21.2.2009 | 17:29
Komnir á toppinn aftur
Það vannst góður sigur í dag gegn núverandi og tilvonandi bikarmeisturum Vals. Við byrjuðum leikinn með okkar massívu vörn og náðum fljótt 3 marka forskoti 13-10. Staðan í hálfleik var 14-12 fyrir okkur og hefðum við getað verið með meira forskot með smá heppni. Seinni hálfleikurinn var meira og minna okkar og náum við mest 6 marka forskoti. Þeir fengu tækifæri til að komast inn í leikinn þegar við vorum tveimur færri en við tókum þarna eina ótrúlega sókn sem endaði eftir einhverjar 2 mín með því að Kári kom inná og leysti inn, fékk boltann og snéri hann skemmtilega inn í markið. Undir lokinn vorum við 24-19 yfir og þá gáfum við aðeins eftir og þeir náðu 3 hraðupphlaupum og lokastaðan var 25-22. Góður sigur sem skilaði okkur í toppsætið. Kári Kristján átti góðan leik og nýtti færin
sín nokkuð vel og skoraði 8 mörk. Beggi var eitraður í skyttunni í fyrri hálfleik og setti 7 í leiknum. Átti reyndar eina rugl tilraun frá 18 metrum þegar hann lyfti sér upp og hamraði á markið. Hafði sett svona mark á móti Gentzel í fyrri leiknum gegn Nordhorn og ætlaði sér að toppa það í dag en Óli Gísla náði að verja í einkast. Góð tilraun samt sem áður. Birkir var svo öfugur í rammanum og varði einhver 17 skot. (tölum ekkert um markið sem Addi Mal skoraði með stöðuskoti úr horninu með 3 varnamenn fyrir framan sig). :)
Næsti leikur er gegn Víkingi á miðvikudaginn og með sigri þar getum við náð 3 stiga forskoti í deildinni.
Markaskor: Kári 8, Beggi 7, Freyr 4, Elli 2, Andri 2 og Einar Örn 2.
Birkir 17 varðir.
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Viðskipti
- Olíusjóðurinn segir umbóta þörf hjá ESB
- Hyggjast hætta öllu flugi til Norður-Ameríku
- Viðræður BNA og Kína hafa áhrif á gullverð
- Endurkaup skuldabréfa til skoðunar
- Stefna á að afskrá Play af hlutabréfamarkaði
- Miklar breytingar í orkugeiranum
- atNorth ræður tvo nýja stjórnendur
- Réttarríkinu var fórnað fyrir pólitíska hagsmuni.
- Tækifæri í gervigreind
- Fjárfestingin hreyfi ekki nálina
Athugasemdir
Áður en fólk fer að leiðrétta mig þá var ég að sjá villuna með Birkir Ívar og hef ákveðið að láta þetta standa:)
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013, 21.2.2009 kl. 17:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.