Spurningakeppnin

Í kvöld fór fram spurningakeppnin "Ertu heimskari en skólakrakki" á meðal okkar strákana hér í Úkraínu. Gísli Guðmundsson og Freyr Brynjarsson sömdu 30 spurningar og kepptu hinir strákarnir í tveggja manna liðum. Liðskipan var eftirfarandi:

1. Aron K, Páll Ó, Kolbrún Sjúkraþj.     2. Gísli J - Arnar J      3. Arnar P - Andri S    

4. Gunnar B - Stefán   5. Einar Örn - Pétur P    6. Kári - Birkir

Spurningarnar voru að mestu upp úr efni frá 5,6 og 7 bekk í grunnskóla ásamt nokkrum spurningum úr ýmsum áttum.

Það er skemmst frá því að segja að þeir Einar Örn og Pétur Páls unnu með 59 stigum af 90 mögulegum. Í 2.sæti voru Arnar P og Andri Stefan með 57,5 stig. Í 3.sæti voru Birkir Ívar og Kári með 53 stig. Í 4 sæti urðu Gísli Jón og Arnar Jón. Í 5 sæti urðu Aron, Páll og Kolbrún. Og restina ráku Stefán og Gunnar með, já aðeins minna. 

Dæmi um spurningar eru :

1. Hver er næst stærsta eyðimörk í heiminum?

2.Hver er höfðuborgin í Ástralíu?

3. Beygðu orðið Kýr í et og ft.?

4.Hvaða reikistjarna er næst sólu?

5.Hver er talinn vera merkasta uppgötvun mannsins?

P.s. þið sem þekkið Stebba "Plokk" spyrjið hann hvað hann gerði á laugardagskvöldinu.!!!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég vil að það komi fram að ég og Gísli fengum 52.5 stig, annars heldur fólk kannski að við höfum verið í sama afhroðinu og neðstu tvö liðin

Arnar Jón (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 18:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband