5.3.2009 | 23:01
Flottur sigur á Fram í Safamýrinni
Það var hörkuleikur sem fór fram í kvöld þegar við Haukamenn fórum í heimsókn í
Safamýrina. Framarar skoruðu fyrsta markið en við jöfnuðum ávallt um leið. Varninar voru góðar hjá báðum liðum en við náðum forustunni 5-6 og héldum forustu eftir það. Þeir skoruðu síðasta markið í fyrrihálfleik og staðan því 10-11 okkur í vil. Vörnin hjá okkur var enn og aftur mjög sterk og það var hún sem gerði útslagið á endanum. Í stöðunni 17-18 fyrir okkur unnum við nokkra mikilvæga bolta og munurinn komin í 3 mörk 17-20 og svo 18-24 en þá gáfust Framarar upp og við unnum öruggan sigur 22-27 og höldum okkar 3 stiga forustu í deildinni. Liðið var að spila vel og varnaleikurinn var mjög öflugur með Birkir fyrir aftan í rammanum.
Sigurbergur var markahæstur með 11 mörk.
Það er vert að geta þess að Einar Örn ætlar ekki að spila meira í horninu eftir að hann setti síðasta mark leiksins með þrumuskoti fyrir utan punktalínu.
Markaskor: Beggi 11, Freyr 4, Einar Örn 4, Elías 3, Andri 3, Kári 2.
Næsti leikur er gegn FH að Ásvöllum og það verður án efa hörkuleikur og skildumæting er hjá Haukafólki á þann leik.
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 163579
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.