19.11.2008 | 23:39
Upprúllun á Akureyri
Það var skemmtilegt ferðalag þegar við haukamenn fóru í heimsókn
norður. Við ætluðum okkur að sýna okkar styrk og það gerðum við svo sannalega með öruggum sigri á toppliði deildarinnar með 12 mörkum. Leikurinn var jafn framanaf en í stöðunni 9-7 settum við í næsta gír og komust í 15-10 áður en flautað var til hálfleiks. Í seinni hálfleik héldum við uppteknum hætti og gjörsamlega gengum frá heimamönnum sem sáu aldrei til sólar. Vörnin var frábær með þá Gunnar og Adda P fremsta í flokki. En klárlega sigur liðsheildarinnar. Nú erum við mættir!!!!
Einn áhorfandi sá sig knúna til að öskra á okkur þegar við vorum á leið inn í klefa eftir leik "Haukar, þið eruð ekki þreyttir núna". Átti hún eflaust við að við erum búnir að vera í ströngu prógrammi og freistuðum þess að fá þessum leik frestað vegna þess að við erum að fara í ferðalag til Ungverjarlands á eftir. Förum í flug kl. 7:30 í fyrramálið, flugum fyrst til Amsterdam og þaðan til Búdapest. Einnig voru stjórnarmenn hjá Akureyri brjálaðir yfir fréttagrein þar sem kemur fram að Aron þjálfari átti að hafa sagt "ólöglegir" en hann sagði "óliðlegir" en fréttamaðurinn fór frjálslega með orðið og til að mynda tekur handbolti.is viðtal við Rúnar og spyr hann einmitt út í þessa frétt.
En flottur leikur hjá okkur og næst er það Veszprém og "þegar" við vinnum þann leik erum við komnir áfram í 16 liða úrslit meistaradeildarinnar!!!! :)
Flottasta mark leiksins hefur verið kosið af dómnefnd og er það klárlega markið hans Adda P sem hann setti úr skyttunni. Hans fyrsta mark í vetur. Til hamingju Addi það bíður þín ein malt upp á flugvelli í fyrramálið.
Markaskor: Kári 7, Andri 7,Beggi 6, Einar 6, Freyr 3, Elli 2, Stebbi 2 og Arnar Pétursson 1.
Birkir varði 12 bolta og Gísli 7.
![]() |
Toppliðið steinlá fyrir meisturunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Erlent
- Sprenging á flugvelli í Teheran
- Pútín vill leysa átökin með diplómatískum leiðum
- Íranar hefja árásir að nýju
- Fjórir létust í rútuslysi í Frakklandi
- Hátt í hundrað látnir í árásunum
- Hluti kjarnorkustöðvarinnar eyðilagðist í árásinni
- Ætla ekki að sýna stillingu
- Bandaríski herinn aðstoðar Ísraelsmenn
Athugasemdir
Glæsilegt drengir!
Það eina sem er sætara en að salta montna Akureyringa er að salta FH-börnin. Treysti á ykkur til að klára það síðarnefnda á Ásvöllum seinna í vetur.
Til hamingju með sigurinn og vonandi er þetta forsmekkurinn á því sem koma skal.
Haukakveðja
BG
Haukamaður (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 09:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.