13.3.2009 | 23:12
Baráttu sigur fyrir norðan.
Það byrjaði ekki byrlega hjá okkur í kvöld fyrir norðan. Akureyringar byrjuðu leikinn
mun betur og komust í 2-0, en við jöfnuðum 2-2. Þá gáfu norðanmenn í og skoruðu næstu 5 mörkin og staðan orðin 7-2. Þá var ekki seinna vænna fyrir þjálfarann að taka leikhlé og lesa aðeins yfir okkur. Eftir það hófum við leikinn og var það vörninni ásamt Birki í markinu að þakka. Við jöfnuðum leikinn 9-9 og komust svo yfir 9-10. Þegar við náum að stilla upp í vörnina eiga öll lið erfitt með að komast í gegn og voru Akureyringarnir engin undantekning. Staðan í hálfleik var svo 11-13 okkur í vil. Seinni hálfleikurinn var að mestu okkar og héldum við þeim í 3-4 mörkum frá okkur lengi vel. Í stöðunni 21-23 okkur í vil fór Birkir Ívar hamförum, en á þessum tíma gekk lítið hjá okkur í sókninni og Akureyringar fengu ótal færa til að skora en
Birkir Ívar gjörsamlega át þá í einhverjum 4 dauðafærum. Við slökuðum aðeins á klónni og þeir minnkuðu muninn í 1 mark 23-24 þegar um 6 mín voru eftir. Við settum þá í næsta gír og skoruðum næstu 4 mörkin og þar við sat. Við sigruðum okkar 12 leik í röð og getum með sigri í næsta leik tryggt okkur deildarmeistaratitilinn á heimavelli gegn HK.
Markahæstu menn voru: Freyr 6, Kári 6, Andri 6, Beggi 4, Tjörvi 3, Elli 2 og Einar Örn 1.
Birkir varði einhvern slatta og Gísli kom inn á í tveimur vítum og lokaði í báðum tilvikum.
Næsti leikur er eftir tvær vikur, en nú er landsliðspása og við Haukamenn eigum tvo leikmenn þar, þá Kára Kristján og Sigurberg.
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Stolt, fötluð og óendanlega þakklát
- Sumarið erfiðasti tíminn
- Myndir af aðgerðum: Bílskúrinn illa brunninn
- Aðskilin frá móður sinni í tvö ár: Góða nótt
- Hver fær 37 milljónir í sinn hlut
- Starfsfólk Sýnar kallað á fund í Egilshöll
- Myndir: Hvalreki í Reykjavík
- Greiða fyrir kennitölur og villa á sér heimildir
Fólk
- Þessi hlutu Grímuna í ár
- Hef ekki unnið handtak síðan
- Kaleo heldur stórtónleika á Íslandi í júlí
- Oft eru þetta líka einhverjir sem við höfum tekið eftir
- Lively ætlar að standa með sér
- Ljósvíkingar slógu í gegn á Indlandi
- Fyrsti kynsegin leikarinn verðlaunaður
- Laufey mætti með kattartösku á Tony-verðlaunin
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.