnihálfleik. Það fengu allir leikmenn að spreyta sig og í heildina er þetta ágæt byrjun þó svo að við töpuðum þessum leik. Við erum að spila okkar fyrsta alvöru æfingaleik en þeir hafa spilað þó nokkuð meira í sínu undirbúningstímabili. Markhæstur hjá okkur var Björgvin Hólmgeirs með 6 mörk.

Næsti leikur er gegn Drammen frá Noregi. Sá leikur fer fram kl.12 að staðartíma sem er 10 heima á Íslandi.

Andri Stefan GuðrunarsonP.s. Við hittum okkar gamla félaga og góð vin Andra Stefan en hann er nú spilandi með Fyllingen frá Noregi. Þeir spila í hinum riðlinum ásamt Kolding og Skövde. Það gæti verið að við spilum við hann ef við vinnum á morgun. :)

 

 

Annars var markaskor á þennan veg:

Björgvin 6/12

Beggi 4/11

Elli 3/6

Pétur 3/3

Guðmundur 3/3

Einar Örn 2/2

Gunnar Berg 1/2

Heimir 1/2

Freyr 1/3

Birkir varði 11 bolta og Aron Rafn 1.

 

Fallegastu á velli: Gunnar Berg (Að eigin sögn)

Grófasti leikmaðurinn: Stefán Rafn (Rautt spjald, 3x2 min)

Fallegasta markið: Guðmundur ( Haus úr horninu)

Besta nýtingin: Einar Örn, Pétur og Guðmundur.

Mesta steikin: Dómarar leiksins.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband