Skildusigur á Stjörnunni - næst úrslitakeppni

N1(1)Í dag sóttum við Stjörnumenn heim í Mýrina og byrjaði leikurinn rólega. Stjörnumenn komust yfir 3-1 þegar um 8 mín voru liðnar af leiknum. Við spiluðum 6-0 vörn þar sem ungir leikmenn fengu að spreyta sig ásamt að hafa Gunnar Berg þarna með til halds og trausts. Við náðum fljótlega góðum tökum á leiknum og vorum yfir í hálfleik 16-13. Í seinnihálfleik jukum við forustuna í 6 mörk 20-14. Stjörnumenn ætluðu sér ekki að gefa þetta eftir og náðu að minnka muninn í 2 mörk þegar um 3 mín voru eftir. Á þessum tímapunti varði Gísli G nokkra góða bolta úr dauðafærum og við tryggðum okkur öruggan sigur 31-27. Vörnin var góð og sóknarleikurinn ásættanlegur. Okkar bestu menn voru Gísli G í rammanum, Stefán Rafn í horninu ásamt þeim Andra og Einari Erni.

Markaskor: Andri 7, Einar 7, Stefán Rafn 7.

Gísli G varði um 20 skot.

P.s. flott mynd af Stebba á mbl.is (Tóti væntanlega sáttur við þetta)

Næsti leikur er í úrslitakeppninni og þar mætum við Fram. Fyrsti leikur er 16.apríl að Ásvöllum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband