9.3.2009 | 22:39
Nokkuð ljóst hverjir eru STÓRI bróðir í Firðinum
Mikið var gaman að vinna litla liðið aftur og það nokkuð örugglega. Vörnin hjá okkur var eins og í fyrri leikjum óstöðvandi og Birkir tók marga góða bolta með. Fh ingar spiluðu ágætis vörn og Maggi var nokkuð traustur hjá þeim en við spiluðum bara miklu betri vörn og þeir
skoruðu aðeins 5 mörk í hálfleiknum sem hlýtur að vera met þegar þessi lið eru annars vegar. Staðan í hálfleik var því 12-5 okkur í vil. Í seinni hálfleik náðu þeir að riðla okkar sóknarleik þó nokkuð og náðu um leið að skora mörk úr öðru og fyrsta tempói. Þeir náðu að minnka munin í 3 mörk 14-11. Við náðum tökum aftur á leiknum en þegar við náðum að stilla upp í vörn þá áttu þeir enga möguleika og við gengum á lagið með 5 mörkum á móti 1. Staðan orðin því 19-12 og við komnir með tögl og hald á leiknum aftur. Leikurinn endaði svo með öruggum sigri okkar 22-17.
Nú geta FH-ingar hætt að væla yfir síðasta leik þar sem vantaði nokkra lykil leikmenn því í dag var þeirra besti maður með og hann setti 1 mark. Það er nokkuð ljóst að Haukarnir eru stóri bróðir og munu alltaf verða það í handboltanum hér eftir.
Maður leiksins: Var liðsheildin en Birkir Ívar var duglegur að vera fyrir boltanum og varði um 25 tuðrur og mörg hver úr dauðafærum í seinni hálfleik.
Markaskor; Elli 6/9, Beggi 5/9, Freyr 4/6, Andri 4/7, Kári 2/2, Einar 1/2.
![]() |
Öruggur sigur Hauka á grönnum sínum í FH |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.