Lið umferðar 15-21 í N1-deildinni

birkir ivarÍ dag var valið í lið 3 og síðustu umferðar deildarinnar. Við eigum 3 í karlaflokki og 3 í kvennaflokki.

Hjá Körlunum voru þeir Birkir Ívar, Freyr og Sigurbergur valdir og að mínu mati átti Kári Kristján að vera þarna líka. Birkir Ívar var svo valinn besti leikmaður umferðarinnar.

 

Hjá Konunum voru þær Hanna og Ramune valdar ásamt því að Díana var valinn besti þjálfarinn. Hanna var valinn besti leikmaður umferðarinnar. Einnig fengu Haukar verðlaun fyrir bestu umgjörðina í kvennaflokki. 

Annað kvöld hefst svo úrslitakeppnin hjá okkur körlunum og þá koma Framarar í heimsókn. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki veit ég hvað gerðist í seinni hálfleik á móti Fram en að tapa 30 mín með 9 mörkum á heimavelli er frekar dapurt.  Treysti því að þið girðið ykkur í næsta leik þar sem ég hef engan áhuga á því að fara í sumarfrí !

Fannst samt svekkjandi að sjá hvað það var miklu meiri stemming í þessu ömurlega Fram-liði. Mínir menn voru að hreyta ónotum í hvern annan á meðan menn voru að klappa hver öðrum á axlirnar í hinu liðinu.

Þið eruð ósigrandi þegar þið þjappið ykkur saman og spilið hver fyrir annan. Grafið djúpt í stoltið og sýnið hvers vegna Haukar eru bestir.

kv

BG

Haukamaður (IP-tala skráð) 18.4.2009 kl. 14:05

2 identicon

Já það var hrikalegt að horfa á seinni hálfleikinn á fimmtudaginn, það var eins og þið væruð á hálfum hraða og hreinlega utanveltu á vellinum. Er sammála Haukamanninum hér að ofan, það var mikill karakter í Frömurum eitthvað sem maður sá lítið af hjá ykkur, vantaði miklu meiri hungur og grimmd hjá mönnum. Eyða svo orkunni í að peppa hvorn annan upp og klappa á bakið í staðinn fyrir þennan pirring og væl sem engu skilar.  Ég mæti galvösk á morgun í rauðu og trúi og treysti á að þið mætið á völlinn og spilið til sigurs.

Áfram Haukar

Ella Óladóttir (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 16:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband