25.2.2009 | 22:15
Lok lok og læs hjá Gísla G
Það var alveg klárt að við ætluðum okkur að ná 3 stiga forskoti í deildinni og Víkingur var liðið sem við þurftum að klára til að ná því markmiði. Vikingar hafa verið hættulegir í undanförnum leikjum og ef lið gera ráð fyrir 2 öruggum stigum á móti þeim þá er voðin vís. HK menn geta vitnað um það.
Við byrjuðum leikinn með okkar sterku vörn og náðum fljótlega 4 marka forskoti 8-4. Vörnin hélt áfram að gera það gott með Gísla G heitan í rammanum. Staðan í hálfleik var 15-10. Í seinni hálfleik byrjuðum við vel og náðum mest 9 marka forskoti 24-15. Í staðinn fyrir að halda áfram og keyra yfir Víkingana þá gáfum við eftir og þeir komust nær okkur alveg í lokinn en það var bara of seint. Leikurinn vannst nokkuð örugglega 31-26. Sigurbergur var heitur í skyttunni og setti nokkur falleg mörk. Kári átti góðan leik og setti 7 slummur. Arnar Jón nýtti sitt tækifæri í kvöld og skoraði 5 mörk. En maður leiksins var klárlega Gísli Guðmundsson markmaður okkar Haukamanna en hann varði einhverja 22 tuðrur í rammanu og mörg hver úr dauðafæri.
Markaskor: Beggi 10, Kári 7, Arnar Jón 5, Elli 4, Freyr 1, Andri 1, Tjörvi 1, Stefán 1, Einar Örn 1.
Næsti leikur er gegn Fram í Safamýrinni 5.mars.
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sagt var frá því í morgunblaðinu (daginn eftir leikinn) að safamýrarpiltar, ásamt þjálfaranum hefðu verið á leiknum hjá ykkur, strákar, líklegast til að undirbúa sig fyrir ykkar leik.
Adalgellan (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 22:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.