29.3.2009 | 22:28
Deildarmeistarar 2009
Það hafðist í kvöld að klára deildinna með jafntefli gegn HK. Við byrjuðum leikinn mjög vel og komust fljólega í 6-2 en þá tóku HK-menn sig til og skoruðu 6 mörk í röð og staðan orðin 6-8 fyrir HK. Varnaleikurinn komst ekki í gang aftur fyrr en við duttum niður í 6-0 vörn. Við jöfnuðum leikinn 16-16 og staðan í hálfleik var svo 17-17. Í seinni hálfleik byrjuðum við betur og komust í 19-17 og megum við þakka Birki Ívari fyrir það en hann varði á upphafs mínútum dauðafæri og víti. Við héldum forustunni lengi vel en þegar mín var eftir töpuðum við einbeitingunni og þeir náðu að jafna leikinn. Við áttum síðustu sókn leiksins og spiluðum út leiktímann. Jafntefli dugði okkur þar sem við vorum með betri árangur í einbyrðist viðureignum við Val.
Þess má geta að Freyr fékk duglegt högg á ennið og þurfti að sauma 5 spor, meiriháttar!!! Nefbrot í síðasta leik og núna duglegur skurður á ennið, hvað er næst?
Besti maður okkar í dag var klárlega Birkir Ívar, einnig átti Andri Stefan og Kári góðan leik. Það er einn leikur eftir í deildinni og er hann næsta sunnudag gegn Stjörnunni.
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.