15.2.2009 | 19:36
Evrópukeppninni lokið
Þá er okkar þátttöku lokið í Evrópukeppninni í handbolta. Við getum verið nokkuð sáttir við okkar framlag til hennar á þessu tímabili. Við náðum 4 stigum í riðlakeppni
meistaradeildarinnar en þar unnum við frækin sigur á eitt af toppliðum í Evrópu, Veszprém. Leikurinn í dag var mun betri en leikurinn á föstudaginn en eins og Aron sagði réttilega þá var allt of mikið að tapa með 7 mörkum. Við vorum yfir í hálfleik 18-15 og vorum að spila frábæra vörn ásamt því að slúttinn voru mjög góð í sókninni. Einnig varði Birkir vel fyrir aftan. Í síðari hálfleik misstum við fljótlega niður forskot okkar en við hleyptum þeim aldrei of langt frá okkur. Við fengum á okkur 23 mörk í seinni hálfleik og þar hafði mikið að segja að markverðir okkar vörðu aðeins 3 skot í seinni hálfleiknum. Einnig misstum við Andra Stefan fljólega í
rautt spjald og því riðlaðist aðeins sóknarleikur okkar. Nú er þessu skemmtilega verkefni lokið og mjög líklegt að þátttaka íslenska liða í evrópukeppninni sé lokið í bili. Mjög ólíklegt að einhver lið fari í evrópukeppnir á næsta ári vegna efnahagsástandsins.
Markahæstu menn: Beggi 10, Elli 5, Kári 5, Freyr 4, Einar 3, Andri 3, Tjörvi 1.
Næsti leikur er gegn Val að Ásvöllum og það verður enn einn úrslitaleikurinn í vetur um efsta sætið. Núna byrjar undirbúningur fyrir þann leik.
![]() |
Gott hjá Haukum í 50 mínútur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikil skömm fyrir íslenskan handbolta að Haukar okkar besta lið skuli tapa með 13 & 7 marka mun fyrir liði sem er rétt miðlungslið í Þýskalandi núna í 9 sæti.
Skarfurinn, 15.2.2009 kl. 20:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.