Nýtt met í deildinni

Íslandsmeistarar 2008Jafntefli er staðreynd og við vinnum þessa deild með 9 stiga forskoti sem er met, en gamla metið var 8 stiga forskot back in the day. HK náði að jafna leikinn á síðustu sek leiksins og fögnuðu eins og þeir hefðu orðið Íslandsmeistarar. Við höfðum unnið þessa deild þegar 4 leikir voru eftir og í þessum leikjum unnum við tvo og gerðum tvö jafntefli, ekki slæmt miðað við að þessir leikir hafi ekki skipt neinu máli. Nú er þessi deild formlega lokið og næsta föstudag verður HSÍ hófið þar sem Sálin heldur uppi stuðinu. Spurning hvort HSÍ  hringi ekki í Ómar Ragnarsson og fái hann til að verða kynnir eins og árið 2006 Tounge.

Næstu helgar verður nóg að gera fyrir okkur í Haukunum. Næsta föstudag verður HSÍ hófið eins og áður segir svo helgina eftir það verður lokahóf Haukana og laugardaginn eftir það óvissuferð hjá okkur strákunum í m.fl.

P.s Þessi mynd á mbl er ekki frá leiknum í dag. Efast um að nokkur blaðamaður hafi verið á staðnum, hvað þá ljósmyndari frá blöðunum.

P.s.2 Það kemur myndband fljótlega um veturinn.


mbl.is HK og Haukar skildu jöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Innilega til hamingju Haukamenn, Aron og strakarnir hafa verid flottir i vetur og vonandi verdur frammhald a thott ad Dori og Jon fari i FRI......

Kvedja fra fyrrverandi Haukaverju. Gunnlaugur H Gunnlaugs.

gulli spanjol (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 19:54

2 identicon

Hvenær skildum við fá mynd af Íslandsmeisturum Hauka í handknattleik 2008. Ekki hef ég séð mynd af liðinu í Mogganum, Vísi eða þá Fréttablaðinu.

Umfjöllunin í vetur hefur verið blöðunum og sjónvarpinu til háborinnar skammar  og varla hefur komið stafur um síðustu fjóra leikina í deildinni, kannski af því að þetta var löngu búið og spennan farin.

Nú auglýsa blöðin þ.á.m. Moggin sér blað um Íslandsmeistaramótið í knattspyrnu, kynning á liðunum og leikmönnum. Spjall við hina og þessa menn og konur. Hvenær ætli við handboltaáhugamenn fáum svona kynningarblað eins og Mogginn er að gera um fótboltann ???

H.S.Í. þarf á kynningarfulltrúa að halda og eins þurfum við ferska vinda í stjórn H.S.Í.  þar sem kemur fólk sem rífur þetta apparat upp af rassgatinu.

Jasi (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 20:05

3 identicon

Alveg sammála þér Jasi. Sem dæmi þegar við unnum Aftureldingu og fengum bikarinn afhentan þá var ekki minnst á leikinn hvað þá myndir í Fréttablaðinu og leikurinn var kl.14 á laugardegi þannig að það er ekki hægt að segja þeir hafi ekki haft tíma í að setja þetta í blaðið. Svo var ekkert sýnt frá leiknum í kvöldfréttum hjá Rúv. Stöð 2 sýndi þó eitthvað. Vona að Fréttablaðið klári þennan vetur með sæmt og fari yfir veturinn að einhverju viti og verði með tölfræði hjá leikmönnum yfir veturinn.

Freyr (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband