22.8.2008 | 22:21
Dagur 3: Sigur hjá landsliðinu en tap hjá okkur
Já það fór ekki vel í kvöld þegar við töpuðum gegn Bjerringbor/Silkeborg nokkuð örugglega. Við byrjuðum vel en þeir komust um miðjan fyrrihálfleik í 12-6 en þá tókum við aðeins við okkur með Pétur Páls fremstan í flokki og staðan í hálfleik var 13-11. Í seinnihálfleik spiluðum við eins og hauslausar hænur og áttum aldrei breik. Vorum að spila herfilegan sóknarleik allan leikinn en varnarleikurinn var allt í lagi í fyrrihálfleik. Lokastaða 31-18. Næsti leikur er gegn Dunkerque og eins gott að við mætum tilbúnir til leiks. Jæja nóg um það.
Ísland vann eins og allir landsmenn vita og við haukamenn horfðum saman á leikinn hér á hótelinu á stóru tjaldi. Settur var á stað pottur þar sem leikmenn spáðu um úrslit leiksins og þurftu allir að borga 500 kr fyrir. Það voru allir með nema Andri hann ákvað frekar að leggja 500 kr inn á sparireikning hjá Kaupthing. Það var svo Birkir Ívar sem fór með sigur á hólmi en spáin hans var næst því sem lokatölur urðu. Hann spáði 36-32 fyrir Ísland og fékk 8500 kr í vasann.
Meira á morgun.
Færsluflokkar
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- HSÍ
- Sport.is
- Handbolti í Reykjanesbæ HKR
- SportTV með boltann í beinni Sport TV
- Heimasíða Hauka HAUKAR
Leikmenn
Hverjir eru að spila með Haukunum í ár
- Leikmenn tímabilið 2012-2013 Leikmenn 2012-2013
Næstu leikir
Íslandsmótið í handbolta 2007-2008
- Næstu leikir N1 - deildin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Viðskipti
- Orkuveitan skilar 5,1 milljarðs kr. afgangi
- Bosch þarf að stíga fast á bremsuna
- Byrja í 40 milljónum
- Allir starfsmenn Sýnar fá kauprétt
- Bitcoin hársbreidd frá 100.000 dölum
- Of mörg veikbyggð félög í greininni
- Blackbox Pizzeria lokað
- Seðlabankinn oftelur íbúðir
- Fréttaskýring: Kanada verði land tækifæranna
- Þarf fólk að kaupa sér hraðbanka?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.