Rassskelling á litla liðinu í Hafnarfirði

elliÞað var aldrei spurning hvernig þessi leikur myndi enda, aðeins var spurning um með hvað mörgum mörkum við myndum sigra þá. Við spiluðum frábæra vörn og náðum fljólega 4-1 forskoti. Staðan í hálfleik var svo 15-9 okkur í vil. Í seinni hálfleik héldum við áfram að spila massa vörn SIgurbergur Sveinssonásamt að spila yfirvegaðan sóknaleik. Við jukum forskotið hægt og sígandi og leikurinn endaði með 12 marka mun 34-22.

Markahæstir hjá okkur: Beggi 9/13, Ellir 7/10, Freyr 6/8, Andri 4/6, Arnar Jón 2/3, Heimir 2/3, Kári 2/3,Gunnar Berg 1/1, Einar Örn 1/4

Nú er 2.umferð lokið og ljóst að við erum í efsta sæti og þar af leiðandi fáum við heimaleiki í 3.umferð gegn liðum í 2.sæti (Valur), 4.sæti (FH), 6.sæti (Akureyri) og 8.sæti (Víkingur). Útileikir eru því gegn Fram, HK og Stjörnunni.

 Næsta verkefni hjá okkur Haukunum er ferðalag til Þýskalands þar sem við leikum tvo leiki gegn Nordhorn í Evrópukeppni félagasliða. Farið er út 12.feb og spilað 13 og 15.feb. Við komum svo aftur heim mánudaginn 16.febrúar.

 Læt hér fylgja frumsamið ljóð frá eldheitum stuðningsmanni.

Handboltahetjur Hauka

Mikilvægur miðjumaðurinn er.
Eins markmaður sem leikur sér.
Skyttan skýtur og fer í hark.
Sjáðu er hún gerir mark.

Hornamaður heldur knár.
Í hraðahlaupum er klár.
Handbolti er Hauka fag.
Enda hafa þeir margir lag.

Á línu liggur færið vel.
Að leikmönnum verður ei um sel.
Víti þeir veiða af miklu stolti.
Svo viljandi í mark fer þeirra bolti.

Aðalheiður Davíðsdóttir - Trommarafrú.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Þór Kristjánsson

Haukar hafa staðfest sinn réttláta sess í Hafnarfjarðabæ með því að berja aftur hinu litlu uppreisn hinna svart hvítu. Loksins er eðlilegt ástand aftur á Íslandi, Bláfjöll opin til níu, Ískalt í febrúar, allir blankir og Haukar sigra FH.

Davíð Þór Kristjánsson, 6.2.2009 kl. 01:27

2 identicon

Frábært í gær:)  getur þú ekki sett inn peppmyndbandið sem var sýnt fyrir leikin í gærkvöld.

Guðjón (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 19:26

3 identicon

Sæll Guðjón og takk fyrir síðast. Með peppmyndbandið þá ætla ég að halda því bara fyrir liðið að þessu sinni. En ég get sýnt þér það persónulega. Hebbi er með það á tölvunni sinni.

 Kv. Freyr

Freyr (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 22:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband