Tap gegn Skjern

Í kvöld var spilaður æfingaleikur við Skjern og fóru leikar þannig að Skjern vann leikinn 33-29. Leikurinn byrjaði vel af okkar hálfu og vorum við yfir allann fyrrihálfleik. Sókn og vörn voru upp á sitt besta og í hálfleik var staðann 16-13 fyrir okkur þó svo að dómarar leiksins hafi gert sitt besta til að hjálpa Skjern með því að reka okkur útaf fyrir litlar sakir. Til að mynda þá vorum við á einum punkti í leiknum 3 inná gegn 6 leikmönnum Skjern en Halldór nokkur Ingólfsson lét það ekki trufla sig og skoraði næstu tvö mörk og unnum við þennan kafla 2-0. Svo fékk Gunnar Berg rautt spjald á 15 mín fyrir að hafa farið í andlit eins leikmanns Skjern en í raun fór hann í bringuna á honum á sama tíma ráku þeir Arnar P útaf fyrir eitthvað annað brot. Þeir voru sem sagt í ruglinu. Seinni hálfleikur var góður af okkar hálfu þangað til um 13 mín voru eftir en þá fór staðan úr 19-21 í 24-22 og þeir héldu þessu forskoti alveg til loka og bættu tveimur við í lokinn og því loka staða 4 marka tap.  Næst á dagskrá er 4 liða mót í Silkeborg og leggjum við af stað á morgun. 

Markaskor í leiknum: Arnar Jón 6, Andri 5, Jón Karl 5 þar af 4 víti, Gunnar Berg 3, Beggi 3 öll úr vítum, Halldór 2, Arnar P 1, Freyr 1, Þröstur 1, Pétur 1, Gísli Jón 1,

Magnús varði 19 bolta 

Vignir Svavars skoraði 10 fyrir Skjern. 

P.s. Matti ég reyndi að hausa Sune en hann rétt varði það. Ég skal redda mynd af Hödda og Faxa og set hana á netið um leið og ég get. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Sigurðsson

Sælir félagar.
Gott að sjá að þið séuð að blogga þetta svo maður geti fylgst með.

Halldór Ingólfsson er auðvitað einn mesti snillingur handboltans fyrr og síðar og það var heiður að spila með honum.

Gangi ykkur vel út.

Diddi.

Sigurjón Sigurðsson, 29.8.2007 kl. 22:40

2 identicon

tek sko allveg undir þetta hjá Didda með hann Dóra , það voru ekki framleidd mörg eintök af svona snillingum

 bíða spenntur eftir myndinni :D

matti (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 05:20

3 Smámynd: Harpa Melsteð

Sá gamli er bara snillingur.

Gangi ykkur vel á mótinu. 

Harpa Melsteð, 30.8.2007 kl. 21:14

4 Smámynd: Jóhann Waage

Látið Freyr vita að það er aumingjalegt að fara út til Danmerkur og skora aðeins 1 skitið mark. Hann ætti betur að snúa sér að körfubolta, þó að Boccia eigi betur við hann

Gangi ykkur samt sem allra best.

Skallinn (svili Freys)

Jóhann Waage, 30.8.2007 kl. 22:20

5 identicon

Jói þetta er karlmanns íþrótt annað en þessi konuíþrótt sem þú stundaðir. 

P.s. Boccia er nákvæmisíþrótt og ég rústa þér í því. 

Freyr (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 10:42

6 Smámynd: Jóhann Waage

Þú ert snillingur Freysi minn
 En ég held bara að ég verði að sanna fyrir þér að ég hef í fullu tréi við þig, gæti jafnvel verið betri en þú í hinum og þessum íþróttum, þrátt fyrir að bera eilítið meiri líkamsmassa en þú
 En að handbolti(skiplögð fjöldaslagsmál) sé meiri karlmannsíþrótt en körfuboltinn, er ósannað. Amk þá urðu líkamstjón af stærstu gerð endir minn í körfunni, þegar að bakið á mér brotnaði hérna fyrir nokkrum árum síðan, þannig að við körfuboltamenn blásum á allt þrugl handboltamanna um að þetta sé "contact" laus íþrótt
Gangi ykkur vel úti, ég ætla að njóta þess um helgina að horfa á mína menn í Skallagrím taka Valsmótið

Jóhann Waage, 31.8.2007 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013
HAUKAR - Meistaraflokkur karla 2012-2013

Meistaraflokkur karla hjá Haukunum blogga um tímabilið 2012-2013

 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband